Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Síða 35
35Ljósmæðrablaðið - desember 2015
LJÓSMÆÐRAVAKTIN Í KEFLAVÍK
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja starfa átta ljósmæður á Ljós-
mæðravaktinni í 6,2 stöðugildum og er deildin opin allan sólar-
hringinn. Eins og nafnið á deildinni gefur til kynna er lögð áhersla á að
sinna almennum ljósmæðrastörfum hér á Suðurnesjum og er starfið því
mjög fjölbreytt hjá okkur. Það má segja að deildin sé lítil kvennadeild,
þar sem við sjáum um meðgönguvernd, fæðingarhjálp, meðgöngu
og sængurlegu, göngudeildarþjónustu fyrir konur bæði fyrir og eftir
fæðingu og símaráðgjöf.
Við aðstoðum einnig við lyfjagjafir á kvöldin og næturnar á endur-
hæfingardeildinni sem liggur við hliðina á deildinni okkar, en þar er
mest aldrað fólk sem kemur inn í hvíldarinnlagnir. Nú á þessu ári tók
Ljósmæðravaktin að sér leghálskrabbameinsleit og fóru tvær ljós-
mæður í þjálfun á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Ein ljósmóðir frá
okkur er líka í geðteyminu á HSS og hefur verið að taka konur í viðtöl
og slökun. Helstu ástæður viðtalanna eru andleg vanlíðan á meðgöngu
og slæm reynsla af fyrri fæðingu.
Mæðravernd
Við reynum að leggja áherslu á samfellda þjónustu fyrir konur og fjöl-
skyldur þeirra í barneignarferlinu. Allar ljósmæður eru með einn dag í
mæðravernd og þær reyna að fylgja sínum konum alla meðgönguna og
einnig í heimaþjónustu ef konan óskar eftir því. Með samfelldri þjón-
ustu næst betri árangur í að meta heilsu móður og barns og að auki
myndast traust á milli ljósmóðurinnar og hinnar verðandi móður sem
stuðlar að aukinni öryggistilfinningu og undirbýr hana frekar undir það
að fæða náttúrulega og að hún velji að fæða hér. Til að undirbúa verð-
andi foreldra undir væntanlegu fæðinguna fá konur og maki eða stuðn-
ingsaðili fæðingarspjall við ljósmóður í 36. viku meðgöngu þar sem er
farið yfir fæðinguna, væntingar þeirra og fæðingarstaðina.
Fæðingarhjálp
Ljósmæðravaktin er D-fæðingarstaður og eru konur skimaðar á
meðgöngunni fyrir áhættuþáttum og vandamálum sem upp gætu komið
í fæðingu. Fæðingar hafa verið frá 85‒135 á ári eftir að deildin breyttist
í D-fæðingarstað. Konur nota baðið töluvert hjá okkur í fæðingunum
og er hlutfall vatnsfæðinga hátt hjá okkur eða um 45% af fæðingunum.
Meðgöngu- og sængurlega
Á Ljósmæðravaktinni leggjast inn konur á meðgöngu vegna ýmissa
fylgikvilla, eins og ógleði og uppkasta, háþrýstings, til hvíldar og af
ýmsum öðrum orsökum. Eftir fæðingu geta konur legið sængurlegu ef
þær óska eftir því en flestar velja sér að fara í heimaþjónustu. Við erum
einnig með ljósameðferð fyrir börn með gulu.
Göngudeildarþjónusta, nálastungur og símaráðgjöf
Ljósmæður sinna göngudeildarþjónustu allan sólarhringinn við konur
sem leita á deildina eða er vísað af læknum eða ljósmæðrum í eftirlit
fyrir eða eftir fæðingu. Helstu ástæður eru samdrættir á meðgöngu,
minnkaðar hreyfingar fósturs, blæðingar, verkir, nálastungur og vanda-
mál tengd brjóstagjöf. Við höfum verið að bjóða konum upp á nála-
stungumeðferð og eru konur hér á Suðurnesjum duglegar að nýta sér
það. Helstu nálastungumeðferðir sem við veitum eru nálastungur við
grindarverkjum, ógleði og undirbúning fyrir fæðingu en þá koma þær
einu sinni í viku frá 36. viku.
