Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Síða 17
17Ljósmæðrablaðið - desember 2015
fegrunaraðgerðir á kynfærum kvenna og að fjölgun slíkra aðgerða sé
áhyggjuefni (Shaw o.fl., 2013).
Ekki er mikið um rannsóknir á aukaverkunum í kjölfar aðgerða
sem framkvæmdar eru á skapabörmum kvenna. Helstu aukaverk-
anir virðast vera útlitslegar, það teygist á börmunum eða þeir verða
ekki samhverfir. Þá geta komið fram sýkingar og sárabarmar opnast
(Hamori, 2014). Innri skapabarmar eru taugaríkir og hafa áhrif á
örvun og fullnægingu í kynlífi. Við skapabarmaminnkun, einkum
þegar skorið er af sníp, er hætta á að skorinn sé burt vefur sem er
næmur fyrir kynferðislegri örvun og hefur áhrif á ánægju í kynlífi.
Afleiðingar aðgerða geta verið mismunandi eftir því hvaða svæði er
skorið burt (Schober o.fl., 2010). Í ljósi þessa er athyglisvert að í
könnun meðal lækna með sérhæfingu í kynlífsfræðum kom fram að
þriðjungur þeirra taldi skapabarmaaðgerðir bæta kynlíf (Lowenstein
o.fl., 2014).
Markmið þeirrar fræðilegu samantektar sem hér er kynnt er að
skoða rannsóknir á ástæðum og afleiðingum skapabarmaaðgerða,
viðhorf til skapabarmaaðgerða og áhrif fjölmiðla á hugmyndir um
eðlilegt útlit kynfæra kvenna.
AÐFERÐ
Rannsóknarheimilda var aflað með því að nota gagnagrunnana
PubMed og Web of Science og má sjá leitina og leitarorð í töflu 2.
Titlar og samantektir úr leitarniðurstöðum voru skoðaðar og
þær rannsóknir valdar sem þóttu endurspegla þekkingu á þessum
aðgerðum. Rannsóknir sem fjölluðu um mismunandi tækni við
framkvæmd aðgerða og árangur þeirra voru útilokaðar. Ein undan-
tekning er á þessu en tekin var með kerfisbundin heimildasamantekt
sem skoðaði tækni við aðgerðir ásamt fleiru (Motakef o.fl., 2015).
Auk greina sem komu fram í leitinni fundust í heimildaskrám þeirra
þrjár nothæfar heimildir. Elsta rannsóknin sem var notuð er frá árinu
2000. Engar íslenskar rannsóknir fundust.
NIÐURSTÖÐUR
Í töflu 3 eru niðurstöður rannsóknanna kynntar. Rannsóknirnar eru
listaðar í stafrófsröð eftir höfundum í töflunni.
Aðferðafræði, úrtak og mælingar
Mismunandi aðferðafræði var notuð við rannsóknirnar. Í þremur
rannsóknum var stuðst við sjúkragögn og jafnframt svöruðu þátt-
takendur óstöðluðum spurningalista (Goodman, o.fl., 2010; Rouzier
o.fl., 2000; Trichot o.fl., 2011); í tveimur rannsóknum voru sjúkra-
gögn einvörðungu skoðuð (Jothilakshmi o.fl., 2009; Miklos og
Moore, 2008); fimm rannsóknir notuðust einungis við spurningalista
(Crockett o.fl., 2007; Koning o.fl., 2009; Veale o.fl., 2013; Veale
o.fl., 2014 a og b); ein notaði blönduð viðtöl og mælingar sem kven-
sjúkdómalæknir framkvæmdi (Crouch o.fl., 2011); ein var eigindleg
viðtalsrannsókn (Bramwell o.fl., 2007) og ein kerfisbundin saman-
tekt (Motakef o.fl., 2015). Í fimm rannsóknum sá skurðlæknirinn
sjálfur eða aðstoðarmenn hans um gagnaöflun (Crouch o.fl., 2011;
Goodman, o.fl., 2010; Jothilakshmi o.fl., 2009, Miklos og Moore,
2008; Rouzier o.fl., 2000).
Ein rannsókn greindi ekki frá aldri þátttakenda (Goodman, o.fl.,
2010) en samkvæmt hinum var hann breytilegur. Yngsti uppgefni
aldur var 11 ár (Jothilakshmi o.fl., 2009; Motakef o.fl., 2015) og elsti
68 ár (Motakef o.fl., 2015).
Fjöldi þátttakenda var frá sex (Bramwell o.fl., 2007; Jothilakshmi
o.fl., 2009) upp í 258 (Goodman o.fl., 2010). Heimildasamantekt
Motakef o.fl., (2015) nær þó til 1949 kvenna. Í tveimur rannsóknum
er greint frá því að stærð skapabarma hafi verið mæld fyrir aðgerð
(Crouch o.fl., 2011; Rouzier o.fl., 2000) og önnur þeirra tiltók að
ákveðin stærð væri skilyrði fyrir aðgerð (Rouzier o.fl., 2000).
Þrjár rannsóknir notuðust við stöðluð mælitæki og samanburð-
arhópa (Veale o.fl., 2013; Veale o.fl., 2014a og b).
