Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 32

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 32
32 Ljósmæðrablaðið - desember 2015 Ég er heimafæðingaljósmóðir og rek fyrirtækið Björkin ljósmæður með Hrafnhildi, góðri vinkonu minni. Vinnan okkar snýst aðallega um heimafæðingar; við sinnum skjólstæðingum okkar síðustu vikur meðgöngunnar, í fæðingunni sjálfri og í sængurlegunni. Auk þess bjóðum við upp á námskeið, ráðgjöf og ýmislegt fleira sem tengist barneignum í Lygnu fjölskyldumiðstöð, þar sem við höfum aðsetur. Ég get ekki hugsað mér meira gefandi, fjölbreyttari eða skemmtilegri vinnu en þá sem ég sinni. Hún er samt líka stundum erfið og af og til koma mjög krefjandi og erfiðir sólarhringar. En þeir skilja ekki síður mikið eftir sig og gefa mér svo mikið. Við Hrafnhildur höfðum nýlega setið í nokkra daga yfir gerð viðskiptaáætlunar og umsóknar fyrir Svanna, lánatryggingasjóð kvenna vegna fyrirhugaðra breytinga á starfsemi Bjarkarinnar. Við vorum löngu búnar að fá nóg af rekstrar-, framkvæmda- og fjármögnunaráætlunum og öðru slíku. Skilafresturinn var að renna út þannig að við smelltum bara á „senda“, lokuðum tölvunum og skelltum okkur með dætrum okkar á tónleika með Jessie J í september síðastliðnum. Dæturnar voru yfir sig spenntar og við þakklátar fyrir að geta verið þarna með þeim. Nokkrar konur voru á tíma en allt með kyrrum kjörum. Þetta var þó logn sem stóð ekki lengi og stutt í að mikill stormur skylli á. Á meðan við biðum eftir að Jessie J mætti á sviðið hringdi frumbyrja. Hún var búin að vera með samdrætti í einhvern tíma, allt nokkuð rólegt ennþá og hún ætlaði að hringja þegar eitthvað meira færi að gerast. Tónleikarnir kláruðust án þess að konan hringdi og við vorum að vonum fegnar að þurfa ekki að skilja dæturnar eftir í Laugardalshöll. Maðurinn minn var samt tilbúinn að sækja þær ef svo færi að við þyrftum að drífa okkur í fæðingu. Hríðarnar skella á Við skutluðumst því heim í rúmið og vonuðumst til að fá að sofa svolítið áður en fæðingin færi í gang fyrir alvöru. Um klukkan 4:30 hringdi síminn og pabbinn tilvonandi var á línunni. Konan var komin með reglulegar, kröftugar hríðar. Hún var komin í fæðingalaugina og vildi að ég kæmi til að meta stöðuna. Ég dreif mig af stað og sótti í leiðinni danska ljósmæðranemann sem hafði fylgt okkur í tvær vikur. Stemningin á heimilinu var falleg þegar við komum. Slökunartónlist ómaði og kertaljós loguðu, konan var í lauginni og maðurinn hennar hjá henni. Hríðarnar virtust mjög kröftugar og allt leit vel út. Barnið var þó ekki alveg á því að mæta í heiminn strax og eftir nokkra klukkutíma datt allt í dúnalogn. Foreldrarnir ætluðu að reyna að hvílast og við kvöddum í bili. Þá var komið hádegi. Dagurinn leið og ekkert gerðist þangað til önnur kona hringdi um kvöldmatarleytið. Hún átti líka von á sínu fyrsta barni. Hún var byrjuð með samdrætti og fæðingin líklega að fara af stað. Enn var þó langt á milli hríða og hún ætlaði að hvíla sig. Ég heyrði í Hrafnhildi þar sem allt útlit var fyrir að við gætum þurft að fara hvor í sína fæðinguna. En þá vandaðist málið. Hún var lögst í ælupest og gat ekki lyft höfðinu af koddanum. Ef það er eitthvað sem heimafæðingaljósmæður óttast þá eru það veikindi. Sem betur fer verðum við ekki oft veikar en þegar það gerist þá óskum við þess að engin kona fari í fæðingu rétt á meðan. Það er ekkert sem heitir veikindadagar og ekki margir sem geta leyst okkur af. Það var ekki um annað að ræða en krossa fingur og vona að konurnar færu ekki af stað á sama tíma. Hingað til hafa hlutirnir alltaf gengið upp þótt oft hafi verið útlit fyrir annað. Ég treysti því að þannig yrði það líka núna. Síminn hringir Ég kíkti til konunnar sem hringdi fyrst. Hún var enn með samdrætti en of rólegt til þess að nokkuð væri að gerast. Við ræddum málin, gerðum áætlun og svo fór ég heim að hvíla mig. Síminn hringdi um klukkan 1:30 og þá var það hinn pabbinn að láta vita af stöðu mála. Konan var komin með hríðar á 5 mínútna fresti, henni leið vel og þau töldu sig ekki þurfa á mér að halda strax. Síminn hringdi aftur um klukkan 03, þá voru hríðar farnar að harðna og konan ætlaði að fara í fæðingalaugina. Hann ætlaði að hringja aftur þegar þau vildu að ég kæmi. Ekki leið nema tæp klukkustund þangað til pabbinn hringdi aftur og þá var eitthvað mikið að gerast. Ég stökk af stað, tók í leiðinni með mér annan danskan ljósmæðranema sem hafði hitt þessa konu og ætlaði að vera með í fæðingunni. Fæðingin gekk fljótt og vel og ekki leið langur tími þar til lítil yndisleg stúlka með mikið dökkt hár fæddist. Um klukkan 9:30 var ég á leiðinni aftur heim en þá hringdi hin konan. Allt var svipað hjá henni en hún vildi að ég kæmi að kíkja á þau, var orðin þreytt og örvænting farin að gera vart við sig því ekkert var að gerast. Vinnudagurinn víkkar út Hrafnhildur var enn fárveik þannig að ég dreif mig heim, þreif fæðingaáhöldin og tók til í töskunni svo hún væri tilbúin fyrir næstu fæðingu. Síðan dreif ég mig af stað, þegar ég kom var legvatnið nýfarið að leka hjá konunni. Foreldrarnir voru ánægðir með að einhver breyting hefði orðið enda orðin þreytt og vonuðu að nú færu hlutirnir að gerast fyrir alvöru. Samdrættirnir voru enn vægir og við ræddum hvað hægt væri að gera til að koma fæðingunni betur af stað og gerðum nýja áætlun. Ég ákvað svo að skreppa í tvær vitjanir, fyrir fæðingu, sem voru á dagskrá og erfitt var að fresta. Ég þurfti líka að kíkja á konuna og nýfæddu stúlkuna til að vera viss um að allt væri eins og það ætti að vera hjá þeim. Dagurinn leið og um klukkan 17 fór ég aftur til konunnar með nemann með mér. Hríðarnar voru orðnar reglulegar og nokkuð kröftugar. Maðurinn minn var farinn í veiðiferð sem hafði verið skipulögð fyrir löngu. Ég get fullyrt að án hans gæti ég ekki unnið eins og ég geri. Það væri að minnsta kosti mun erfiðara. Hann er kletturinn minn. Faðmar mig á erfiðum stundum, gleðst með mér þegar vel gengur og hvetur mig áfram í öllu sem ég geri. Hann hlustar á fæðingarsögurnar, eldar fyrir mig góðan mat þegar ég hef verið í löngum fæðingum og passar að ég fái að hvílast eftir erfiðar nætur. Dagar (og nætur) í lífi heimafæðingaljósmóður

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.