Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Side 36
25. maí 2018KYNNINGARBLAÐVeitingastaðir
Á Fish House í Grindavík er ljóst að fiskurinn og nálægðin við höfnina ræður ríkjum. Fiskur
er í fyrirrúmi á matseðlinum, þó að
þar sé fjölbreytt úrval annarra rétta.
Innréttingar, þar á meðal fiskitunnur
undir barborðinu, vísa til sjómennsk-
unnar.
Hjónin Kári Guðmundsson og
Alma Guðmundsdóttir opnuðu Fish
House fyrir tveimur árum síðan um
sjómannahelgina, en það hafði lengi
verið draumur þeirra að opna eigin
stað.
Matseðillinn er fjölbreyttur, en mis-
munandi seðlar eru í boði í hádeginu
og á kvöldin. „Við erum nýbyrjuð með
sérstakan hádegismatseðil,“ segir
Kári og meðal rétta þar eru fiskisúpa,
kjötsúpa, fiskur dagsins, fiskibollur,
heilgrilluð bleikja, svínasnitsel og
hamborgarar
Þegar umsagnir á Tripadvisor
eru skoðaðar má sjá að Fish House
er margrómað fyrir fish and chips
réttinn. „Þar höfum við náð að koma
okkur á kortið, það er mest seldi
rétturinn og mest talað um hann,“
segir Kári.
Humar, kótilettur, nautasteik, salöt
og eftirréttir; allir ættu að finna mat
við sitt hæfi, hvort sem borðað er í
hádegi eða um kvöld.
Þriggja daga afmælishelgi
Fish House opnaði sjómannahelgina
árið 2016 og fagnar því tveggja ára
afmæli í ár, fyrstu helgina
í júní þegar Grindvíkingar
halda sína árlegu bæj-
arhátíð, Sjóarann síkáta.
„Við lögðum áherslu
á að byggja staðinn
upp sem matsölustað
fyrst og fremst. Síðar
fórum við að bjóða upp
á tónlistarviðburði og
um Sjómannahelgina
munum við bjóða upp á
þrjá viðburði til að fagna
afmælinu,“ segir Kári.
Á fimmtudeginum kemur Sóli Hólm
og verður með uppistand, á föstu-
deginum verður Opið svið þar sem
gestum gefst kostur á að stíga á
svið og koma fram og á laugardeg-
inum kemur Bjartmar Guðlaugsson, en Fish house býður gestum
endurgjaldslaust á seinni tvo
viðburðina.
Ný og glæsileg heimasíða
Á heimasíðunni fishhouse.is
má sjá allar upplýsingar um
staðinn og matseðilinn sem
boðið er upp á, fróðleiksmola
um Grindavík og upplýs-
ingar um náttúruperlurnar á
Reykjanesi, sem er bara rétt
fyrir utan Grindavík. Skemmti-
legt er að skoða myndbönd á
heimasíðunni af Brimkatli og
Hópsnesi.
Það er tilvalið að gera sér
ferð til Grindavíkur, skoða
náttúrufegurðina sem
Reykjanesið býður upp á,
borða síðan á Fish House og
njóta skemmtilegra viðburða.
Fish House bar og grill er
að Hafnargötu 6 í Grindavík,
síminn er 426-9999 og net-
fangið er info@fishhouse.is.
Heimasíða: fishhouse.is
FISH HOuSe:
„Borðaðu fisk, lifðu lengi
og elskaðu af krafti“