Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Page 70
70 fólk 25. maí 2018
á framboðslistunum
„Fræga fólkið“
Þann 26. maí ganga kjósendur að
kjörborðinu og velja fulltrúa sína í
sveitarstjórnir. Á framboðslistum
er glás úrvalsfólks og vitaskuld
einhverjir sem skarað hafa fram
úr eða vakið athygli á öðrum
sviðum þjóðlífsins. DV tók saman
þekktustu nöfnin.
kristinn@dv.is
Grínistarnir Á lista Kvennahreyfingarinnar má finna grínista af gamla og nýja skólanum. Samfélagsmiðlastjarnan
með rauða hárið, Bylgja Babýlons, er þar í 12. sæti og hin margreynda Edda Björgvinsdóttir í 22. sæti, en hún var á lista Samfylkingarinn-
ar í síðustu alþingiskosningum. Sama hvernig fer á laugardag verður augljóslega glatt á hjalla í herbúðum Kvennahreyfingarinnar.
Smink og fjölskylduhjálp
Hárgreiðslu- og förðunarmeistarinn Karl Berndsen situr í 2. sæti lista Flokks fólksins í
þeirra fyrstu borgarstjórnarkosningum. Líf Karls var dans á rósum en umturnaðist þegar
hann varð öryrki eftir krabbamein og ákvað hann því að beita sér fyrir þá sem hafa orðið
undir í þjóðfélaginu. Ásgerður Jóna, sem er í 3. sæti, þekkir þá baráttu vel enda hefur hún
séð um að útdeila matargjöfum og fleiru sem formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.
Stjörnulöggur í Hafnarfirði
Óhætt er að segja að tveir af landsins þekktustu laganna vörðum takist á í Hafnarfirði.
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, skipar 2. sæti Bæjarlistans en
hann hefur áður reynt fyrir sér með Framsóknarflokknum og var formaður Samstöðu
eftir að Lilja Mósesdóttir sagði af sér. Hjá Framsóknarflokknum má finna Guðmund
Fylkisson í 13. sætinu en hann hefur verið mikið í fjölmiðlum í tengslum við ungmenni
í vanda. Guðmundur tekur á sig það erfiða verkefni að hafa uppi á krökkunum, vinna
traust þeirra og bjarga ef hann getur.
Boltastjórarnir bítast í Kópavogi
Merkileg tilviljun átti sér stað í Kópavogi þegar þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar í boltaíþróttum röðuðust á lista og enginn í sama flokki.
Geir Magnússon, sem áður stýrði Knattspyrnusambandi Íslands er oddviti Miðflokksins. Einar Þorvarðarson, fyrrverandi markvörður og
stjóri Handknattleikssambandsins er í öðru sæti hjá sameiginlegum flokki Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Pétur Hrafn Sigurðsson, fyrrver-
andi stjóri Körfuknattleikssambandsins leiðir Samfylkinguna. Hver þeirra mun spila djarfasta sóknarboltann mun koma í ljós á laugardag.
Spyrillinn og
rokkarinn
Vinstri Græn hafa iðulega haft glás af þekkt-
um menningarfrömuðum á sínum listum í
borginni og árið í ár er engin undantekning.
15. sætið skipar rokkarinn og Þingeyingurinn
Þráinn Árni Baldvinsson sem kennir börnum
á daginn og þeytir flösu með Skálmöld á
kvöldin. Í 23. sæti situr Stefán Pálsson,
spurningasjéní og bjóráhugamaður. Eigin-
kona Stefáns er Steinunn Þóra Árnadóttir,
sem situr á Alþingi fyrir sama flokk.
Dívan
Eftir slakt gengi Sjálfstæðisflokksins í
síðustu kosningum og erfiðleika borgarfull-
trúanna við að aðgreina sig frá meirihlutan-
um á sannfærandi hátt var ákveðið að gefa
listanum nýja ásýnd. Þar fara nú fremst í
flokki Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir
sem hafa verð vel kynnt borgarbúum en
færri vita að söngdívan Helga Möller tók
41. sæti listans. Helga olli fjaðrafoki fyrir
skemmstu vegna hispurslausra orða um ís-
lenska framlagið til Eurovision og má búast
við sams konar hreinskilni í sal borgarstjórn-
ar, nái hún kjöri.
Sagnfræðingurinn
og sjónvarpsstjarnan
Guðjón Friðriksson er manna fróðastur um sögu Reykjavíkur og hefur heillað landann upp úr
skónum í Kiljunni þar sem hann leiðir áhorfendur um fortíðina. Skipar hann nú 21. sæti á lista
Samfylkingarinnar í borginni. Aðeins neðar á listanum, í 34. sæti, má finna aðra persónu sem hrifið
hefur áhorfendur Ríkissjónvarpsins, Steinunni Ásu Þorvaldsdóttur, sem stýrir þáttunum Með
okkar augum. Steinunn Ása, sem er með þroskahömlun, var áður frambjóðandi hjá Bjartri framtíð.
Byltingarkonan
Það er stígandi í framboði Sósíalista og þeir hafa náð að kynna oddvita sinn, Sönnu
Magdalenu Mörtudóttur, ágætlega. En í 6. sæti á listanum er baráttukona sem nýverið hristi
upp í atvinnulífinu þegar hún var kjörin formaður Eflingar með miklum glæsibrag. Sólveig
Anna Jónsdóttir var kjörin með 80 prósent atkvæða þá. Ef Sósíalistar ná manni inn í borgar-
stjórn yrði það álíka glæsilegur árangur.