Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 45
45Ljósmæðrablaðið - desember 2015
„Ljósmóðurnámið hlýtur að vera skemmti-
legasta námið og það getur ekki annað
verið en að við séum besta hollið!“
Það má með sanni segja að síðastliðið rúma ár hafi verið viðburða-
ríkt hjá okkur ljósusystrum. Sambland af heilmiklum lærdómi, gleði,
spennu, þrautseigju, hörku og kærleik. Við munum allar eftir því við
upphaf fyrsta skólaársins þegar við hlustuðum á eldri systur okkar
kynna tilfellaverkefni sín. Mikið þótti okkur þær búa yfir mikilli
þekkingu eftir eitt ár og okkur fannst afar langsótt að við ættum eftir
að standa í sömu sporum eftir aðeins ár. Okkur grunar samt að svo
hafi verið í haust þegar við kynntum tilfellaverkefni okkar fyrir yngri
systrum. ☺
Þessi lukkupottur sem margar tala um að hafa dottið í eftir að hafa
byrjað í þessu námi, jú við lentum líka í honum. Þarna vorum við
búnar að eignast frábæran vinkonuhóp á einu bretti, hver annarri
ólíkari. Við sáum þó fljótt hvað það var sem við áttum allar sameig-
inlegt, sælkerar fram í fingurgóma! Já, það er óhætt að segja að við
höfum hent í nokkra rétti og hnallþórur þetta árið. Við fundum okkur
alltaf tilefni til að fagna og gleðjast saman, hvort sem það var áfanga-
lok, afmæli hjá bekkjarsystur eða bara af því að það var föstudagur.
Sumarbústaðarferð okkar sem við fórum í snemma á önninni mun
seint gleymast. Þar var mikið hlegið, talað, borðað og notið í botn.
Fljótlega eftir þá ferð fannst okkur tilvalið að hittast eitt kvöldið og
bjóða mökum með. Kynnast öll og gefa þeim tækifæri á að heyra
að þeir stæðu ekki einir. Það væru fleiri menn í þeirra sporum sem
þurftu sífellt að hlusta á umræður um fæðingar, alla daga. Vísinda-
ferðin til Keflavíkur var líka ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík.
Ljósmæður þar buðu okkur í heimsókn til að kynnast starfsemi þeirra
í Keflavík. Við nýttum tækifærið, hoppuðum upp í rútu og brunuðum
á Suðurnesið.
Meðan á öllu þessu stóð vorum við einnig á kafi í lærdómi og
verkefnavinnu. Fyrsta skólaárið byrjaði með hörku þar sem fyrstu
verkefnaskilin voru í sömu viku og við byrjuðum, algjörlega blautar
á bak við eyrun. Það var mikið álag þetta fyrsta ár í skólanum og við
allar að keppast við sama markmiðið, að verða góðar ljósmæður. Við
þurftum að takast á við mörg verkefnaskil, heimapróf, munnlegt próf
og skriflegt próf.
Við vorum vel upplýstar um gamlar hefðir sem höfðu ríkt í
deildinni í gegnum árin, eldri systur okkar sinntu þeirri skyldu með
prýði. Við buðum þeim m.a. í jólakaffi, þar sem dekkað var upp
með sparistelli, hvítum dúk og að sjálfsögðu boðið upp á hlaðborð
af kræsingum. Okkar bekkur breytti svo einum saumaklúbbnum
í jólaklúbb þar sem við hittumst og vorum með „jólapúkk“ og
jólastemmningu. Það sem var hlegið það kvöld!
Þegar við hittumst ferskar eftir jólafríið vorum við flestar
sammála um eitt, við höfðum aldrei átt jólafrí þar sem við vorum
nánast að bíða eftir því að það kláraðist. Jú, það var svo sannar-
lega ástæða fyrir því. Í byrjun janúar hófum við okkar fyrsta verk-
nám sem ljósmóðurnemar. Við vorum að fara að taka á móti okkar
fyrsta ljósubarni og færa því fallega smekkinn merktan „fyrsta
ljósubarnið“ sem við fengum í gjöf frá okkar kæru eldri systrum.
Við vorum allar með stóran hnút í maganum en samt svo tilbúnar
í þetta.
Álagið minnkaði ekki og nú tók við tími þar sem reyndi mikið á,
nú þurftum við að fara að tengja saman bóklega hlutann við verk-
lega námið. Við vorum að upplifa svo margt nýtt og spennandi.
Við vorum staðráðnar í að láta ekki álagið hafa áhrif á félagslíf
okkar. Árshátíðin tókst vel til þar sem við buðum eldri systrum og
kennurum með okkur. Við fórum út að borða og áttum virkilega
skemmtilegt og vel heppnað kvöld saman. Saumaklúbbarnir voru
ófáir, þar sem prjónarnir voru teknir fram, borðað og deilt sögum
úr verknámi. Nauðsynlegar stundir til að létta á hjarta okkar, bera
saman bækur og læra af hver annarri.
Þetta er búið að vera frábær tími. Ljósmóðurnámið hlýtur að
vera skemmtilegasta námið og það getur ekki annað verið en að við
séum besta hollið! ☺
Fyrir hönd Oddrúnar
Anna Margrét Einarsdóttir
Heiður Sif Heiðarsdóttir
O D D R Ú N - F É L A G L J Ó S M Æ Ð R A N E M A
Ljósmæðranemar á öðru ári veturinn 2015-2016.