Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 6
6 sport 25. maí 2018
E
mil Hallfreðsson, miðju-
maður Udinese á Ítal-
íu og lykilmaður í íslenska
landsliðinu, er kominn til
landsins. Hann er klár í undir-
búning fyrir stærsta íþróttavið-
burð sem Ísland hefur tekið þátt
í, sjálft Heimsmeistaramótið í
knattspyrnu. Úrslitaleikur móts-
ins er sá íþróttaviðburður sem
fær mest áhorf í heiminum, það
eru allir að fylgjast með. Litla Ís-
land verður með, afrek sem fáir
gátu séð fyrir að yrði að veruleika.
Emil er einn af lykilmönnum
liðsins, hann er öðruvísi karakter
en margir í liðinu en á góðan hátt.
Stundum hefur Emil ekki feng-
ið allt það lof sem hann á skilið,
margir hafa vanmetið afrek hans.
Hann hefur nú mörg ár í röð leik-
ið í efstu deild á Ítalíu, einni sterk-
ustu deild sem knattspyrnumað-
ur kemst í. Þar ertu ekki í mörg ár
nema að kunna sitthvað fyrir þér í
leiknum fagra.
„Þetta var mjög spes tímabil í
heild ef ég á að segja eins og er,“
sagði Emil þegar blaðamaður tyllti
sér niður með honum fyrir æfingu
landsliðsins. Röddin hjá Emil var
að gefa sig, hann var afar hás en
gaf sér tíma í gott spjall. Tímabil-
ið með Udinese var að klárast, það
var mjög skrýtið fyrir hann. Í fyrsta
sinn í fjölda ára upplifði Emil það
að vera settur í frystikistuna. Það
kom langur kafli þar sem hann
fékk ekkert að spila en Udinese
sem er stórveldi, var í vandræðum
innan vallar.
„Ég var með þrjá þjálfara.
Massimo Oddo, sá sem var í miðj-
unni af þeim hafði ekki mikla trú á
mér, ég fékk voðalega lítið að spila,
nánast ekki neitt. Þetta var ótrú-
lega skrýtið, það er ekki hægt að
vera allra og maður skilur það al-
veg. Ég var samt alltaf klár ef kall-
ið kæmi, það var gott þegar Igor
Tudor tók við undir lok tímabils-
ins, ég spilaði síðustu tvo leikina.
Það var frábært fyrir mig persónu-
lega, maður er búinn að æfa vel og
var alltaf klár ef kallið kæmi. Mað-
ur gaf líka gott svar á vellinum,
við unnum báða þessa leiki og ég
endaði þetta ótrúlega vel sjálfur.
Það var rosalega gott fyrir mig að
fá smá leikæfingu, sérstaklega í
ljósi þess að HM er að koma. Þetta
tímabil var lærdómsríkt að vissu
leyti, þetta var ekkert alltaf ótrú-
lega skemmtilegt.“
Miklu betri árangur
með Emil innan vallar
Tölfræði í fótboltanum getur
blekkt en tölfræðin hjá Udinese
með og án Emils segir alla söguna,
liðið gekk í gegnum eyðimörk
án hans en þegar Emil var á sín-
um stað á vellinum komu sigrar
sem skiptu máli. Það miklu máli
að þeir björguðu þessu fornfræga
félagi frá falli úr efstu deild á Ítal-
íu. ,,Í þeim leikjum sem ég tók
þátt í gekk vel, endirinn á tímabil-
inu var góður þar sem við gátum
í raun fallið, og þeir voru mikil-
vægir. Þjálfarinn kom til mín og
sagði mér að ég myndi spila þá, gaf
mér traustið. Ég gaf honum það til
baka og það var gott að enda þetta
svona. Við enduðum í 14 sæti, það
er ekki góður árangur. Við áttum á
hættu að falla. Það var glórulaust
að við skyldum vera í þessari að-
stöðu, við töpuðum tólf leikjum í
röð. Maður sat á bekknum á þeim
tímapunkti og hugsaði hvað væri í
gangi, maður gat ekkert.“
Ákvað að halda kjafti
Emil er 33 ára gamall, hann hefur
upplifað margt og veit að heimur
fótboltans er skrýtinn. Það getur
allt breyst á einu augabragði, bæði
til hins betra og verra. ,,Fótbolt-
inn er stórfurðulegur, þetta get-
ur allt breyst á fimm mínútum. Þú
getur verið kóngurinn og breyst í
mesta bjánann á einu augnabliki.
Þeir gera við mig nýjan samning
og þjálfarinn var rosalega ánægð-
ur með það. Svo bara notar hann
mig ekkert, maður þarf samt alltaf
að vera klár. Ég hélt bara áfram,
æfði vel. Ég ákvað það strax bara
að halda kjafti og æfa, segja ekki
neitt og vera klár. Í þessum síðustu
tveimur leikjum þurfti liðið á því
að halda að allir væru klárir og ég
var það, maður hjálpaði liðinu að
ná þessum tveimur síðustu úrslit-
um sem skiptu máli.“
Ráð til ungs fólks
Það getur tekið á andlega að sitja
á bekknum og gera ekkert, sér-
staklega þegar liðinu gengur illa
og þú telur þig hafa ýmislegt fram
Konan
passar
að fitu-
prósentan
sé í lagi
fyrir HM
n Emil Hallfreðsson er í stærra
hlutverki en á EM n Gefur ungu
knattspyrnufólki ráð
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Tölfræði Udinese
á þessu tímabili
með og án Emils
Án Emils
20 leikir = 11 stig
0,55 stig í leik
Með Emil innan vallar
18 leikir = 29 stig
1,61 stig í leik
„Hún fær
hrós fyrir
það, það er afar
vel hugsað um
karlinn. Það er
ekki mikið af
fiutprósentu
núna.
M
y
n
d
iR
H
a
n
n
a