Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 33
33Ljósmæðrablaðið - desember 2015
Ég hef aldrei áhyggjur af börnunum þegar ég þarf að vera lengi í burtu
vegna vinnunnar en nú voru börnin ein heima. Það bjargaði málunum
að elsta barnið okkar er nítján ára. Hann sá því um að gefa systkinum
sínum að borða og passaði upp á að þau færu tímanlega að sofa. Ég
vissi að það væri allt í lagi heima en fann samt fyrir samviskubiti og
svo saknaði ég þeirra líka. Ég hafði ekki haft tíma til að vera með þeim
í marga daga. Ég sendi þeim SMS, sagðist sakna þeirra, bað þau að vera
góð við hvert annað og dugleg að hjálpast að og að á morgun myndum
við reyna að hafa kósý saman.
27 klukkustundir
Fæðingin var langdregin og þegar leið á nóttina gerði þreytan vart við
sig og við vorum komin á það stig að íhuga flutning á spítalann. Það var
samt ekki til uppgjöf í konunni, sem var svo sterk og dugleg, en ég var
orðin hrædd um að fæðingin myndi ekki klárast hjálparlaust.
Danski neminn var með mér og það var mikil hjálp í henni. Við
Hrafnhildur höfðum verið í SMS-sambandi. Hún fékk lítinn frið í
veikindunum en var orðin örlítið hressari, þótt hún væri langt frá því
að vera við fulla heilsu. Hún gat sem betur fer komið til að aðstoða.
Ég þurfti á henni að halda því ég vildi vera viss um að ég væri ekki að
ákveða flutning á spítalann af því að ég væri þreytt, heldur vegna þess að
það væri það besta fyrir konuna og barnið hennar. Við vorum sammála
um að þetta væri fullreynt heima og best væri að fara á spítalann. Þar
fæddist svo þó nokkru seinna fallegur drengur.
Ég kom heim klukkan hálf sjö, 27 klukkustundum eftir að ég fór af
stað í fyrri fæðinguna. Stuttu seinna hringdi vekjaraklukkan og börnin
þurftu að fara í skólann. Sá yngsti var illa upplagður, allt var ómögulegt
og hann vildi ekki fara. Ég hafði enga þolinmæði og samtalið, ef samtal
skyldi kalla, endaði með því að hann fór að gráta. Ég gafst upp, tilkynnti
forföll hjá honum í skólanum, lagðist á koddann og fór að sofa. Úrvinda.
Þegar maður er heimafæðingaljósmóðir er mikilvægt að geta sofnað
fljótt og það gerði ég næstu fjóra tímana, dreif mig svo aftur á fætur því
ég þurfti að kíkja á konuna og barnið sem hafði fæðst nóttina á undan.
Þegar ég var vöknuð heyrði ég í Hrafnhildi sem var öll að hressast.
Ein af konunum okkar hafði misst vatnið um nóttina en fæðingin var
þó ekki byrjuð enn. Ég kíkti á konuna og nýfædda barnið. Þar gekk
allt eins og í sögu og foreldrarnir ljómuðu af hamingju. Á heimleiðinni
stoppaði ég í búð, mömmusamviskubitið var orðið risastórt, þannig að
ég keypti Cocoa Puffs, sem elsku börnin mín fá annars aldrei nema á
jólum, páskum og afmælum. Svo keypti ég ís, kleinuhringi og fleira
gott sem mér fannst þau eiga skilið. Þegar heim var komið náði ég mér
í annan tveggja tíma hraðsvefn.
Eftir kvöldmat fórum við Hrafnhildur að kíkja á konuna sem hafði
misst vatnið. Allt var enn með kyrrum kjörum. Það hafði verið ákveðið
að bíða til morguns og ef ekkert gerðist þá færi hún morguninn eftir á
spítalann í gangsetningu. Þegar ég var á heimleið hringdi litli drengurinn
minn, sem er níu ára, hálfgrátandi. Systir hans og vinkonur hennar voru
að borða bragðaref úr Ísbúð Vesturbæjar. Sorgin var gríðarleg þannig að
ég lofaði að koma við og kaupa einn þannig fyrir hann.
