Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 7
7Ljósmæðrablaðið - desember 2015
R I T R Ý N D G R E I N
ÚTDRÁTTUR
Átröskun er alvarlegur geðsjúkdómur sem leggst oftast á konur á
barneignaraldri. Meðgangan er viðkvæmur tími og getur átröskun
verið áhrifavaldur á heilsu móður og barns. Tilgangur þessarar
fræðilegu samantektar var að skoða samband átröskunar á
meðgöngu við fylgikvilla meðgöngu og útkomuþætti fæðingar.
Leitað var að rannsóknarheimildum í gagnasöfnum PubMed,
Cinahl og Scopus og með því að skoða heimildaskrár greina sem
fundust. Úr þeirri leit voru 16 greinar sem byggja á samanburðar-
rannsóknum metnar nothæfar.
Meginniðurstöður eru að rannsóknum ber ekki saman um áhrif
átröskunar á meðgöngu og fæðingu. Sterkustu tengsl fundust milli
átröskunar á meðgöngu og fæðingarþyngdar þar sem tíu af tólf
rannsóknum sýna að átröskun móður getur haft áhrif á fæðingar-
þyngd barns. Hvað varðar önnur áhrif á meðgöngu og útkomu
fæðingar eru rannsóknarniðurstöðurnar misvísandi. Sjö af þrettán
rannsóknum sýndu að konum með átröskun er hættara við að
fæða fyrir tímann og fjórar af sjö rannsóknum sýna að fósturlát er
algengara hjá konum með einhverja tegund af átröskun.
Konur með átröskunarsjúkdóma bera það ekki endilega utan á sér
og tilhneiging er til að fela sjúkdóminn. Ljósmæður eru í lykilhlut-
verki þegar kemur að greiningu átröskunar á meðgöngu og skoða
mætti hvort gagnlegt væri að taka upp skimun fyrir átröskunarein-
kennum og þá með hvaða hætti. Hins vegar er frekari rannsókna þörf
á áhrifum átröskunar á fylgikvilla meðgöngu og útkomu fæðingar.
Snið rannsóknanna sem hér voru til skoðunar var mismunandi og þar
með talið umfang og fjöldi þátttakenda og styrkur rannsóknanna í
mörgum tilvikum ekki nægur til að draga raunhæfar ályktanir.
Lykilorð: Átraskanir, meðganga, fæðing, nýburi, fræðileg samantekt.
ABSTRACT
Eating disorders are serious psychiatric disorders that commonly
occur in women of childbearing age. Pregnancy is a vulnerable
time where eating disorders can be influential for the health of both
mother and child.
The purpose of this literature review was to assess the relations-
hip between eating disorders during pregnancy with complications
during pregnancy and birth outcomes. A search was conducted
using Pub Med, Cinahl and Scopus and references of selected
articles reviewed. Sixteen comparative studies were found and
used.
The main findings are that the results of the impact of eating
disorders on pregnancy and birth are inconclusive. Ten out of
twelve studies showed that eating disorders seem to affect the
neonatal birth weight. The effects on other outcomes of pregnancy
and birth are inconclusive. Seven out of thirteen studies showed
that women with eating disorders are more likely to give premat-
ure birth and four out of seven studies that miscarraige is more
prevalent among women with some type of eating disorder.
Women with eating disorders are not easily detected and they
tend to hide their disorder. Midwives are in a key postition when
it comes to diagnosing eating disorders during pregnancy. The
usefulness of screening for eating disorders during pregnancy
needs to be discussed and if useful, how it should be performed.
The design of the studies included in the literature review was
different, regarding scope and sample sizes. In many of the studies,
the strength was not sufficient to make any reasonable conclusions.
Keywords: Eating disorder, pregnancy, birth, neonate, literature
review.
Áhrif átröskunar á
meðgöngu og fæðingu
FRÆÐILEG SAMANTEKT Fyrirspurnir
Valgerður Lísa Sigurðardóttir
valgerds@landspitali.is
Arna Ingimundardóttir,
hjúkrunarfræðingur BSc,
Landspítala
Herdís Sveinsdóttir,
hjúkrunarfræðingur PhD,
Háskóla Íslands, Landspítala
Valgerður Lísa Sigurðardóttir,
sérfræðiljósmóðir MSc, og
klínískur lektor Landspítala
Sigríður Arna Júlíusdóttir,
hjúkrunarfræðingur BSc,
Landspítala