Jónína S. Birgisdóttir,
yfirljósmóðir Ljósmæðravaktar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
KVEÐJA FRÁ LJÓSMÆÐRUM Í NESKAUPSTAÐ
Á árunum 2007 til 2010 réðu fimm nýútskrifaðar ljósmæður sig til
starfa á fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Í dag
starfa enn fjórar við deildina svo við stefnum í óvenju vel mannaðan
vetur. Þrátt fyrir að hafa allar byrjað nýútskrifaðar, alveg grænar og
blautar á bak við eyrun, höfum við reynt að gera okkar allra besta og
ég held að við höfum staðið okkur vel. Hér er rekin eining þar sem
ljósmæður sjá algjörlega um að skipuleggja starfið og þá þjónustu
sem í boði er og viðfangsefnin eru mjög fjölbreytt. Hér hafa fætt um
80 konur árlega undanfarin ár. Við getum boðið hraustum konum í
eðlilegri meðgöngu að fæða hjá okkur eftir 37 vikna meðgöngu. Auk
fæðingarþjónustu bjóða ljósmæður hér upp á ráðgjöf fyrir getnað,
sónarskoðanir, mæðravernd, nálastungur, sængurlegu, heimaþjón-
ustu, brjóstagjafaráðgjöf og ungbarnavernd. Við njótum þeirra
forréttinda að fá að kynnast fjölskyldum snemma á meðgöngu, eða
jafnvel fyrir getnað, og fylgjum þeim eftir þar til barnið er orðið allt
að 18 mánaða. Við hittum fjölskyldur alls staðar að af Austurlandi og
sumar leggja mikið á sig til að koma til okkar. Við leggjum áherslu
á að veita persónulega þjónustu og reynum að hafa fæðingardeildina
heimilislega svo fjölskyldan geti notið helstu kosta þess að fæða á
litlum fæðingarstað.
Ég held að við sem störfum hér, ásamt þeim ljósmæðrum sem
hafa komið hér að leysa af, séum sammála um að vinnan okkar sé
algjörlega, frábærlega skemmtileg en líka krefjandi. Helsti kostur-
inn við að vinna á fæðingardeildinni í Neskaupstað er óneitanlega
fjölbreytileiki starfsins og þessi góðu tengsl sem óhjákvæmilegt
er að myndist þegar maður hittir fólk reglulega yfir langt tímabil.
Toppurinn á tilverunni er svo þegar maður tekur á móti fleiri en einu
barni í sömu fjölskyldu og að fá að hitta og fylgjast með börnunum
sem maður tekur á móti stækka og þroskast. Það eru þó ekki alltaf
bara jólin hjá okkur og stundum kemur eitthvað babb í bátinn. Það
veldur okkur stundum erfiðleikum við störf hvað við þurfum að
sækja ráðgjöf frá fæðingarlæknum langt að. Oft er erfitt að meta hluti
í gegnum síma þó að allir séu að gera sitt besta og færð og veður
eru okkur ekki alltaf hagstæð þegar þarf að senda konur. Þá hefur
mönnun skurð- og svæfingalækna orðið erfiðari með hverju árinu og
af og til kemur fyrir að það koma gloppur í mönnun þessara starfa
með tilheyrandi raski á störfum fæðingardeildarinnar. Auk þess hafa
veður og færð mikil áhrif á okkar störf, sérstaklega yfir vetrartímann,
en þá eru veðurfréttirnar vinsælasta sjónvarpsefnið og enginn missir
af. Sé spáin vond og von á ófærð fer oft talsverður tími hjá okkur í
að koma fjölskyldum sem vænta fæðingar fyrir úti í bæ. Hér fyrir
austan er um marga fjallvegi að fara sem geta verið erfiðir yfirferðar
á vetrum og tilhugsunin um ferðalagið á fæðingarstaðinn er réttilega
oft mikið kvíðaefni hjá verðandi foreldrum. Við reynum eftir bestu
getu að slá á þær áhyggjur og koma fólki í öruggt skjól réttu megin
Oddsskarðs áður en vont veður skellur á. Helst myndum við vilja sjá
mörg og góð jarðgöng undir sem flestar af okkar fallegu heiðum til
að tryggja aðgengi að deildinni sem best óháð veðri og færð.
Þó að fegurð austfirsku fjallanna sé algjörlega ómótstæðileg þá
gerir fjarlægðin við höfuðborgina og stóru sjúkrahúsin okkur nokkuð
erfitt fyrir ekki síst þegar kemur að endurmenntun og fréttir t.d. af
breyttu verklagi við hina ýmsu hluti eru oft ansi lengi að berast til
okkar. Kostnaður okkar við að sækja endurmenntun er margfaldur
á við þann sem til að mynda ljósmæður á höfuðborgarsvæðinu
Hrafnhildur Lóa, Ingibjörg, Oddný Ösp og Jónína Salný.