Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 32
32 Ljósmæðrablaðið - desember 2015
Ég er heimafæðingaljósmóðir og rek fyrirtækið Björkin ljósmæður
með Hrafnhildi, góðri vinkonu minni. Vinnan okkar snýst aðallega
um heimafæðingar; við sinnum skjólstæðingum okkar síðustu vikur
meðgöngunnar, í fæðingunni sjálfri og í sængurlegunni. Auk þess
bjóðum við upp á námskeið, ráðgjöf og ýmislegt fleira sem tengist
barneignum í Lygnu fjölskyldumiðstöð, þar sem við höfum aðsetur.
Ég get ekki hugsað mér meira gefandi, fjölbreyttari eða skemmtilegri
vinnu en þá sem ég sinni. Hún er samt líka stundum erfið og af og til
koma mjög krefjandi og erfiðir sólarhringar. En þeir skilja ekki síður
mikið eftir sig og gefa mér svo mikið.
Við Hrafnhildur höfðum nýlega setið í nokkra daga yfir gerð
viðskiptaáætlunar og umsóknar fyrir Svanna, lánatryggingasjóð kvenna
vegna fyrirhugaðra breytinga á starfsemi Bjarkarinnar. Við vorum löngu
búnar að fá nóg af rekstrar-, framkvæmda- og fjármögnunaráætlunum
og öðru slíku. Skilafresturinn var að renna út þannig að við smelltum
bara á „senda“, lokuðum tölvunum og skelltum okkur með dætrum
okkar á tónleika með Jessie J í september síðastliðnum. Dæturnar voru
yfir sig spenntar og við þakklátar fyrir að geta verið þarna með þeim.
Nokkrar konur voru á tíma en allt með kyrrum kjörum. Þetta var þó
logn sem stóð ekki lengi og stutt í að mikill stormur skylli á.
Á meðan við biðum eftir að Jessie J mætti á sviðið hringdi frumbyrja.
Hún var búin að vera með samdrætti í einhvern tíma, allt nokkuð rólegt
ennþá og hún ætlaði að hringja þegar eitthvað meira færi að gerast.
Tónleikarnir kláruðust án þess að konan hringdi og við vorum að
vonum fegnar að þurfa ekki að skilja dæturnar eftir í Laugardalshöll.
Maðurinn minn var samt tilbúinn að sækja þær ef svo færi að við
þyrftum að drífa okkur í fæðingu.
Hríðarnar skella á
Við skutluðumst því heim í rúmið og vonuðumst til að fá að sofa
svolítið áður en fæðingin færi í gang fyrir alvöru. Um klukkan 4:30
hringdi síminn og pabbinn tilvonandi var á línunni. Konan var komin
með reglulegar, kröftugar hríðar. Hún var komin í fæðingalaugina og
vildi að ég kæmi til að meta stöðuna.
Ég dreif mig af stað og sótti í leiðinni danska ljósmæðranemann
sem hafði fylgt okkur í tvær vikur. Stemningin á heimilinu var falleg
þegar við komum. Slökunartónlist ómaði og kertaljós loguðu, konan
var í lauginni og maðurinn hennar hjá henni. Hríðarnar virtust mjög
kröftugar og allt leit vel út. Barnið var þó ekki alveg á því að mæta í
heiminn strax og eftir nokkra klukkutíma datt allt í dúnalogn.
Foreldrarnir ætluðu að reyna að hvílast og við kvöddum í bili. Þá var
komið hádegi. Dagurinn leið og ekkert gerðist þangað til önnur kona
hringdi um kvöldmatarleytið. Hún átti líka von á sínu fyrsta barni. Hún
var byrjuð með samdrætti og fæðingin líklega að fara af stað. Enn var
þó langt á milli hríða og hún ætlaði að hvíla sig.
