Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Side 7

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Side 7
7Ljósmæðrablaðið - desember 2015 R I T R Ý N D G R E I N ÚTDRÁTTUR Átröskun er alvarlegur geðsjúkdómur sem leggst oftast á konur á barneignaraldri. Meðgangan er viðkvæmur tími og getur átröskun verið áhrifavaldur á heilsu móður og barns. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að skoða samband átröskunar á meðgöngu við fylgikvilla meðgöngu og útkomuþætti fæðingar. Leitað var að rannsóknarheimildum í gagnasöfnum PubMed, Cinahl og Scopus og með því að skoða heimildaskrár greina sem fundust. Úr þeirri leit voru 16 greinar sem byggja á samanburðar- rannsóknum metnar nothæfar. Meginniðurstöður eru að rannsóknum ber ekki saman um áhrif átröskunar á meðgöngu og fæðingu. Sterkustu tengsl fundust milli átröskunar á meðgöngu og fæðingarþyngdar þar sem tíu af tólf rannsóknum sýna að átröskun móður getur haft áhrif á fæðingar- þyngd barns. Hvað varðar önnur áhrif á meðgöngu og útkomu fæðingar eru rannsóknarniðurstöðurnar misvísandi. Sjö af þrettán rannsóknum sýndu að konum með átröskun er hættara við að fæða fyrir tímann og fjórar af sjö rannsóknum sýna að fósturlát er algengara hjá konum með einhverja tegund af átröskun. Konur með átröskunarsjúkdóma bera það ekki endilega utan á sér og tilhneiging er til að fela sjúkdóminn. Ljósmæður eru í lykilhlut- verki þegar kemur að greiningu átröskunar á meðgöngu og skoða mætti hvort gagnlegt væri að taka upp skimun fyrir átröskunarein- kennum og þá með hvaða hætti. Hins vegar er frekari rannsókna þörf á áhrifum átröskunar á fylgikvilla meðgöngu og útkomu fæðingar. Snið rannsóknanna sem hér voru til skoðunar var mismunandi og þar með talið umfang og fjöldi þátttakenda og styrkur rannsóknanna í mörgum tilvikum ekki nægur til að draga raunhæfar ályktanir. Lykilorð: Átraskanir, meðganga, fæðing, nýburi, fræðileg samantekt. ABSTRACT Eating disorders are serious psychiatric disorders that commonly occur in women of childbearing age. Pregnancy is a vulnerable time where eating disorders can be influential for the health of both mother and child. The purpose of this literature review was to assess the relations- hip between eating disorders during pregnancy with complications during pregnancy and birth outcomes. A search was conducted using Pub Med, Cinahl and Scopus and references of selected articles reviewed. Sixteen comparative studies were found and used. The main findings are that the results of the impact of eating disorders on pregnancy and birth are inconclusive. Ten out of twelve studies showed that eating disorders seem to affect the neonatal birth weight. The effects on other outcomes of pregnancy and birth are inconclusive. Seven out of thirteen studies showed that women with eating disorders are more likely to give premat- ure birth and four out of seven studies that miscarraige is more prevalent among women with some type of eating disorder. Women with eating disorders are not easily detected and they tend to hide their disorder. Midwives are in a key postition when it comes to diagnosing eating disorders during pregnancy. The usefulness of screening for eating disorders during pregnancy needs to be discussed and if useful, how it should be performed. The design of the studies included in the literature review was different, regarding scope and sample sizes. In many of the studies, the strength was not sufficient to make any reasonable conclusions. Keywords: Eating disorder, pregnancy, birth, neonate, literature review. Áhrif átröskunar á meðgöngu og fæðingu FRÆÐILEG SAMANTEKT Fyrirspurnir Valgerður Lísa Sigurðardóttir valgerds@landspitali.is Arna Ingimundardóttir, hjúkrunarfræðingur BSc, Landspítala Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðingur PhD, Háskóla Íslands, Landspítala Valgerður Lísa Sigurðardóttir, sérfræðiljósmóðir MSc, og klínískur lektor Landspítala Sigríður Arna Júlíusdóttir, hjúkrunarfræðingur BSc, Landspítala

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.