Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 50
50 2. febrúar 2018
Ellý Ármannsdóttir leit dagsins ljós þann 13. maí árið 1970. Hún er dóttir þeirra Ármanns
heitins Ármannssonar, skipstjóra
og útgerðarmanns, og Bjargeyjar
Elíasdóttur sem er búsett í Lúxem-
borg. Hún á fimm hálfsystkini, tvö
móðurmegin og þrjú föðurmegin,
en Ellý ólst upp hjá móður sinni
ásamt systkinum sínum, Eik og
Pálma Gíslabörnum. Föðurmegin
á hún systurnar Ragnhildi Írísi og
Esther og bróðurinn Ármann.
Ellý komst á kortið rétt fyrir
síðustu aldamót þegar hún gerðist
dagskrárþula hjá Ríkissjónvarpinu
en fyrstu spor hennar í blaða-
mennsku voru upp úr 2005 þegar
hún tók að sér að skrifa stjörnuspár
í DV. Fljótlega byrjaði hún svo að
skrifa dægurmálagreinar og stýrði
þá meðal annars Hér og nú, sem
var fylgirit DV, og síðar Lífinu á Vísi
við góðan orðstír. Ellý hefur alltaf
haft mikinn áhuga á spádómum og
stjörnuspeki. Hún hélt úti hinni vin-
sælu vefsíðu spámaður.is og hannaði
sín eigin Tarotspil sem seldust eins
og heitar lummur á sínum tíma. Í
dag er það hins vegar málaralistin
sem á hug hennar allan en undan-
farið hefur hún unnið að stórum
málverkum sem hún vinnur bæði
með olíu og akrýl á striga. Ellý leigir
herbergi í hjarta borgarinnar þar
sem hún deilir baði og eldhúsi með
öðrum leigjendum. Hún á þrjú börn:
Ármann Elías, 21 árs, Einar Alex, 19
ára og augasteininn Ellý, 10 ára.
7.30
Dagurinn byrjar á kaffibolla og
málverki, áður en ég fer á fætur.
Núna er ég að mála hross með
kolum á striga og þau hafa vakið
mikla lukku. Svo set ég myndir á
Instagram sem er frábær leið til
að kynna þetta. Ég mála alltaf tvö
hross á hverja mynd af því þau
eru eins og við mannfólkið, þrífast
best í félagsskap. Svo mála ég líka
flennistórar myndir af nöktum
konum. Fyrirmyndin er reyndar
alltaf ég sjálf af því það er erfitt að
fá vinkonur til að sitja fyrir naktar
eins og gefur að skilja.
12.00
Ég fer alltaf á sama staðinn til að
fá mér að borða enda er ég naut og
naut eru svo svakalega vanaföst.
Ef nautinu finnst eitthvað gott þá
er það ekkert að breyta til. Ég fæ
mér alltaf kjúklingasalatið á Fresco
en þar getur maður valið salatið
sjálfur og sett í skál. Eftir það kem
ég alltaf við í Slippfélaginu til að
ná í málningu, kol eða verkfæri og
þiggja nokkur góð ráð í leiðinni.
13.00
Eftir hádegi hitti ég oft góða vini
eða funda með fólki sem hefur
áhuga á að kaupa málverkin mín.
Um daginn eyddi ég til dæmis heil-
um eftirmiðdegi í stóru og fallegu
húsi heima hjá fólki sem keypti
verk af mér. Þau báðu mig að hjálpa
sér að velja stað fyrir verkið sem er
mjög stórt og flott og útkoman var
í borðstofunni þar sem það sæmdi
sér mjög vel.
16.00
Seinni partinn rölti ég gjarnan til
Lindu á Reykjavík Ink en hún er að
hjálpa mér að hanna mandala húð-
flúr sem mun fara undir brjóstið á
mér, undir það og aðeins niður á
magann. Mandalan er sérstaklega
hönnuð til að brynja brjóstið mitt
af því ég er í sárum eftir árið 2017 –
sem var bæði átakanlegt og erfitt.
19.00
Á kvöldin fer ég á æfingu hjá Magn-
úsi Þór í Reebook. Hann er með
æðislega body-pump tíma sem miða
við að styrkja bæði þol og styrk og
virka svona líka vel. Með því að taka
þátt í þessum æfingum hef ég komið
mér í eitt besta form sem ég hef
verið í á ævinni. Eftir tímann finnst
mér frábært að taka góða sturtu og
slaka aðeins á enda er flókið að deila
sturtunni þarna þar sem ég leigi.
20.00
Ég borða vanalega úti á kvöldin og
finnst þá til dæmis gott að fá mér
steik, kjúkling eða fisk. Það er svona
að búa bara í herbergi, þá eldar
maður lítið heima. Mér finnst það
samt ekkert verra en að kaupa í mat-
inn og henda svo helmingnum af
hráefninu. Þegar ég er með stelpuna
mína þá eru dagarnir reyndar
aðeins öðruvísi. Þá einblíni ég bara
á hana og okkur mæðgurnar en hún
bræðir alveg hjarta mitt og blæs í
mig lífi milli þess sem ég mála.
00.00
Það er mjög misjafnt hvenær ég
fer að sofa því stundum er ég að
mála langt fram á nótt. Ef ég er
ekki einhvers staðar úti að hitta
skemmtilegt fólk þá mála ég þar til
ég fer að sofa, enda er ég að mála
upp í bankaskuld, fimm milljónir.
Tók mér frí frá MBA-námi til að
geta klárað þessa skuld. Ég ætlaði
reyndar að klára þessa skuld fyrir
áramótin en svo tók þetta bara
aðeins lengri tíma en ég hélt.
Ellý á Instagram:
instagram.com/ellyarmannsdottir
Ellý Ármannsdóttir
– risastórar hestamyndir, húðflúr á brjóstið og bodypump með Magnúsi„Seinni part-
inn rölti ég
gjarnan til Lindu á
Reykjavík Ink en hún
er að hjálpa mér
að hanna mandala
húðflúr sem mun fara
undir brjóstið á mér,
undir það og aðeins
niður á magann.
Da
gur
í l
ífi
Hvað er besta ráð
sem þér Hefur verið gefið?
Það kom frá honum Óla Tynes,
sem var sessunautur minn þegar
við unnum hjá 365. Óli sagði mér
að hlusta alltaf bara á hjartað og
ekkert helvítis kjaftæði. Hundsa
raddir annarra og hlusta bara á
mína eigin.
besta ráð sem þú
getur gefið öðrum?
Ekki gefast upp, sama hvað þú
ert að díla við, og ekki dvelja við
vonleysi og sorg. Ekki missa trúna á
sjálfa eða sjálfan þig og ekki hika
við að biðja um aðstoð.
Hvað vildir þú að
þú Hefðir vitað fyrr?
Hvað ég er sterk.
m
yn
d
si
g
tr
yg
g
u
r
ar
i