Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 50
50 2. febrúar 2018 Ellý Ármannsdóttir leit dagsins ljós þann 13. maí árið 1970. Hún er dóttir þeirra Ármanns heitins Ármannssonar, skipstjóra og útgerðarmanns, og Bjargeyjar Elíasdóttur sem er búsett í Lúxem- borg. Hún á fimm hálfsystkini, tvö móðurmegin og þrjú föðurmegin, en Ellý ólst upp hjá móður sinni ásamt systkinum sínum, Eik og Pálma Gíslabörnum. Föðurmegin á hún systurnar Ragnhildi Írísi og Esther og bróðurinn Ármann. Ellý komst á kortið rétt fyrir síðustu aldamót þegar hún gerðist dagskrárþula hjá Ríkissjónvarpinu en fyrstu spor hennar í blaða- mennsku voru upp úr 2005 þegar hún tók að sér að skrifa stjörnuspár í DV. Fljótlega byrjaði hún svo að skrifa dægurmálagreinar og stýrði þá meðal annars Hér og nú, sem var fylgirit DV, og síðar Lífinu á Vísi við góðan orðstír. Ellý hefur alltaf haft mikinn áhuga á spádómum og stjörnuspeki. Hún hélt úti hinni vin- sælu vefsíðu spámaður.is og hannaði sín eigin Tarotspil sem seldust eins og heitar lummur á sínum tíma. Í dag er það hins vegar málaralistin sem á hug hennar allan en undan- farið hefur hún unnið að stórum málverkum sem hún vinnur bæði með olíu og akrýl á striga. Ellý leigir herbergi í hjarta borgarinnar þar sem hún deilir baði og eldhúsi með öðrum leigjendum. Hún á þrjú börn: Ármann Elías, 21 árs, Einar Alex, 19 ára og augasteininn Ellý, 10 ára. 7.30 Dagurinn byrjar á kaffibolla og málverki, áður en ég fer á fætur. Núna er ég að mála hross með kolum á striga og þau hafa vakið mikla lukku. Svo set ég myndir á Instagram sem er frábær leið til að kynna þetta. Ég mála alltaf tvö hross á hverja mynd af því þau eru eins og við mannfólkið, þrífast best í félagsskap. Svo mála ég líka flennistórar myndir af nöktum konum. Fyrirmyndin er reyndar alltaf ég sjálf af því það er erfitt að fá vinkonur til að sitja fyrir naktar eins og gefur að skilja. 12.00 Ég fer alltaf á sama staðinn til að fá mér að borða enda er ég naut og naut eru svo svakalega vanaföst. Ef nautinu finnst eitthvað gott þá er það ekkert að breyta til. Ég fæ mér alltaf kjúklingasalatið á Fresco en þar getur maður valið salatið sjálfur og sett í skál. Eftir það kem ég alltaf við í Slippfélaginu til að ná í málningu, kol eða verkfæri og þiggja nokkur góð ráð í leiðinni. 13.00 Eftir hádegi hitti ég oft góða vini eða funda með fólki sem hefur áhuga á að kaupa málverkin mín. Um daginn eyddi ég til dæmis heil- um eftirmiðdegi í stóru og fallegu húsi heima hjá fólki sem keypti verk af mér. Þau báðu mig að hjálpa sér að velja stað fyrir verkið sem er mjög stórt og flott og útkoman var í borðstofunni þar sem það sæmdi sér mjög vel. 16.00 Seinni partinn rölti ég gjarnan til Lindu á Reykjavík Ink en hún er að hjálpa mér að hanna mandala húð- flúr sem mun fara undir brjóstið á mér, undir það og aðeins niður á magann. Mandalan er sérstaklega hönnuð til að brynja brjóstið mitt af því ég er í sárum eftir árið 2017 – sem var bæði átakanlegt og erfitt. 19.00 Á kvöldin fer ég á æfingu hjá Magn- úsi Þór í Reebook. Hann er með æðislega body-pump tíma sem miða við að styrkja bæði þol og styrk og virka svona líka vel. Með því að taka þátt í þessum æfingum hef ég komið mér í eitt besta form sem ég hef verið í á ævinni. Eftir tímann finnst mér frábært að taka góða sturtu og slaka aðeins á enda er flókið að deila sturtunni þarna þar sem ég leigi. 20.00 Ég borða vanalega úti á kvöldin og finnst þá til dæmis gott að fá mér steik, kjúkling eða fisk. Það er svona að búa bara í herbergi, þá eldar maður lítið heima. Mér finnst það samt ekkert verra en að kaupa í mat- inn og henda svo helmingnum af hráefninu. Þegar ég er með stelpuna mína þá eru dagarnir reyndar aðeins öðruvísi. Þá einblíni ég bara á hana og okkur mæðgurnar en hún bræðir alveg hjarta mitt og blæs í mig lífi milli þess sem ég mála. 00.00 Það er mjög misjafnt hvenær ég fer að sofa því stundum er ég að mála langt fram á nótt. Ef ég er ekki einhvers staðar úti að hitta skemmtilegt fólk þá mála ég þar til ég fer að sofa, enda er ég að mála upp í bankaskuld, fimm milljónir. Tók mér frí frá MBA-námi til að geta klárað þessa skuld. Ég ætlaði reyndar að klára þessa skuld fyrir áramótin en svo tók þetta bara aðeins lengri tíma en ég hélt. Ellý á Instagram: instagram.com/ellyarmannsdottir Ellý Ármannsdóttir – risastórar hestamyndir, húðflúr á brjóstið og bodypump með Magnúsi„Seinni part- inn rölti ég gjarnan til Lindu á Reykjavík Ink en hún er að hjálpa mér að hanna mandala húðflúr sem mun fara undir brjóstið á mér, undir það og aðeins niður á magann. Da gur í l ífi Hvað er besta ráð sem þér Hefur verið gefið? Það kom frá honum Óla Tynes, sem var sessunautur minn þegar við unnum hjá 365. Óli sagði mér að hlusta alltaf bara á hjartað og ekkert helvítis kjaftæði. Hundsa raddir annarra og hlusta bara á mína eigin. besta ráð sem þú getur gefið öðrum? Ekki gefast upp, sama hvað þú ert að díla við, og ekki dvelja við vonleysi og sorg. Ekki missa trúna á sjálfa eða sjálfan þig og ekki hika við að biðja um aðstoð. Hvað vildir þú að þú Hefðir vitað fyrr? Hvað ég er sterk. m yn d si g tr yg g u r ar i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.