Ástæður aðgerða
Átta rannsóknir greindu frá ástæðum þess að konur óska eftir að
fara í aðgerðina (Bramwell o.fl., 2007; Crouch o.fl., 2011; Good-
man, o.fl., 2010; Jothilakshmi o.fl., 2009, Miklos og Moore, 2008;
Rouzier o.fl., 2000; Trichot o.fl., 2011; Veale o.fl., 2013).
Eftirtaldar ástæður voru tilgreindar: Líkamleg óþægindi vegna
stækkunar skapabarma meðal annars vegna fatnaðar eða tengt
íþróttum (Bramwell o.fl., 2007; Crouch o.fl., 2011; Goodman, o.fl.,
2010; Jothilakshmi o.fl., 2009; Miklos og Moore, 2008; Rouzier
o.fl., 2000; Trichot o.fl., 2011; Veale o.fl., 2013), fegrunarástæður
sem fela í sér óeðlilegt útlit kynfæra og jafnvel skömm vegna
þeirra að mati þátttakenda eða óánægja með útlit þeirra (Bramwell
o.fl., 2007; Crouch o.fl., 2011; Goodman, o.fl., 2010; Jothilakshmi
o.fl., 2009; Miklos og Moore, 2008; Rouzier o.fl., 2000; Veale
o.fl., 2013); óþægindi eða kvíði tengdur kynlífi (Bramwell o.fl.,
2007; Rouzier o.fl., 2000; Trichot o.fl., 2011; Veale o.fl., 2013);
væntingar um betra kynlíf (Bramwell o.fl., 2007; Goodman, o.fl.,
2010); til að auka sjálfstraust (Goodman, o.fl., 2010), ósk kynlífs-
félaga (Goodman, o.fl., 2010); skapabarmar sýnilegir í sundfötum
(Jothilakshmi o.fl., 2009) og ótti við stríðni (Jothilakshmi o.fl.,
2009).
Rannsókn Goodman o.fl. (2010) gefur til kynna að helstu
ástæður fyrir aðgerð á kynfærum kvenna séu persónulegar og lítill
hluti virðist vera undir áhrifum frá utanaðkomandi aðilum.
Hvað einkennir konur sem fara í skapabarmaaðgerðir?
Í þremur greinum leitast Veale o.fl. (2013; 2014 a og b) við að
svara því hvað einkennir konur sem fara í skapabarmaðgerðir
með því að bera saman konur sem fara í aðgerðirnar og konur
sem vilja ekki fara í slíkar aðgerðir. Samkvæmt niðurstöðum
þeirra eru konur sem fara í aðgerðirnar marktækt óánægðari með
útlit kynfæra sinna, líklegri til að vera með líkamsröskun og með
neikvæða líkamsímynd. Einnig voru þær líklegri til að forðast að
fara í kvenskoðun og horfa á eigin kynfæri. Þær báru sig einnig
saman við aðrar konur og greindu frá neikvæðum athugasemdum
eða viðbrögðum við stærð skapabarma þeirra. Í grein Jothilakshmi
o.fl. (2009) kemur fram að tvær stúlkur af sex voru undir eftirliti
geðlæknis vegna geðheilsu sinnar.
Ánægja með aðgerðir
Sex rannsóknir fjölluðu um ánægju með aðgerðirnar og samkvæmt
þeim er ánægjan mikil (Goodman, o.fl., 2010; Jothilakshmi o.fl.,
2009; Motakef o.fl., 2015; Rouzier o.fl., 2000; Trichot o.fl., 2011;
Veale o.fl., 2014b). Í tveimur rannsóknum kom fram að meirihluti
þátttakenda myndi gangast aftur undir aðgerð og mæla með henni
fyrir konur með sömu vandamál (Rouzier o.fl., 2000; Trichot o.fl.,
2011).
Veale o.fl. (2014b) greindi frá því að níu konur hafi uppfyllt skil-
yrði líkamsröskunar fyrir aðgerð en einungis tvær eftir aðgerðina.
Þá kom einnig fram að eftir skapabarmaminnkun dró marktækt úr
kvíða hjá konunum og líkamsímynd þeirra varð marktækt betri.
Tafla 2. Heimildaleit
Gagnagrunnur Dagsetning
leitar
Leitarorð Takmörk Fjöldi
heimilda
Nothæfar
heimildir
PubMed 1. febrúar 2014 Reduction of
labia minora OG
media influence
Engin 1 1
Web of Science 3. febrúar 2014 Labioplasty 2004-2014
Enska
72 3
PubMed 3. febrúar 2014 Labiaplasty 2004-2014 32 2
PubMed 5. febrúar 2014 Cosmetic surgery
OG female
genital surgery
2004-2014
Opinn
aðgangur
40 0
PubMed 5. febrúar 2014 Labia minora
reduction
2004-2014 45 1
Web of Science 19. mars 2015 Labia minora
reduction
2014-2015 5 1
Web of Science 19. mars 2015 Labia minora
reduction
2014-2015 10 2
Tafla 2. Heimildaleit