Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Page 73
25. maí 2018 fréttir 73
Borgarmálin, söngur og dramatískt atriði úr Macbeth
fremur pepperoni, gráðaostur og
ananas. Prófa það. Það er mjög gott.“
Borgarlínuperri
Á miðvikudagsmorgun mætti
Dóra Björt Guðjónsdóttir, odd-
viti Pírata, og Kjartan spurði hvort
eðlilegt væri að selja 400 milljón
króna íbúðir á meðan fólk byggi í
tjöldum í Laugardalnum.
„Ef einhver vill kaupa svo dýrar
íbúðir er þeim frjálst að gera það.
Ég hef ekki efni á að kaupa mér
íbúð og flestir í Pírötum eru ungt
og efnaminna fólk. Við höfum sett
það á oddinn að byggja minna
húsnæði sem hentar ungu fólki og
það er verið að gera það núna.“
Aðalsteinn spurði hvort sam-
starf við Sjálfstæðisflokkinn kæmi
til greina.
„Traust er undirstaðan að góðu
samstarfi og við getum unnið með
öllum þeim sem eru ekki blóðugir
upp að öxlum af spillingarmálum.
Þess vegna er samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn útilokað núna.“
Gylfi og Guðni spurðu um borg-
arlínuna og Dóra viðurkenndi að
vera „borgarlínuperri“.
Egill spurði hvað Dóra tæki í
bekk og svarið var:
„Ég veit það ekki, ég tek aldrei
bekk. En ég er samt mjög sterk.“
Einn daginn verður
leikskólinn gjaldfrjáls
Síðdegis á miðvikudag settist Líf
Magneudóttir, oddviti Vinstri
Grænna, í stólinn og Bjarki Þór
Grönfeldt opnaði með spurningu
um hvort stytting vinnuvikunnar
yki lífsgæði borgarbúa.
„Já, rannsóknir hafa sýnt það
og að ánægt starfsfólk sem er ekki
undir álagi eykur framleiðni. Þetta
var Vinstri Græn tillaga frá 2014 og
nú erum við að fara í annan fasa
og munum stytta hjá tvö þúsund
manns.“
Elís spurði hvað borgin gæti
gert fyrir barnafjölskyldur, en eitt
helsta loforð flokksins fyrir síðustu
kosningar var gjaldfrjálsir leik-
skólar. Líf nefndi afslætti á ýmsum
sviðum og lækkun gjaldskrár.
„Við erum í meirihlutasam-
starfi með flokkum sem aðhyllast
ekki sömu hugmyndafræði. En við
lækkuðum leikskólagjöldin um
85 þúsund krónur á ári. Við mun-
um halda áfram að lækka og einn
daginn, sannaðu til, verður leik-
skólinn gjaldfrjáls.“
Lilja Katrín bað Líf að sýna
leyndan hæfileika í beinni og Líf
flutti runu úr Macbeth á tilfinn-
ingaþrunginn máta.
„Hás er hrafninn sem klakar
mér um Dúnkans feigðarför.“
Þurfum skatta frá hinum ríku
Sanna Magdalena Mörtudóttir
frá Sósíalistaflokknum söng upp-
áhalds lagið sitt, Survivor með
Destiny´s Child, fyrir áhorfendur á
fimmtudagsmorgun. Það var Jón-
atan sem spurði.
Halldóra spurði hvaða vel-
ferðarúrræði Sósíalistar ætluðu
að bjóða upp á og hvernig ætti að
fjármagna þau.
„Hér er rekin láglaunastefna
og það er hægt að ráðast strax í að
hækka laun hjá borginni. Við þurf-
um samstillt átak með Alþingi og
verkalýðshreyfingunni og við þurf-
um útsvar, skatta frá hinum ríku.
Sem dæmi þá bera fjármagnstekj-
ur ekki útsvar líkt og launatekjur.“
Sólmundur spurði hvað flokk-
urinn ætlaði að gera fyrir innflytj-
endur.
„Ólíkt öðrum flokkum höf-
um við stillt innflytjendum upp á
lista og við erum fólkið sem höfum
upplifað jaðarsetningu og mis-
munun. Það þarf að gera innflytj-
endum auðveldara fyrir, til dæmis
með þýðingu upplýsinga.“
Borgarlínubjórinn bruðl
Í hádeginu á fimmtudag mætti Vig-
dís Hauksdóttir frá Miðflokknum en
hún var þekkt fyrir að grandskoða öll
útgjöld sem formaður fjárlaganefnd-
ar Alþingis. Þess vegna spurði Val-
gerður hvar hún myndi skera niður í
stjórnsýslu borgarinnar.
„Til dæmis með því að stokka
upp nefndaskipan og sviðin hjá
borginni. Ég get nefnt dæmi um
bruðl þegar borgin tók þátt í ráð-
stefnu í Laugardalnum og tólf millj-
ónir af útsvarstekjum voru notað-
ar til að framleiða bjór til að kynna
Borgarlínuna. Þetta eru laun tveggja
grunnskólakennara. Annað dæmi
er listaverk á Sæbrautinni sem ver-
ið er að kaupa fyrir þrjátíu milljónir.“
Vigdís lýsti því þegar hún fór í
fallhlífarstökk fyrir málstaðinn.
„Ég var ekki hrædd við flugið
og ekki við stökkið. Ég var hrædd
við að fallhlífin myndi ekki opnast.
Mér leið mjög undarlega í heilan
dag eftir þetta og svolítið eins og
ég væri í’ðí.“ n
Bíldshöfða 12 / S. 587 6688 / fanntofell.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í FRAMLEIÐSLU
Á FORMBEIGÐUM BORÐPLÖTUM