Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 70
70 fólk 25. maí 2018 á framboðslistunum „Fræga fólkið“ Þann 26. maí ganga kjósendur að kjörborðinu og velja fulltrúa sína í sveitarstjórnir. Á framboðslistum er glás úrvalsfólks og vitaskuld einhverjir sem skarað hafa fram úr eða vakið athygli á öðrum sviðum þjóðlífsins. DV tók saman þekktustu nöfnin. kristinn@dv.is Grínistarnir Á lista Kvennahreyfingarinnar má finna grínista af gamla og nýja skólanum. Samfélagsmiðlastjarnan með rauða hárið, Bylgja Babýlons, er þar í 12. sæti og hin margreynda Edda Björgvinsdóttir í 22. sæti, en hún var á lista Samfylkingarinn- ar í síðustu alþingiskosningum. Sama hvernig fer á laugardag verður augljóslega glatt á hjalla í herbúðum Kvennahreyfingarinnar. Smink og fjölskylduhjálp Hárgreiðslu- og förðunarmeistarinn Karl Berndsen situr í 2. sæti lista Flokks fólksins í þeirra fyrstu borgarstjórnarkosningum. Líf Karls var dans á rósum en umturnaðist þegar hann varð öryrki eftir krabbamein og ákvað hann því að beita sér fyrir þá sem hafa orðið undir í þjóðfélaginu. Ásgerður Jóna, sem er í 3. sæti, þekkir þá baráttu vel enda hefur hún séð um að útdeila matargjöfum og fleiru sem formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. Stjörnulöggur í Hafnarfirði Óhætt er að segja að tveir af landsins þekktustu laganna vörðum takist á í Hafnarfirði. Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, skipar 2. sæti Bæjarlistans en hann hefur áður reynt fyrir sér með Framsóknarflokknum og var formaður Samstöðu eftir að Lilja Mósesdóttir sagði af sér. Hjá Framsóknarflokknum má finna Guðmund Fylkisson í 13. sætinu en hann hefur verið mikið í fjölmiðlum í tengslum við ungmenni í vanda. Guðmundur tekur á sig það erfiða verkefni að hafa uppi á krökkunum, vinna traust þeirra og bjarga ef hann getur. Boltastjórarnir bítast í Kópavogi Merkileg tilviljun átti sér stað í Kópavogi þegar þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar í boltaíþróttum röðuðust á lista og enginn í sama flokki. Geir Magnússon, sem áður stýrði Knattspyrnusambandi Íslands er oddviti Miðflokksins. Einar Þorvarðarson, fyrrverandi markvörður og stjóri Handknattleikssambandsins er í öðru sæti hjá sameiginlegum flokki Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Pétur Hrafn Sigurðsson, fyrrver- andi stjóri Körfuknattleikssambandsins leiðir Samfylkinguna. Hver þeirra mun spila djarfasta sóknarboltann mun koma í ljós á laugardag. Spyrillinn og rokkarinn Vinstri Græn hafa iðulega haft glás af þekkt- um menningarfrömuðum á sínum listum í borginni og árið í ár er engin undantekning. 15. sætið skipar rokkarinn og Þingeyingurinn Þráinn Árni Baldvinsson sem kennir börnum á daginn og þeytir flösu með Skálmöld á kvöldin. Í 23. sæti situr Stefán Pálsson, spurningasjéní og bjóráhugamaður. Eigin- kona Stefáns er Steinunn Þóra Árnadóttir, sem situr á Alþingi fyrir sama flokk. Dívan Eftir slakt gengi Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum og erfiðleika borgarfull- trúanna við að aðgreina sig frá meirihlutan- um á sannfærandi hátt var ákveðið að gefa listanum nýja ásýnd. Þar fara nú fremst í flokki Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sem hafa verð vel kynnt borgarbúum en færri vita að söngdívan Helga Möller tók 41. sæti listans. Helga olli fjaðrafoki fyrir skemmstu vegna hispurslausra orða um ís- lenska framlagið til Eurovision og má búast við sams konar hreinskilni í sal borgarstjórn- ar, nái hún kjöri. Sagnfræðingurinn og sjónvarpsstjarnan Guðjón Friðriksson er manna fróðastur um sögu Reykjavíkur og hefur heillað landann upp úr skónum í Kiljunni þar sem hann leiðir áhorfendur um fortíðina. Skipar hann nú 21. sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni. Aðeins neðar á listanum, í 34. sæti, má finna aðra persónu sem hrifið hefur áhorfendur Ríkissjónvarpsins, Steinunni Ásu Þorvaldsdóttur, sem stýrir þáttunum Með okkar augum. Steinunn Ása, sem er með þroskahömlun, var áður frambjóðandi hjá Bjartri framtíð. Byltingarkonan Það er stígandi í framboði Sósíalista og þeir hafa náð að kynna oddvita sinn, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, ágætlega. En í 6. sæti á listanum er baráttukona sem nýverið hristi upp í atvinnulífinu þegar hún var kjörin formaður Eflingar með miklum glæsibrag. Sólveig Anna Jónsdóttir var kjörin með 80 prósent atkvæða þá. Ef Sósíalistar ná manni inn í borgar- stjórn yrði það álíka glæsilegur árangur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.