Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 48
Viðhald og framkvæmdir 25. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Lagnafóðrun var stofnuð af Svan-björgu Vilbergsdóttur
pípulagningameistara.
Fyrirtækið hefur stækkað
ört. Eins og nafnið gefur til
kynna þá er meginmarkmið
starfseminnar að fóðra
gamlar og/eða skemmdar
frárennslislagnir.
Gamlar steinlagnir
Hús sem eru byggð fyr-
ir 1980 eru komin á
tíma hvað varðar frá-
rennslislagnir. Í flestum
tilfellum eru steinlagnir
undir húsum frá þess-
um tíma en meðal líftími
steinlagna er 40-50
ár. Það er mikilvægt að
bregðast við áður en það
verður of seint því það
getur verið stórmál að
skipta út gömlum frá-
rennslislögnum sem felur
í sér niðurbrot og mikið
rask fyrir húseigendur og
jafnvel fjarveru frá heim-
ilum í nokkrar vikur ef svo
ber undir.
Í upphafi skal
endinn skoða
Þeir sem eru að endur-
nýja eldhús og baðher-
bergi ættu að láta mynda hjá sér
lagnirnar áður en hafist er handa!
Við komum alltof oft að húsum þar
sem búið er að endurnýja baðher-
bergi og ástand lagna hefur ekki verið
kannað áður og í mörgum tilfellum
þarf að brjóta allt upp aftur.
Þeir sem hyggja á fasteignakaup
ættu alltaf að láta mynda lagnir áður
en gengið er frá kaupum á fasteign.
Fóðrun
Það sem kallast fóðrun í tengslum
við skólplagnir og pípulagnir er þegar
skemmd eða slitin lögn er endurnýjuð
með því að búa til nýja lögn innan
í þeirri gömlu. Nokkrar aðferðir eru
mögulegar við fóðrun lagna en hér á
landi er fóðrun með sokk algengust.
Í láréttum lögnum s.s. hefðbundn-
um skólplögnum undir húsum hef-
ur reynslan sýnt að sokkaaðferðin
hentar betur við íslenskar aðstæður.
Ein helsta ástæðan fyrir því er sú að
skólplögnina þarf að þrífa og þurrka
að mestu áður en fóðrun fer fram.
Þar sem skólplagnir á Íslandi, sem eru
orðnar 40 ára og eldri, eru úr steypu
(steypurör) og eru oft illa farnar með
stórum götum á og liggja oftar en
ekki undir grunnvatnsstöðu, þá er
þurrkun rörsins alla jafna ógerleg.
Þessi ástæða gerir það að
verkum að sprautuaðferð við
fóðringar er oft illframkvæm-
anleg. Lagnafóðrun notast því
eingöngu við sokkaaðferðina
við lagfæringar og endurnýjun
skólplagna í grunni húsa.
Greinasokkar
Eitt mikilvægasta atriði fóðr-
unar er að setja svokallaða
greinasokka í allar greinar á
fóðruðum lögnum og er Lagnafóðrun
með einkaleyfi á aðferð sænska fyrir-
tækisins Repiper AB.
Aðferðin
Áður en verkið hefst eru allir íbúar
upplýstir um hvað sé í vændum, farið
yfir tímasetningar og verkferla og
gerð verkáætlun í samráði við íbúa.
Þegar komið er á verkstað er hlífðar-
teppi lagt á gólf áður en byrjað er að
koma inn með verkfæri. Allir við-
kvæmir hlutir eru huldir með hlífðar-
plasti áður en verkið hefst.
Áður en sjálf fóðringarvinnan hefst
þarf að hreinsa lagnirnar. Það fer
þannig fram að allar lagnir eru mynd-
aðar og metið hvaða hreinsunar-
aðferð þarf að beita á hverjum stað
fyrir sig, t.d. háþrýstiþvotti eða öðrum
aðferðum. Þessi vinna fer fram frá
hreinsibrunnum, klósettum og niður-
föllum, allt eftir aðstæðum á hverjum
stað fyrir sig.
Næst eru gömlu lagnirnar fóðr-
aðar að innan með 3-7 mm epoxy-
sokk, allt eftir aðstæðum hverju sinni.
Hægt er að fóðra lagnir frá 50 mm
upp í 600 mm.
Sokknum er blásið inn í lagnirn-
ar, fóðrunarefnið þrýstist út í gömlu
lögnina og myndar þannig nýja lögn
innan í gamla rörinu. Eftir að fóðrið er
komið á réttan stað tekur það u.þ.b.
eina klukkustund að harðna. Næsta
skref er að að opna allar hliðarlagnir
sem tengjast inn á viðkomandi lögn.
Eftir þetta er komin 100% þétt og
sjálfberandi lögn.
Sjá nánar á lagnafodrun.is
Sími 578 8440
Mikilvægt
að bregðast
tímanlega við
LAgNAFóðRuN: