Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 43
fólk - viðtal 31Helgarblað 2. febrúar 2018 J ón Kristinn fæddist árið 1967 og ólst upp á Kársnesinu í Kópavogi, eldri sonur hjón- anna Harald Snæhólm flug- manns og Þórunnar Hafstein ís- lenskufræðings. Hann var mjög náinn föðurafa sínum, Nirði H. Snæhólm, yfirlögregluþjóni hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, og varði miklum tíma með honum sem barn. Njörður var einnig flug- maður og hafði meðal annars tek- ið þátt í að berjast með norska flughernum gegn Þýskalandi nas- ismans. „Hann var mikill ævin- týramaður og sagði mér sögur bæði úr stríðinu og lögreglustör- funum. Hann kenndi mér líka að skrúfa skammbyssur og vél- byssur í sundur og saman, sýndi mér hvernig sprengjur virkuðu og fleira. Á þessum tíma var Geir- finnsmálið í hámæli og ég gekk um hraun með afa. Þar sem ég var lítill og liðugur var ég sendur ofan í gjótur og inn um sprungur til að leita að líkinu.“ Langaði þig að verða lögga? „Nei, en ég hafði mikinn áhuga á fluginu. Það var alltaf talað um flug heima. Loftleiðavinirnir hans pabba komu í heimsókn og gömlu flugsveitarfélagarnir hans afa, þetta voru allt miklir töffarar.“ Har- ald hafði meðal annars flogið með vistir í borgarastyrjöldinni í Bíafra, undir leiðsögn Þorsteins Jónsson- ar stríðshetju. „Ég var vinamargur sem barn en mér leið alltaf best í kringum eldra fólk og í einhverju grúski.“ Jón segir að æska sín og jafna- ldra sinna hafi verið eftirlitslausari en nú á tímum. „Við kveiktum í sinu, byggðum kofa, teikuðum, sprengdum kínverja og molotov- kokteila og sigldum út á Voginn á heimatilbúnum flekum. Í dag yrðu foreldrar sviptir forræði ef þeir létu svona viðgangast.“ Hann seg- ist ekki hafa verið vandræðaung- lingur en hafi vissulega tekið þátt í þeim prakkarastrikum sem jafn- aldrar hans stunduðu. „Ég lifði mjög ævintýralegri og góðri æsku. Pabbi var flugstjóri hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum, sem þýddi að stundum var maður sóttur í skól- ann og var allt í einu kominn til Flórída sjö klukkustundum síðar. Það voru forréttindi að vera sonur flugstjóra og heimurinn var opinn fyrir mér.“ Í föðurættinni var fólk af vinstri vængnum en móðurættin var af borgaralegu tagi. Afabróðir hans í móðurætt var Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra í viðreisn- arstjórninni. „Æska mín var því nokkuð tvískipt. Á sunnudög- um fórum við úr fjörugöllunum og í blazer-ana í heimsókn út á Ægisíðu.“ Harald í mannskæðu flugslysi á Sri Lanka Þann 15. nóvember árið 1978 átti sér stað mesta flugslys í sögu Íslands þegar Loftleiðavél af gerðinni DC-8 hrapaði í aðflugi nálægt flugvellinum í Colombo í Sri Lanka. Vélin var að flytja ís- lamska pílagríma frá Indónesíu til Sádi-Arabíu og átti að milli- lenda í borginni. Um 180 manns af 260 fórust, þar af átta úr íslenskri áhöfn vélarinnar. Fimm úr áhöfn- inni lifðu af, þar af Harald, faðir Jóns. „Ég man þetta mög skýrt. Við áttum að fara í skólann en mamma vakti mig og sagði að pabbi hefði lent í slysi. Hann væri ekki dáinn en mjög mikið slasaður.“ Á þessum tíma var talsamband við útlönd frumstætt og allar upplýsingar af skornum skammti í marga daga á eftir. „Í hvert skipti sem pabbi flaug út sagði hann við mig að nú þyrfti ég að passa mömmu og litla bróður. Þegar slysið gerðist kom þessi ábyrgðartilfinning yfir mig þó að ég hafi bara verið ellefu ára gamall.“ Harald var fluttur heim með sjúkraflugvél en hann hafði slas- ast mjög illa, var beinbrotinn í baki og skorinn víða. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá pabba, sem var hetjan mín, varnarlausan og liggjandi á sjúkrarúmi. Ég fékk að fara með honum í sjúkrabílnum í bæinn en við þurftum að stoppa í Hafnarfirði því að kafteinninn var svo svangur. Tvær pylsur með öllu og tvær litlar kók fóru ofan í hann.“ Eftir sex mánaða endurhæf- ingu var Harald kominn aftur í loftið. „Það var ekki til neitt sem hét áfallahjálp á þessum tíma. Við misstum góða vini í þessu slysi og minning þeirra er í hávegum höfð á mínu heimili. Þetta er alltaf þarna.“ Áfall að geta ekki orðið flugmaður Jón segist hafa verið staðráð- inn í að verða flugmaður eins og faðir sinn og afi. Ætlunin var að klára svifflugið sextán ára, síðan í menntaskóla, klára síðan einka- flugnámið og loks atvinnuflug- námið. „En svo kom höggið.“ Eftir að hafa tekið einkaflug- mannsprófið í svifflugi árið 1983 fór Jón í læknisskoðun. Þar var honum sagt að hann gæti aldrei orðið flugmaður þar sem hann væri blindur á öðru auga. Sjón- taugin inn í augnbotninn hafði verið ónýt frá fæðingu en auk þess lenti hann í slysi sem barn þegar hann rak augað í stólfót. „Ég vissi ekki að ég þyrfti að hafa sjón á báðum augum til að fljúga. Mamma fór með mig til helsta augnsérfræðings landsins og hann staðfesti að ég myndi aldrei verða flugmaður.“ Jón fékk þó að halda svifflug- mannsréttindum sínum þar sem enginn farþegi situr í slíkum vél- um. „Ég náði að svala mínum flug- áhuga með sviffluginu og að vera í flugstjórnarklefanum með pabba því hann átti alltaf vélar. Að fljúga farþegum frá A til B var ekki aðal- atriðið í mínum huga. Heldur að fljúga, vera innan um flugvélar, tala og skrifa um flugvélar, fara á söfn og fleira.“ Á bak við tjöldin Í stað flugdraumsins tók við sagn- fræði og stjórnmálafræðinám við Háskóla Íslands og Háskólann í Edinborg. En einnig virk þátttaka í stjórnmálum. Sem barn fékk hann áhuga á stjórnmálum eftir að hafa heyrt sögur frá föður sínum, afa og ömmu frá hernámi Þjóðverja í Noregi. Fimmtán ára gamall var hann dreginn á fund hjá Tý, fé- lagi Sjálfstæðismanna í Kópavogi og svo á þing hjá SUS, sambandi ungra Sjálfstæðismanna. Hann tók að sér ýmis trúnaðarstörf og sat í bæjarstjórn Kópavogs um tíma. „Sjálfstæðismönnum úr Kópavogi var nú strítt á þessum tíma. Þá var Davíð borgarstjóri í Reykjavík en félagsmálaöflin höfðu verið í meirihluta í Kópavogi í tólf ár. Sagt var að þetta væri eins og munur- inn á Austur- og Vestur-Berlín.“ Auk þess starfaði Jón mikið á erlendum vettvangi með Guð- laugi Þór Þórðarsyni, nú utanrík- isráðherra. Um tíma var Jón vara- formaður ungra íhaldsmanna í Evrópu og myndaði þá sterk tengsl við hægrimenn víða um álfuna, sérstaklega í Bretlandi. Langaði þig aldrei á þing? „Nei, eftir námið ákvað ég að fara ekki hina akademísku leið heldur fór beint í viðskipti. Ég starfaði í kosningastjórn og studdi mína menn en ég hafði ekki áhuga á að fara inn á þing. Ég taldi mig þekkja þingstarfið vel í gegnum vini mína og taldi þetta heftandi.“ Jón er þekktur sem maðurinn á bak við tjöldin og hefur verið í kosningastjórn hjá til að mynda Guðlaugi Þór, Vilhjálmi Vilhjálms- syni borgarstjóra, Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra í Kópavogi og Eyþóri Arnalds í bæjarstjórn Árborgar. Hvernig vinnur maður kosn- ingar? „Ég hef bæði unnið og tap- að kosningum í mörg skipti. Það sem skiptir mestu máli er fram- bjóðandinn sjálfur, útgeislunin og þekkingin. Ef það er ekki til stað- ar skiptir skipulag kosningabarátt- unnar litlu máli. Ég styð ekki fólk sem ég skynja að er ekki nálægt mér í lífsskoðunum og tel að eigi ekki erindi. Ég hef sagt fjölmörg- um aðilum það og uppskorið litlar vinsældir fyrir vikið.“ Viðskipti og Umhyggja Eftir námið fór Jón út í trygginga- bransann hjá Ísvá og seldi söfn- unarlíftryggingar að breskri fyrir- mynd. Fyrirtækið stækkaði ört og tók yfir Allianz á Íslandi sem var þá næstum gjaldþrota. Jón var stjórn- arformaður hjá Ísvá og Hreinn Loftsson hjá Allianz og var náið samstarf þar á milli. Jón var auk þess stjórnarformaður í verðbréfa- fyrirtækinu Fjárvernd. En laust eftir aldamótin fór að halla und- an fæti. „Árin eftir fyrri kreppuna árið 2001 fóru í að reyna að bjarga þessum fyrirtækjum, sem tókst nema með Ísvá. Það fór undir og þar á meðal ábyrgðir sem ég var í fyrir næstum því hundrað millj- ónir króna. Þetta lenti á mér og ég ætlaði ekkert í viðskipti aftur.