Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Page 36
 25. maí 2018KYNNINGARBLAÐVeitingastaðir Á Fish House í Grindavík er ljóst að fiskurinn og nálægðin við höfnina ræður ríkjum. Fiskur er í fyrirrúmi á matseðlinum, þó að þar sé fjölbreytt úrval annarra rétta. Innréttingar, þar á meðal fiskitunnur undir barborðinu, vísa til sjómennsk- unnar. Hjónin Kári Guðmundsson og Alma Guðmundsdóttir opnuðu Fish House fyrir tveimur árum síðan um sjómannahelgina, en það hafði lengi verið draumur þeirra að opna eigin stað. Matseðillinn er fjölbreyttur, en mis- munandi seðlar eru í boði í hádeginu og á kvöldin. „Við erum nýbyrjuð með sérstakan hádegismatseðil,“ segir Kári og meðal rétta þar eru fiskisúpa, kjötsúpa, fiskur dagsins, fiskibollur, heilgrilluð bleikja, svínasnitsel og hamborgarar Þegar umsagnir á Tripadvisor eru skoðaðar má sjá að Fish House er margrómað fyrir fish and chips réttinn. „Þar höfum við náð að koma okkur á kortið, það er mest seldi rétturinn og mest talað um hann,“ segir Kári. Humar, kótilettur, nautasteik, salöt og eftirréttir; allir ættu að finna mat við sitt hæfi, hvort sem borðað er í hádegi eða um kvöld. Þriggja daga afmælishelgi Fish House opnaði sjómannahelgina árið 2016 og fagnar því tveggja ára afmæli í ár, fyrstu helgina í júní þegar Grindvíkingar halda sína árlegu bæj- arhátíð, Sjóarann síkáta. „Við lögðum áherslu á að byggja staðinn upp sem matsölustað fyrst og fremst. Síðar fórum við að bjóða upp á tónlistarviðburði og um Sjómannahelgina munum við bjóða upp á þrjá viðburði til að fagna afmælinu,“ segir Kári. Á fimmtudeginum kemur Sóli Hólm og verður með uppistand, á föstu- deginum verður Opið svið þar sem gestum gefst kostur á að stíga á svið og koma fram og á laugardeg- inum kemur Bjartmar Guðlaugsson, en Fish house býður gestum endurgjaldslaust á seinni tvo viðburðina. Ný og glæsileg heimasíða Á heimasíðunni fishhouse.is má sjá allar upplýsingar um staðinn og matseðilinn sem boðið er upp á, fróðleiksmola um Grindavík og upplýs- ingar um náttúruperlurnar á Reykjanesi, sem er bara rétt fyrir utan Grindavík. Skemmti- legt er að skoða myndbönd á heimasíðunni af Brimkatli og Hópsnesi. Það er tilvalið að gera sér ferð til Grindavíkur, skoða náttúrufegurðina sem Reykjanesið býður upp á, borða síðan á Fish House og njóta skemmtilegra viðburða. Fish House bar og grill er að Hafnargötu 6 í Grindavík, síminn er 426-9999 og net- fangið er info@fishhouse.is. Heimasíða: fishhouse.is FISH HOuSe: „Borðaðu fisk, lifðu lengi og elskaðu af krafti“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.