Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 45
25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Viðhald og framkvæmdir
Framúrskarandi efni
og lausnir frá Weber
Múrefni ehf. er fraMsækið fjölskyldufyrirtæki
Múrefni ehf. er framsækið fjölskyldufyrirtæki í Mosfells-bænum sem sérhæfir sig í að
miðla hágæða múrvörum, tæknilaus-
um og gólfefnum frá þekktum fram-
leiðendum í evrópu inn á íslenska
markaðinn með sölu, þjónustu og
faglegri ráðgjöf.
Markmið fyrirtækisins er að veita
framúrskarandi þjónustu og miðla
þekkingu sinni sérstaklega til fag-
manna og viðskiptavina til að tryggja
hámarks árangur og endingu á þeim
vörum sem Múrefni býður upp á. til
að ná þessum markmiðum starfar
Múrefni náið með sínum birgjum
og fylgist vel með öllum nýjungum
á markaðnum sem geta nýst til að
leysa þau vandamál sem iðnaðar-
menn glíma við í sínum störfum.
Weber er merkið
Múrefni ehf. flytur mest inn frá breska
múrefnaframleiðandanum Weber
ltd. í Bretlandi sem býður uppá sér-
hæfðar lausnir fyrir byggingageirann
og fjölbreytt úrval af efni til þjónustu
við samgöngumannvirki, flugvelli,
orkuver og framleiðslufyrirtæki.
tæknimenn Weber uk hafa yfirgrips-
mikla þekkingu og reynslu af notkun á
efnunum sem þeir miðla inn á mark-
aðinn hér.
Weber-uk múrklæðningar hafa
verið aðalsmerki Múrefna ehf. hingað
til og hefur Weber therm múrkerfið
verið hér á markaðnum á Íslandi í
nær 20 ár en í marga áratugi í Bret-
landi og víðar í evrópu. klæðningarn-
ar hafa reynst afar vel við þau erfiðu
veðurskilyrði sem ríkja hér á landi en
lykillinn að velgengni klæðninganna
hefur ekki síst verið náið samstarf við
hönnuði, verktaka og framleiðendur
þar sem réttum upplýsingum er miðl-
að um vinnubrögð. flestir fagmenn
sem hafa byrjað að nota Weber
múrklæðningar velja þær aftur vegna
gæða og vinnslueiginleika. Weber
býður upp á ótal möguleika varðandi
endanlega áferð og liti þar sem m.a.
er hægt að velja um sléttpússaða
pússningaráferð, sílikonmúr í kornóttri
áferð, steiningarsalla og skrapmúr
með sandsteinsáferð. yfir pússningu
kemur svo Weber málningarkerfi sem
sérhannað er yfir múrkerfi af þessum
toga. Múrefni ehf. aðstoðar með hjálp
Weber verkfræðiskrifstofur, hönnuði
og húsbyggjendur við lausnir og
útfærslur til að aðlaga múrkerfið að
húsinu og ná sem bestum árangri.
Weber-uk hefur í áratugi framleitt
flotefni fyrir byggingamarkaðinn og
hefur Múrefni selt flotefnin á Íslandi í
hartnær 20 ár. efnin henta vel undir
öll helstu gólfefni og lökk fyrir heimili
eða í iðnaði og hafa flotefni leyst af
hólmi hina hefðbundnu ílögn vegna
þæginda í vinnslu og meiri hraða í
þornun.
Múr- og viðgerðarblöndur frá
Weber-uk hafa verið notaðar á
Íslandi í yfir 35 ár. Viðgerðarefn-
in voru m.a. notuð á sínum tíma til
viðgerða og viðhalds á mannvirkjum
tengdum bandaríska varnarliðinu
enda sérhæfir framleiðandinn sig
í sérhæfðum efnum fyrir flugvelli,
samgöngurmannvirki, orkuver og
hafnarmannvirki auk hefðbundinna
húsbygginga. Weber býður uppá
heildstætt kerfi fyrir hin ýmsu vanda-
mál tengd mannvirkjum.
Góður liðsauki
stofnendur fyrirtækisins eru þeir og
sigurður hansson, dúklagningameist-
ari og faðir hans, hans Þór jensson,
sem einnig er dúklagningarmeistari.
eiginkona sigurðar, alda kristinsdóttir
starfar einnig hjá fyrirtækinu í dag
ásamt sigurði. alda sér um gólfefna-
deild fyrirtækisins en fyrir nokkrum
árum byrjuðu þau að flytja inn Vín-
ylparket sem hefur slegið rækilega í
gegn og náð miklum vinsældum hér
á landi.
nánari upplýsingar um vínylparket
má nálgast í heimasíðunni http: //
vinylparket.is.
fyrirtækið stendur í stórræðum
þessa dagana og flytur sig um set
í Mosfellsbænum yfir í desjamýri 8,
í nýtt og betra húsnæði og verður
sýningaraðstaðan bætt til muna auk
betri aðstöðu til að taka á móti við-
skiptavinum.
einnig hefur nýr starfsmaður bæst
í starfsmannahóp Múrefna, Ásgeir
stefánsson, en hann hefur víðtæka
reynslu af sölu og þjónustu múrefna
og tæknilausna við fagmenn. Ásgeir
hefur starfað við sölu og þjónustu á
múrvörum og byggingavörum í rúm
15 ár og mun reynsla hans nýtast
fyrirtækinu vel í áframhaldandi þróun
og þjónustu við fagmenn og verk-
takafyrirtæki.
Heimasíðan er http://murefni.is