“ Jón tók kúvendingu á sínum ferli og hóf störf fyrir Umhyggju, félag til styrktar langveikum börn- um. Náinn samstarfsmaður hans og vinur hafði misst fjögurra ára dóttur sína úr sjaldgæfum sjúk- dómi. „Hann bað mig um að koma inn í styrktarsjóðinn, sem var nú ekki burðugur. Ég starfaði þarna sem verkefnisstjóri og við náðum að gera hann nokkuð stöndugan. Þetta voru gefandi og góðir tímar.“ Hann hefur sinnt ýmsum ólík- legum verkefnum í gegnum tíðina. Til dæmis aðstoðaði hann Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur, sem stóð í mikilli forræðisdeilu, að flýja með þrjár dætur sínar til Íslands frá Kristiansand í Noregi árið 2013. Notaði hann þar tengslanet sitt til að leigja flugvélina. Nú aðstoðar hann Sunnu Elviru Þorkelsdóttur, sem féll af svölum í Malaga, við að komast heim til Íslands. „Vinkona mín liggur lömuð í Malaga á spítala sem er ekki að sinna henni. Hver einasta mínúta er dýrmæt en þjóðin brást við á tveimur sólarhringum og safnaði fyrir sjúkrafluginu heim. Nú erum við að bíða eftir leyfi frá spænsk- um yfirvöldum.“ Af hverju tekur þú að þér svona verkefni? „Það er eitt orðatiltæki sem ég vil lifa eftir. Vondir hlutir gerast þegar góðir menn aðhafast ekk- ert. Í þessum tilfellum hef ég haft bæði getuna og viljann til að tak- ast á við þetta. Það er mikið af fólki sem veit ekki hvert það á að leita í sínum vandamálum og ég er með gott tengslanet.“ Sjálfstæðisflokkurinn hefur tapað uppruna sínum Eftir starfið í Umhyggju aðstoð- aði Jón Vilhjálm Vilhjálmsson í borgarstjórnarkosningunum árið 2006. Sjálfstæðisflokkurinn komst í meirihluta og Vilhjálmur varð borgarstjóri í eitt og hálft ár. Þá starfaði Jón sem aðstoðarmaður hans. „Vilhjálmur dró mig á þann stað að hugsa um þá sem minna mega sín í samfélaginu, eldri borg- ara og öryrkja. Þetta voru mála- flokkar sem voru ekkert í tísku á þessum árum. Hann kenndi mér jafnvel meira en ég hafði lært í stjórnmálafræðináminu í háskól- anum.“ Á síðasta ári vakti Jón athygli fyrir að gagnrýna flokksforystu Sjálfstæðisflokksins í þætti sínum Heimastjórninni á sjónvarpsstöð- inni ÍNN. Þar sagði hann að flokk- urinn hefði í seinni tíð ekki haldið nógu vel utan um barnafjölskyld- ur, ellilífeyrisþega og öryrkja. Hvernig hefur flokkurinn brugð- ist? „Flokkurinn er búinn að tapa uppruna sínum. Flokkurinn hefði ekki verið svona stór og öflug- ur ef hann hefði ekki verið um- bótaflokkur á þessum sviðum og byggt upp félagslega kerfið með mildri borgaralegri stefnu. Sjálf- stæðisflokkurinn er ekki klassískur íhaldsflokkur og hefur aldrei verið það. Ef hann fer að reyna að vera það og hættir að horfa á þjóðfélag- ið eins og eina lífræna heild, stétt með stétt, og hættir að skilja að félagslega grunnnetið verður að vera traust þá á hann ekkert skil- ið að vera stærsti flokkur landsins. Þá getur hann haft fylgi svipað og aðrir íhaldsflokkar í Skandinavíu, fimm til tíu prósent. Versegú.“ Jón Kristinn Snæhólm er maður sem Ís- lendingar þekkja best úr þáttunum Heimastjórnin sem sýndir voru á sjónvarpsstöðinni ÍNN þar sem rætt var um þjóðfélagsmál. Hann hefur einnig ver- ið tengdur Sjálfstæðisflokknum frá unglingsárum, tekið þátt í kosningastjórn og verið virkur í starfi bæði hérlendis og erlendis. Jón hefur komið víða við á sínum fimmtíu árum, bæði í einkalífi og starfsferli, og dúkkað upp á ólíklegustu stöðum. Blaðamaður DV hitti hann að máli á skrifstofu Cordi, nýstofnuðu tæknifyrirtæki þar sem Jón starfar sem stjórnarfor- maður. Ræddu þeir saman um æskuna, flugdraum- inn, stjórnmálin og áfengisvandann en Jón fagnar nú því að ár er liðið síðan hann lagði flöskuna á hilluna. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Ég hef bæði unnið og tapað kosningum í mörg skipti Jón og Margaret Thatcher Varaformaður og verndari Ungra íhaldsmanna í Evrópu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.