Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 28
28 Ljósmæðrablaðið - desember 2015
Hratt líður stund, í ár eru fimmtán ár liðin
síðan „Ljáðu mér eyra“ hóf starfsemi á
Landspítalanum, en fyrstu viðtölin voru veitt
á því herrans ári 1999. Í tilefni þess er fróð-
legt að líta um öxl og rifja upp aðdraganda
þess að þessi þjónusta varð til og hvernig
hún hefur þróast.
Hugmyndin um að byrja með einskonar
hlustunarþjónustu (e. listening service) fyrir
konur/pör sem eiga að baki erfiða fæðingar-
reynslu vaknaði fyrst árið 1998. Ástæða þess
var að konur/pör með erfiða fæðingarreynslu
að baki hringdu á fæðingardeildina til að
ræða um áhyggjur sínar. Erfið reynsla hafði
greinilega djúpstæð áhrif og fólki fannst
sem engin eiginleg hjálp eða þjónusta væri
í boði. Í upphafi höfðu þrjár ljósmæður, þær
Guðlaug Pálsdóttir, Jóhanna V. Hauksdóttir
og Ólöf Leifsdóttir, allar mikinn áhuga á að
koma til móts við þennan hóp. Þær kynntu
sér hvað væri í boði erlendis og leituðu
þekkingar m.a. með lestri greina. Fljótlega
kom í ljós að mikilvægt væri að hafa lækni
með í teyminu og var Þóra Steingrímsdóttir fæðingarlæknir tilbúin
að slást í hópinn.
Til að unnt væri að hefja slíka hlustunarþjónustu á faglegan hátt
var nauðsynlegt að efla samtalstækni og færni í virkri hlustun.
Teymið fékk meðbyr hjá stjórnendum kvennadeildar og haustið
1998 var sett upp námskeið hjá Rögnu Ólafsdóttur sálfræðingi í
þeim tilgangi. Einnig voru sendar fyrirspurnir til ljósmæðra og
lækna í Stokkhólmi og Bretlandi um kynningar á hvernig sambæri-
leg þjónusta væri byggð upp þar. Í framhaldi af því barst þeim heim-
boð til Surrey í Bretlandi. Þar var vel tekið á móti hópnum og gisting
boðin hjá ljósmóður sem kynnti fyrir þeim hvaða þjónusta væri í
boði á sjúkrahúsinu þar sem hún vann, en hún starfaði þó meira með
konum sem höfðu upplifað missi. Þetta var mjög lærdómsrík ferð og
gagnaðist vel við uppbyggingu á Ljáðu mér eyra.
Fyrstu árin hittist hópurinn reglulega á fundum m.a. til að ræða
aðferðir við viðtölin, útbúa skráningarblað, merki þjónustunnar
(logo) og hvernig ætti að auglýsa hana.
Tölvudeild Landspítala hjálpaði til við að
hanna merkið eftir hugmynd ljósmæðranna
og er það mat þeirra sem að komu að vel
hafi tekist til við hönnun þess. Hugmynd að
merkinu og nafn á teyminu kom frá Jóhönnu
en útfærslan hvíldi á herðum alls hópsins.
Eyrað er tákn þjónustunnar sem vísar til
mikilvægis hlustunarinnar og heldur utan
um fóstrið líkt og leg. Merkið hefur staðist
tímans tönn og er enn notað.
Eftir viðtölin var öll skráning handskrifuð
á skráningarblaðið sem nú er orðið barn
síns tíma því í dag er allt skráð í rafræna
sjúkraskrá í Sögu. Gömlu skráningarblöðin
eru geymd í læstum skáp og hafa nýst ljós-
mæðranemum og ljósmæðrum til úrvinnslu,
bæði í lokaverkefni til embættisprófs í
ljósmóðurfræði og til meistaranáms. Óska-
listablaðið sem hannað var í upphafi er enn
notað.
Áður en starfsemin byrjaði var hún kynnt
á heilsugæslustöðvum um allt land. Lang-
tímamarkmið Ljáðu mér eyra hópsins var að seinna yrði svona
hlustunarþjónusta í boði á heilsugæslustöðvum, en af því hefur ekki
orðið, a.m.k. ekki með formlegum hætti.
Tekið var vel í að hefja viðtalsþjónustuna af stjórnendum á
Landspítala og ávallt góður vilji að veita svigrúm fyrir Ljáðu mér
eyra viðtöl. Mikil áhersla var lögð á trúnað við skjólstæðingana og
jafnframt bent á að aðalmarkmið viðtalanna væri hlustun en að ekki
væri litið á viðtölin sem vettvang til kvartana. Skjólstæðingum var
beint í annan farveg ef um kvörtun var að ræða.
Uppbygging viðtalanna hefur lítið breyst með árunum þó að alltaf
sé einhver þróun í gangi. Áætlað er að hvert viðtal taki um klukku-
tíma og er megininntak viðtalsins virk hlustun. Ljósmóðir er ávallt
búin að lesa yfir fæðingarskýrslu konunnar áður en viðtal hefst og
er því komin með upplýsingar um gang mála. Konan/parið stýrir
að mestu leyti ferðinni í viðtalinu og er það oft sem umræðuefnið
í viðtalinu er annað en ljósmóður grunar eftir lestur fæðingarskýrsl-
unnar. Það er nefnilega ekki alltaf samasemmerki á milli þess sem
lesa má í fæðingarskýrslu og þess hvernig upplifun fæðingar var.
Konu/pari er boðið að fara yfir fæðingarlýsinguna og fá útskýringar
á því sem þar stendur. Oft er minning um atburðarásina óljós og með
því að fara yfir fæðingarsöguna er um leið verið að fylla inn í eyður.
Leitast er við að hjálpa fólki að fá skýra mynd af atburðarás um leið
og reynt er að leiðrétta misskilning, sé hann til staðar. Algengt er
að konur komi í viðtal þegar þær verða barnshafandi aftur. Þá hafa
þær oft sett erfiða reynslu sína til hliðar en svo hellist minningin yfir
þegar þær sjá fram á að ganga í gengum fæðingu aftur. Oft dugar
eitt viðtal en þeim er boðin endurkoma ef ástæða þykir til. Einnig er
þeim boðin tilvísun til annarra fagaðila ef mál þeirra eru þess eðlis
að þörf er á, t.d. viðtal við sálfræðing eða fæðingarlækni.
Frá upphafi hafa reglulegir fundir verið haldnir hjá Ljáðu mér
eyra teyminu í þeim tilgangi að handleiða hver aðra. Það er mikil-
vægt því viðtölin eru þess eðlis að þau geta reynt mikið á fagaðil-
Ljáðu mér eyra 15 ára
Litið um öxl
Merki Ljáðu mér eyra.
Jóhanna og Ólöf.