Ég heyrði í Hrafnhildi þar sem allt útlit var fyrir að við gætum þurft
að fara hvor í sína fæðinguna. En þá vandaðist málið. Hún var lögst
í ælupest og gat ekki lyft höfðinu af koddanum. Ef það er eitthvað
sem heimafæðingaljósmæður óttast þá eru það veikindi. Sem betur
fer verðum við ekki oft veikar en þegar það gerist þá óskum við þess
að engin kona fari í fæðingu rétt á meðan. Það er ekkert sem heitir
veikindadagar og ekki margir sem geta leyst okkur af. Það var ekki um
annað að ræða en krossa fingur og vona að konurnar færu ekki af stað á
sama tíma. Hingað til hafa hlutirnir alltaf gengið upp þótt oft hafi verið
útlit fyrir annað. Ég treysti því að þannig yrði það líka núna.
Síminn hringir
Ég kíkti til konunnar sem hringdi fyrst. Hún var enn með samdrætti en
of rólegt til þess að nokkuð væri að gerast. Við ræddum málin, gerðum
áætlun og svo fór ég heim að hvíla mig. Síminn hringdi um klukkan
1:30 og þá var það hinn pabbinn að láta vita af stöðu mála. Konan var
komin með hríðar á 5 mínútna fresti, henni leið vel og þau töldu sig
ekki þurfa á mér að halda strax.
Síminn hringdi aftur um klukkan 03, þá voru hríðar farnar að harðna
og konan ætlaði að fara í fæðingalaugina. Hann ætlaði að hringja aftur
þegar þau vildu að ég kæmi. Ekki leið nema tæp klukkustund þangað
til pabbinn hringdi aftur og þá var eitthvað mikið að gerast. Ég stökk af
stað, tók í leiðinni með mér annan danskan ljósmæðranema sem hafði
hitt þessa konu og ætlaði að vera með í fæðingunni.
Fæðingin gekk fljótt og vel og ekki leið langur tími þar til lítil
yndisleg stúlka með mikið dökkt hár fæddist. Um klukkan 9:30 var ég
á leiðinni aftur heim en þá hringdi hin konan. Allt var svipað hjá henni
en hún vildi að ég kæmi að kíkja á þau, var orðin þreytt og örvænting
farin að gera vart við sig því ekkert var að gerast.
Vinnudagurinn víkkar út
Hrafnhildur var enn fárveik þannig að ég dreif mig heim, þreif
fæðingaáhöldin og tók til í töskunni svo hún væri tilbúin fyrir næstu
fæðingu. Síðan dreif ég mig af stað, þegar ég kom var legvatnið
nýfarið að leka hjá konunni. Foreldrarnir voru ánægðir með að einhver
breyting hefði orðið enda orðin þreytt og vonuðu að nú færu hlutirnir
að gerast fyrir alvöru. Samdrættirnir voru enn vægir og við ræddum
hvað hægt væri að gera til að koma fæðingunni betur af stað og gerðum
nýja áætlun. Ég ákvað svo að skreppa í tvær vitjanir, fyrir fæðingu, sem
voru á dagskrá og erfitt var að fresta. Ég þurfti líka að kíkja á konuna
og nýfæddu stúlkuna til að vera viss um að allt væri eins og það ætti
að vera hjá þeim.
Dagurinn leið og um klukkan 17 fór ég aftur til konunnar með nemann
með mér. Hríðarnar voru orðnar reglulegar og nokkuð kröftugar.
Maðurinn minn var farinn í veiðiferð sem hafði verið skipulögð fyrir
löngu. Ég get fullyrt að án hans gæti ég ekki unnið eins og ég geri. Það
væri að minnsta kosti mun erfiðara. Hann er kletturinn minn. Faðmar
mig á erfiðum stundum, gleðst með mér þegar vel gengur og hvetur
mig áfram í öllu sem ég geri. Hann hlustar á fæðingarsögurnar, eldar
fyrir mig góðan mat þegar ég hef verið í löngum fæðingum og passar
að ég fái að hvílast eftir erfiðar nætur.
Dagar (og nætur) í lífi
heimafæðingaljósmóður