Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Side 49
25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Námsframboð á háskólastigi og fjarnám
Miðstöð síMenntunar á suðurnesjuM:
Stóraukið aðgengi að námi
Við lærum svo lengi sem við lifum og á undanförnum ára-tugum hefur orðið sú bylting
á afstöðu íslendinga til náms að við
sækjum okkur menntun á öllum aldri.
Miðstöð símenntunar á suðurnesj-
um – Mss – var stofnuð fyrir ríflega
20 árum og með starfsemi hennar
hefur valkostum í menntunarmál-
um á suðurnesjum fjölgað mikið og
aðgengi almennings á svæðinu til
menntunar stóraukist. starfsemin
hefur vaxið jafnt og þétt og náms-
framboðið tekið mið af þörfum við-
skiptavina hverju sinni.
Mss býður uppá margvíslegar
námsleiðir, starfstengdar og í al-
mennum bóklegum greinum. Lögð er
áhersla á sveigjanlegt nám þar sem
nemendur geta nálgast námsefni á
netinu, óháð tíma og rúmi. undanfar-
in ár hefur þróun kennsluhátta tekið
markvissum breytingum og í dag
eru námsleiðir kenndar í dreifinámi,
fjarnámi og samkvæmt hugmyndum
vendináms.
Hér gefur að líta yfirlit yfir helstu
námsleiðir hjá MSS:
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám er
tveggja anna nám. námsleiðin hefur
verið kennd í nokkur ár hjá Mss og
miðar að því að þátttakendur útbúi
viðskiptaáætlun fyrir starfandi fyrir-
tæki eða hugmynd að fyrirtæki.
Brúarnám er heiti náms í heilbrigð-
is- og menntatengdum störfum
en námsleiðir í brúarnámi eru fyrir
leikskólaliða, stuðningsfulltrúa og
félagsliða.
Skrifstofuskólinn er sérhæft nám
fyrir fólk sem hefur áhuga á að ná
sér í góðan undirbúning fyrir skrif-
stofustörf eða hugar að frekara námi
á því sviði.
að námi loknu eiga námsmenn að
vera færir um að starfa á skrifstofu,
hafa tileinkað sér sjálfstæð vinnu-
brögð, hafa góða innsýn í rekstur
fyrirtækja og góða bókhaldsþekkingu.
Félagsmála- og tómstundabrú er
góður undirbúningur fyrir þá sem
hafa áhuga á að vinna við, skipu-
leggja eða stjórna frístundastarfi
hjá öllum aldurshópum. starfsvett-
vangur þeirra sem ljúka félags- og
tómstundanámi er einkum félagsmið-
stöðvar, íþrótta- og æskulýðsfélög og
önnur félagasamtök.
Menntastoðir eru undirbúningsnám
fyrir frumgreinadeildir Keilis, Bifrastar
og H.r. auk þess má meta námið sem
hluta af bóklegum greinum í iðnnámi.
skráning er hafin á allar námsleiðir
Mss.
nánari upplýsingar á www.mss.is.
Veruleikakassinn var unninn af nemendum Mss
og samvinnu sem er starfsendurhæfingardeild
innan Mss en Mss fagnar 20 ára afmæli um
þessar mundir og samvinna 10 ára afmæli.
í desember
síðastliðnum
útskrifuðust
55 nemend-
ur úr ýmsum
námsleiðum.