Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 28
28 25. maí 2018
F
yrr á tímum jafngilti sjó-
mennska Íslendinga her-
mennsku á stríðstímum því
mannfallið var svo
ógurlegt. Þessi fullyrðing
er sett fram í sögu Einars
Kárasonar, Stormfuglar,
og hann endurtók hana
í nýlegu sjónvarpsvið-
tali. Fullyrðingin hittir
beint í mark eins og svo
margt í þessari bók – já
raunar allt.
Nýfundna-
landsveðrið er nafn-
gift á óveðri sem brast
á árið 1959 úti á sjó fyr-
ir utan Nýfundnaland.
Þangað flúðu mörg ís-
lensk fiskiskip landhelgisdeiluna
við Breta eftir útfærslu íslensku
lögsögunnar í 12 mílur og sóttu
á gjöful karfamið. Mannfall varð
meðal áhafna íslenskra togara í
þessu óveðri en gífurleg ísing var
á sjónum og hlóðst utan á skip-
in. Skipverjar börðust fyrir lífi
sínu með því að berja ís utan af
skipunum til að varna því að þau
sykkju vegna þungans.
Skáldsaga Einars Kárasonar,
Stormfuglar, byggir á þessum at-
burðum en höfundur tekur sér
það skáldaleyfi sem hann þarf
til að móta listaverk úr þessum
efnivið. Einar hefur valið form
nóvellunnar, stuttrar skáldsögu
eða langrar smásögu, til að gera
þessu efni skil. Sagan er ein sam-
felld frásögn, gerist nánast öll
um borð á einum síðutogara, fyr-
ir utan stutt og meitluð endur-
lit af öðrum sviðum í huga sögu-
persóna. Þeir einstaklingar úr 32
manna áhöfn skipsins sem varp-
að er ljósi á og gerðir eru að eig-
inlegum persónum í sögunni eru
fáir en verða les-
andanum afar
eftirminnileg-
ir, þó líklega
enginn eins eft-
irminnilegur og
unglingurinn
Lárus sem af og
til tekur þriðju
persónu frásögn
sögunnar yfir í fyrstu persónu
frásögn sögumanns. Lárus þráði
að verða sjómaður – núna lend-
ir hann í þessum hremmingum.
Það er oftast markmið knöppu
frásagnarformanna, smásögu
og nóvellu, að segja sem mest
í sem fæstum orðum. Sjaldan
hefur það tekist eins glæsilega
og í þessu verki. Fyrir það fyrsta
skrásetur sagan eftirminnilegan
kafla úr þjóðarsögunni sem þarf
að varðveitast. Í annan stað inni-
heldur sagan prýðilega aðgengi-
lega og grípandi fræðslu um sjó-
sókn og skipakost fyrri tíðar. Í
þriðja lagi miðlar verkið sterkum,
sammannlegum tilfinningum á
meitlaðan og gífurlega áhrifa-
mikinn hátt. Hún sýnir hvern-
ig mannskepnan getur sýnt sín-
ar fegurstu hliðar í ómannlegu
andstreymi þar sem lífsspursmál
er að standa saman og fórna sér í
þágu heildarinnar. Hún lýsir karl-
mennsku gamla skólans í allra
besta skilningi orðsins.
Verkið er þrauthugsað og skrif-
að á afar fallegu og ríkulegu máli.
Um leið er textinn krefjandi. Það
eru langar lýsingar á íshröngli og
barningi við að berja ís af skipi.
Þannig er lesandinn dreginn inn
á sviðið vegna þess að hlutskipti
mannanna um borð er að berja
ís dag og nótt í örvæntingar-
fullri baráttu við dauðann. Setn-
ingarnar eru langar og það er
líka fyllilega í samræmi við heim
sögunnar, því tilveran við þessar
aðstæður er langdregin og reyn-
ir á þrautseigju meira en nokkuð
annað. Seiðmagn sögunnar leið-
ir lesandann yfir þessar hindran-
ir textans.
Höfundur þessarar bókaum-
sagnar er ekki ungur mað-
ur og eftir því sem árin líða les
hann bækur frekar með höfð-
inu en hjartanu. Æskufólk tek-
ur oft flugið með uppáhalds-
bókunum sínum en miðaldra
og aldraðir lesendur njóta verk-
anna fremur með vitsmununum.
Það er enginn löstur á bók þó að
hún hitti ekki þennan lesanda í
hjartastað. En einstaka sinnum
gerist það. Stormfuglar er þannig
bók. Hún gerði þennan lesanda
í senn meyran og afar glaðan.
Hann langaði til að hrópa að hún
væri meistaraverk. Tíminn mun
leiða í ljós hvort sú niðurstaða er
rétt. Í millitíðinni mega lesendur
þessarar greinar líta á hana sem
húrrahróp.
M
arrið í stigan-
um er fyrsta
bók Evu Bjargar
Ægisdóttur, 29
ára þriggja barna móð-
ur frá Akranesi. Hér er
um að ræða spennu-
sögu sem vann fyrstu
verðlaun í nýrri spennu-
sagnakeppni sem ber
heitið Svartfuglinn og höfundarnir
Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðar-
dóttir standa fyrir í samvinnu við
bókaforlagið Veröld.
Sögusviðið er Akranes en um
leið lýsir sagan mörgum neikvæð-
um hliðum smábæjarbrags sem
hugsanlega gætu átt við um hvaða
smábæjarsamfélag sem er. Klíku-
skapur, þagnarhyggja, slúður og
einelti eru meðal skuggahliðanna.
Ennfremur mætti segja að
sagan sé eins og skrifuð inn í þá
deiglu afhjúpana kynferðisbrota
sem kraumað hefur undanfarin
misseri. Ólýsanlegir glæpir gegn
börnum eru hér draugar fortíðar-
innar og tengjast morðinu sem
ráðgátan í sögunni snýst um.
Hér er fagmannlega að verki
staðið. Sögufléttan er fremur flók-
in en haganlega gerð og verkið
einkennist meðal annars af trú-
verðugri sálrænni innsýn, t.d. í lýs-
ingum á afleiðingum ofbeldis.
Marrið í stig-
anum er vönduð
saga en þrátt fyrir
að hún lýsi viður-
styggilegum glæp-
um er hún ekki
alltaf áhrifamik-
il og eitthvað veld-
ur því að kynferðis-
glæpirnir í bókinni
hreyfa ekki mikið
við manni, kannski
af því stefin eru of
kunnugleg úr bæði
fjölmiðlaumræðu
og öðrum skáld-
sögum, ekki síst spennusögum.
Eftirminnilegri eru sjúkdómsein-
kennin á smábæjarsamfélaginu,
baktalið og hvernig fólk situr uppi
með þá stöðu og það álit sem litla
samfélagið skaffaði því snemma
og það getur ekki brotist undan.
Stíllinn er einfaldur og hnökra-
lítill. Hversdagslýsingar eiga til að
vera klisjukenndar en þess á milli
flæðir textinn vel og sagan lifnar
við. Persónur eru trúverðugar en
ekki sérlega eftirminnilegar. Andi
sögunnar er gegnsýrður þjáningu.
Afgerandi kostir sögunnar eru
góð uppbygging og vel fléttuð ráð-
gáta með endalokum sem koma á
óvart. Í heildina vel samin saga og
miðað við byrjendaverk er bókin
vel heppnuð.
Fullkomin nóvella
Vel fléttuð ráðgáta
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Bækur
Stormfuglar
Höfundur: Einar Kárason
Útgefandi: Forlagið
124 bls.
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Bækur
Marrið í stiganum
Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir
Útgefandi: Veröld
384 bls.
Vinsælast í bíó
Helgina 18.-20. maí
1 Deadpool 2
2 Avengers: Infinity War
3 I Feel Pretty
4 Víti í Vestmannaeyjum
5 Overboard
6 Vargur
7 Peter Rabbit
8 Önd önd gæs
9 Bókmennta- og kartöflubökufélagið
10 The Big Race
Vinsælast á Spotify
Vikuna 14.-22. maí
1 This is America – Childish Gambino
2 Better Now – Post Malone
3 One Kiss – Calvin Harris
4 Nice for What – Drake
5 No Tears Left to Cry – Ariana Grande
6 God’s Plan – Drake
7 Psycho – Post Malone
8 Friends – Marshmello
9 X – Nicky Jam
10 The Middle – Zed
1 261 dagur – Kristborg Bóel
2 Kapítóla – Emma DEN Southworth
3 Dagar höfnunar – Elena Ferrante
4 Marrið í stiganum – Eva Björg Ægisdóttir
5 Þú og ég og allt hitt – Catherine Isaac
6 Í nafni sannleikans – Vivica Sten
7 Týnda systirin – B A Paris
8 Uppruni – Dan Brown
9 Bókmennta- og kartöflubökufélagið
10 Samfeðra – Steinunn G. Helgadóttir
Metsölulisti Eymundsson
Vikuna 14.-21. maí
menning