Kærkomin hvíld
Þegar ég kom heim sagði ég þeim að ég þyrfti líklega að fara aftur í
fæðingu um nóttina þannig að ég þyrfti að reyna að hvíla mig. Sá litli
spurði hvort ég gæti hvílt mig í sófanum hjá honum meðan hann myndi
horfa á mynd. Ég gerði það og hann hjúfraði sig upp að mér, knúsaði
mig og sagði: „Mamma dagurinn byrjaði ekki vel hjá okkur en svo varð
þetta besti dagur lífs míns.“ Það þarf ekki mikið til að gleðja níu ára
dreng.
Morguninn eftir vaknaði ég og síminn hafði ekkert hringt. Yngri
börnin mín tvö lágu hjá mér í plássi pabba síns. Ég var úthvíld en leið
vegna konunnar sem nú þyrfti að hætta við heimafæðinguna og fara í
gangsetningu. Þegar við vinnum svona eins og við gerum kynnumst við
foreldrunum svo vel. Við tökum þátt í gleði þeirra og stundum líka sorg
eða vonbrigðum. Þannig var það þennan morgun.
Dóttir mín sem er tólf ára vaknaði og spurði hvort ég hefði farið um
nóttina. Ég svaraði því neitandi. Þá sagði hún: „Gott að þú fékkst að
sofa en leitt að konan skyldi ekki fæða.“ Þau eru farin að skilja þetta vel,
börnin mín, og vita að stundum breytast plön okkar ef ég þarf að fara í
fæðingu. Þótt það geti verið erfitt þá vita þau að þegar svo ber undir þarf
einhver meira á mér að halda en þau.
Þau skilja þetta en eru þó líka heppin vegna þess að langoftast get ég
verið til staðar eins og þau þurfa. Jafnvel meira en ef ég væri að vinna
„venjulega“ vinnu því ég get að miklu leyti stjórnað vinnutíma mínum.
Nema þegar kemur að fæðingu, þeim stjórnum við víst ekki. Börnin
taka þátt í þessu með mér, þau heyra sögurnar af fæðingum, þau spyrja
þegar ég kem heim hvernig hafi gengið, hvort það hafi fæðst stelpa
eða strákur og svo framvegis. Langflest kvöld og nætur er ég heima og
flestar helgar er ég mikið laus. Ég get bara aldrei verið viss um að geta
mætt í boð eða á mannamót. Þegar mér er boðið eitthvað er svarið alltaf:
„Ég kem ef ég er ekki í fæðingu“. En við lifum samt lífinu, við förum
á tónleika, í leikhús, matarboð og gerum skemmtilega hluti. Við erum
bara alltaf með símann og í versta falli þurfum við að fara snemma en
oftast ganga plönin okkar upp.
Dýrmætar stundir
Í haust höfum við Bjarkarljósmæður starfað við heimafæðingar í fimm
ár. Á þessum tíma höfum við tekið þátt í yfir 200 heimafæðingum.
Börnin hafa langflest fæðst á heimili sínu en einhver á Landspítalanum
en allar hafa fæðingarnar verið jafn stórkostlegar. Við höfum tekið á
móti fleiri en einu barni hjá nokkrum fjölskyldum, við höfum tekið á
móti systkinabörnum og börnum vinkvenna. Við höfum líka tekið á
móti börnum vina okkar og ættingja en eitt af því sem okkur finnst
best við vinnuna okkar er að fá tækifæri til að kynnast öllum þessum
fjölskyldum svona náið.
Við kynnumst eldri systkinum, ömmum og öfum og jafnvel frænkum
og frændum. Hver ein og einasta fjölskylda á sinn stað í hjörtum okkar
og við höfum lært svo mikið af þeim öllum. Dagar eins og þessir
koma ekki oft en þeir koma af og til. Langoftast dreifast fæðingarnar
vel og við þurfum ekki oft að vinna í 27 klukkutíma án þess að sofa.
Við erum svo lánsamar að fá í okkar daglega starfi ítrekað að upplifa
það kraftaverk sem barnsfæðing er. Enginn dagur er eins, engin fæðing
er eins, engin fjölskylda er eins og það er það sem gerir starfið svo
ótrúlega skemmtilegt.
Arney Þórarinsdóttir
heimafæðingaljósmóðir