Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 8
8 25. maí 2018fréttir
Við erum flutt á
malarahöfða 2
110 Reykjavík
2. hæð
Fataviðgerðir og
fatabreytingar
E
rlendir starfsmenn sem
koma hingað til lands á veg-
um starfsmannaleiga eru að
öllum líkindum einn jaðar-
settasti hópur íslensks samfélags.
Þessir einstaklingar koma hing-
að til að vinna í skamman tíma
á lágum launum og rödd þeirra
heyrist aldrei. DV ræddi við einn
slíkan starfsmann, sem er af slav-
nesku bergi brotinn, en hann kom
hingað til lands á vegum Elju –
þjónustumiðstöð atvinnulífsins
ehf. sem er umsvifamesta starfs-
mannaleiga landsins.
Viðmælandi, sem er mennt-
aður í sinni iðn, er ánægður með
viðmót íslenskra samstarfsfélaga í
sinn garð en segist kunna illa við
þá tilfinningu að vera á lægri laun-
um en ómenntaðir Íslendingar. Þá
segir hann farir sínar ekki slétt-
ar varðandi húsnæðið sem fyrir-
tækið útvegaði honum sem hann
telur vera á okurverði. Viðmæl-
andinn deilir tæplega 10 fermetra
herbergi með öðrum ókunnug-
um einstaklingi og greiðir fyrir
það 75 þúsund krónur á mánuði.
Framkvæmdastjóri Elju segir að
félagið hafi engar tekjur umfram
kostnað af því að útvega erlendum
starfsmönnum húsnæði. Það sé
ekki skilyrði fyrir ráðningu starfs-
manns að viðkomandi leigi af af
Elju, starfsmenn ráði því hvar þeir
búa.
„Þetta er mjög þröngt“
Elja – þjónustumiðstöð atvinnulífs-
ins ehf. er með stærstu markaðs-
hlutdeild á starfsmannaleigumark-
aði en rúmlega 500 starfsmenn
starfa hérlendis á vegum félagsins.
Rúmlega 2.000 manns hafa starf-
að hjá fyrirtækinu hjá tæplega 200
samstarsfyrirtækum. Fyrirtækið
var stofnað árið 2015 en vöxtur þess
hefur verið ævintýralega hraður.
Samkvæmt ársreikningi fyrir árið
2016 voru rekstrartekjur félagsins
orðnar um 860 milljónir króna ári
síðar og síðan þá hefur leiðin bara
legið upp á við. Fyrirkomulagið er
á þá leið að erlendu starfsmennirn-
ir skrifa undir samning við félagið
áður en þeir koma til landsins en
greiða sjálfir fyrir flugfarið. Starfs-
mennirnir eru launþegar hjá Elju
en fyrirtækið rukkar síðan fyrir út-
selda vinnu þessara starfsmanna.
Ekki er gefið upp hvaða álag Elja
setur á þessa vinnu. Á vef félags-
ins kemur fram að lágmarksvið-
mið varðandi kjör starfsmanna séu
gildandi kjarasamningar en „oft sé
borgað meira“.
Það gildir þó ekki um viðmæl-
enda DV. Hann fær ekki krónu
meira. Eins og áður segir er hann
af slavnesku bergi brotinn og hef-
ur unnið fyrir Elju í nokkra mánuði.
Hann er menntaður í sinni iðn og
tímakaup hans er 2.250 krónur á
tímann sem er lágmarkstaxti. Það
gera mánaðarlaun upp á tæplega
390 þúsund krónur. Hann segir
að um góð laun sé að ræða miðað
við hvað sé í boði í heimalandinu.
„Ég áttaði mig samt fljótlega á því
að ég er á mun lægri launum en ís-
lenskir kollegar mínir, jafnvel þó að
þeir hafi ekki sömu menntun né
reynslu. Það er auðvitað ekki góð
tilfinning,“ segir viðmælandinn
sem vill ekki láta nafns síns getið.
Þess má geta að meðallaun iðnað-
armanna á Íslandi eru um 572 þús-
und krónur samkvæmt upplýsing-
um frá Samiðn.
Viðmælandinn segist þó að
mestu leyti vera afar ánægður með
að starfa á Íslandi. Sérstaklega sé
viðmót íslenskra yfirmanna og
samstarfsmanna gott. Hér sé borin
virðing fyrir erlendum starfsmönn-
um og þeim sýnt vinarþel. Hann
hafi áður starfað í Noregi og þar sé
litið niður á erlenda starfsmenn og
ekki komið vel fram við þá.
Það sem fer þó fyrir brjóstið á
viðmælanda blaðsins. er húsnæð-
ið sem honum er boðið uppá. Um
er að ræða herbergi í stóru einbýlis-
húsi á höfuðborgarsvæðinu sem er
í eigu Domus eigna slhf., sem er eitt
af dótturfélögum GAMMA. Her-
bergið er aðeins um 8-10 fermetr-
ar að stærð en því deilir viðmæl-
andi DV með öðrum ókunnugum
manni. „Þetta er mjög þröngt. Það
er kannski meter á milli rúmanna
okkar og bara pláss fyrir einn lít-
inn fataskáp,“ segir maðurinn. Fyrir
þessa gistingu borgar hann 75 þús-
und krónur og mánuði. „Ég var bú-
inn að heyra að leigumarkaðurinn
væri dýr á Íslandi en ég hef ekki séð
dæmi um svona verð,“ segir hann.
122 útlendingar með
lögheimili í einbýlishúsi í Árbæ
Eins og áður segir er húsið sem
viðmælandi DV dvelur í í eigu
Domus eigna slhf. sem er í eigu
sjóðsins GAMMA:Domus. Sami
sjóður á félagið Domus eignir 2
slhf. en þessi tvö félög, Domus og
Domus 2, eiga fjölmargar eignir á
höfuðborgarsvæðinu. Sama gild-
ir um félögin E-fasteignafélag ehf.,
Almenna Red ehf. og Red ehf. sem
öll eru í eigu GAMMA að hluta eða
öllu leyti. Í fasteignum þessara fé-
laga dvelja fjölmargir starfsmenn
Elju. Þannig má nefna Malarás 16
sem dæmi. Um er að ræða 322 fer-
metra einbýlishús í Árbænum en
þar eru hvorki fleiri né færri en
122 erlendir einstaklingar skráðir
með lögheimili samkvæmt þjóð-
skrá. Augljóslega hefur aðeins
brot þeirra þar aðsetur, flestir eru
farnir úr landi eða komnir í ann-
að húsnæði. Annað dæmi er Keil-
isbraut 745 á Ásbrú en þar eru 92
Rukka erlenda starfsmenn um 150 þúsund
krónur í leigu fyrir 10 fermetra herbergi
n Eigendur Elju starfa fyrir dótturfélag GAMMA n Samiðn telur fyrirtækið ekki virða nám og réttindi erlendra starfsmanna n Segja leiguna sanngjarna
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Arthúr Vilhelm Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Elju.
Þorbjörn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri
Samiðnar. „Þetta er mjög
þröngt. Það er
kannski meter á milli
rúmanna okkar og bara
pláss fyrir einn lítinn
fataskáp.