Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 7
sport 725. maí 2018 HVERSDAGSLEIKINN Á SKILIÐ ÓTRÚLEGAN SÍMA DUAL 12 MP MYNDAVÉL NOKIA 8 SIROCCO Jóhann keyrði aftan á bíl og tognaði á hálsi. Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur. Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar. að færa. Emil segist hafa ráð fyrir alla unga knattspyrnumenn. ,,Það sem skiptir mestu máli í fótbolta er að vera með hausinn í lagi, ef ég á að gefa ungum leikmönnum einhver ráð. Þetta skiptir máli, að vera alltaf rétt stilltur í hausnum. Sama hvort þú sért utan hóps, á bekknum eða í liðinu, að vera rétt stilltur þegar kallið kemur. Það getur breyst hvenær sem er að þú farir úr því að vera gaur á bekkn- um í að vera mikilvægur leikmað- ur. Þetta breytist svo hratt.“ Hefur lagt meira í sölurnar en áður Þessi klóki leikmaður úr Hafnar- firði hefur lagt meira í sölurnar en áður, þetta hafa allir séð. Emil hefur æft meira, hugsað betur um mataræðið og allt sem því fylgir. ,,Ég hef lagt meira á mig en vana- lega vegna þess sem er framund- an, ég hef líka sagt að þetta tímabil átti að fara svona. Það var verið að spara mig til að ég yrði í góðu standi í sumar, maður reynir að horfa á þetta jákvæðum augum. Maður er svo klár í sumarið, mað- ur hefur æft vel og lagt mikið á sig. Þetta verður sumar sem enginn mun gleyma.“ Konan passar að fituprósentan sé í lagi Ása Reginsdóttir, eiginkona Emils passar vel upp á það sem fer ofan í hann. Blaðamaður hafði lengi hugsað út í spjall sitt við Emil og fór að fylgjast með ýmsu sem gæti nýst honum. Eitt af því var að skoða Instagram-síðu Ásu. Þar má sjá daglega hvað hún eldar ofan í fjölskyldu sína, ofnbakað græn- meti er þar vinsælt. ,,Hún er með pælingar í að bjóða þjóðinni í mat held ég bara,“ sagði Emil og brosti, það kom honum líklega á óvart að fá spurningu um þetta. ,,Það er mikið ofnbakað grænmeti. Það er passað upp á mataræðið, það skiptir máli. Hún fær hrós fyr- ir það, það er afar vel hugsað um karlinn. Það er ekki mikið af fiut- prósentu núna. Ég er í rosalega góðu standi yfir höfuð, ég er kom- inn á þann aldur að það skiptir mig kannski ekki öllu máli að spila alveg heilt tímabil. Ég hafði tekið sirka tíu tímabil í röð þar sem ég spilaði yfir 30 leiki, það var gott fyrir mig að fá að spila þarna í lok- in, bæði fyrir líkamann og haus- inn. Núna verða tveir æfingaleik- ir, þar sem allir fá líklega tækifæri. Þá nær maður nokkrum leikjum til að vera í toppformi þegar fyrsti leikur á HM er.“ Hlutverið hefur breyst frá síð- asta stórmóti Emil hefur upplifað allt með landsliðinu en í sumar verða 14 ár frá því að hann lék sinn fyrsta landsleik. Hann hefur upplif- að það að spila mjög stórt hlut- verk og einnig að vera í algjöru aukahlutverki. Sitja mikið á bekknum og eins og raunin var á Evrópumótinu í Frakklandi. Þar kom Emil aðeins einu sinni við sögu sem varamaður gegn Ungverjalandi. Eftir að Heimir Hallgrímsson tók við liðinu hefur Emil hins vegar fengið mjög stórt hlutverk, hann hefur stimplað sig inn sem lykilmaður og óhætt er að fullyrða að hann hafi aldrei spil- að betur í bláu treyjunni. ,,Ég get alveg viðurkennt það að fyrir EM bjóst ég við að spila meira, fá fleiri mínútur og koma oftar inn. Núna undir stjórn Heimis hef ég fengið stærra hlutverk en áður, ég spilaði síðustu sex leikina í undankeppn- inni. Við breyttum um leikkerfi sem gekk rosalega vel, ég vona að ég sé í stærra hlutverki á HM en raunin var á EM. Má maður ekki alveg búast við því? Ég hef séð það þannig fyrir mér, ég er búinn að stilla mig inn á það. Ég ætla að vera í flottu standi, gera allt sem ég get gert fyrir liðið. Það eru all- ir þannig, okkur langar að ná ár- angri.“ Markmið liðsins eru á hreinu Ísland er í sterkum riðli í Rúss- landi en liðið setur stefnuna upp úr honum, efstu tvö sætin kom- ast í 16 liða úrslitin. ,,Við ætlum að komast upp úr riðlinum og skoða svo stöðuna, ég held að það sé fínt að horfa á hlutina þannig. Það væri fáránlegt að mæta og segjast ætla að vinna mótið en við ætlum okkur upp úr þessum riðli. Það er markmiðið, svo verður stað- an skoðuð eins og í Frakklandi. Vonandi getum við komið hinum liðunum á óvart.“ n Leikir Íslands á HM í Rússlandi Laugardagurinn 16. júní Ísland – Argentína (13:00) Föstudagurinn 22. júní Ísland – Nígería (15:00) Þriðjudagurinn 26. júní Ísland – Króatía (18:00) „Það sem skiptir mestu máli í fótbolta er að vera með hausinn í lagi, ef ég á að gefa ungum leikmönnum einhver ráð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.