Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 64
64 menning Helgarblað 2. febrúar 2018 Timothy Morton er einn áhrifamesti heimspekingur heims um þessar mundir Á föstudag heldur Bretinn Timothy Morton, prófess- or við Rice-háskóla, fyrir- lestur í Safnahúsinu. Hann er einhver eftirtektarverðasti hug- suður heims um þessar mundir og var nýlega valinn einn af 50 áhrifa- mestu heimspekingum heims af háskólamatssíðunni The Best Schools. Þó að bakgrunnur hans sé í enskum rómantískum ljóðum hefur hann smám saman fært sig í átt að heimspeki og hugsun um vistfræðileg málefni. Nálgun hans er oft og tíðum óvænt, hann sækir innblástur jafnt í popp- kúltúr sem hugmyndir annarra menningarheima, og er óhrædd- ur við að búa til ný hugtök til að skýra veruleikann: „ofurhlutir“ (e. hyperobjects), „myrk vistfræði“ (e. dark ecology), „raunhyggjutöfrar“ (e. realist magic) og „möskvinn“ (e. the mesh) eru meðal hugtaka sem hann hefur kynnt í verkum sínum og dreifast nú óðfluga um heim hugvísinda og lista. Það eru ekki síst – og kannski fyrst og fremst – listamenn sem hafa gripið hugmyndir hans á lofti og hefur hann meðal annars unnið með Björk, Ólafi Elíassyni og hinum virta sýningarstjóra Hans Ulrich Obrist. Fyrirlestur- inn í Safnahúsinu ber yfirskrift- ina „Þú ert ekki ennþá farinn að gera vistfræðilega list“ og virðist af stuttum kynningartexta fjalla um listsköpun á tímum vistfræðilegr- ar meðvitundar. Blaðamaður DV fræddist um Timothy Morton hjá Sigrúnu Ingu Hrólfsdóttur, myndlistarkonu og deildarforseta myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, en hún mun stýra pallborðsumræðum eftir að fyrirlestri Mortons lýkur. Gegn stigveldi hlutanna Timothy Morton er í dag hvað þekktastur fyrir að velta fyrir sér þeim vandamálum sem steðja að lífríki jarðar nú á mannöld (e. anthropocene), þeim tíma í jarð- sögunni þegar mannskepnan er farin að hafa afgerandi áhrif á jörðina og vistkerfi hennar, með loftslagsbreytingum, kjarnorkuúr- gangi og fjöldaútrýmingu annarra lífvera. TIl að takast á við þetta vinnur hann á mörkum fræði- greina, snýr hugmyndum okkar um heiminn á hvolf. Nálgun hans á vistfræði er því nokkkuð óvenju- leg, að sögn Sigrúnar. „Hann er ekki í liðinu með þeim sem eru stöðugt að skamma fólk og segja því að allt fari til helvítis ef það endurvinni ekki umbúðir. Rosalega mikið af um- hverfisumræðunni felst í þessu, þannig að fólk er komið með gríðarlegt samviskubit þó að það eitt beri ekki ábyrgð á þessu,“ segir Sigrún. „Morton gengst auð- vitað við því að við verð- um að bregðast við, taka ábyrgð og reyna að finna nýjar leiðir. En umfram allt þurfum við kannski að breyta hugsun okkar, til að geta tekið á móti þessari framtíð sem er að koma. Honum finnst dómsdagsstemningin ekkert sérstaklega gagnleg.“ Í stað þess að skammast sín hver í sínu horni þurfa manneskj- ur að finna nýjar leiðir til að hugsa um tengsl sín við umhverfið og alheiminn, og það er slík hugs- un sem Morton reynir að þróa í verkum sínum. Hann færir með- al annars rök fyrir því að allt í ver- öldinni sé tengt svo óendanlega mörgum flóknum böndum að ómögulegt sé að skipta heiminum upp í mann og náttúru eða aðrar slíkar andstæður – veruleikinn sé einn stór samanflæktur möskvi. Eitt mikilvægasta verkefnið í dag álítur hann vera að rífa niður stigveldi milli mismunandi hluta í þessum möskva, milli manns og dýra, dauðra hluta og skáld- aðra fyrirbæra, örvera og „ofur- hluta“, það eru fyrirbæri sem eru svo dreifð í tíma og rúmi og svo abstrakt að ein manneskja getur aldrei upplifað þá sem heild. Til þess að geta þetta telur hann að endurhugsa þurfi verufræði vest- rænnar heimspeki – hugmyndir um hvaða hlutir séu til og hvernig þeir séu til – sem hann segir ávallt hafa sett manninn í miðju al- heimsins og aðra hluti skör neðar. Maðurinn úr miðjunni „Morton er einn af upphafsmönn- um nýrrar hreyfingar í heimspeki sem nefnist hlutmiðuð verufræði, Object-oriented ontology, skammstafað OOO. Þessir heim- spekingar eiga það sameiginlegt að þeir hafna því að heimspeki þurfi alltaf að vera í tengslum við mennska vitund og allt sé hugs- að út frá manninum. Jörðin og al- heimurinn var til löngu áður en maðurinn varð til og það er svo mikið sem maðurinn veit ekkert um – við þurfum að geta talað um það líka. Þessir heimspekingar vilja halda því fram að þessi mann- miðjuhyggja sé orsökin af öll- um þeim vandamálum sem við erum að glíma við núna, lofts- lagsbreytingar og hlýnun jarðar. Sem hluti af þessu vilja þeir brjóta niður tvíhyggju náttúru og menn- ingar – hafna því að það sé yfir- höfuð nokkur aðskilnaður milli manna og náttúru. En þeir vilja líka brjóta niður andstæðuna milli hugveru og hlutveru. Samkvæmt þeirra hugmyndum er allt bara hlutur,“ segir Sigrún. „Þeir hafa verið gagnrýndir fyr- ir þetta og þetta hefur verið sögð hlutgerving. En það má benda á að það er ekki verið að segja að all- ir hlutir hafi sömu eiginleika, ekki verið að leggja alla hluti að jöfnu, það er bara verið að segja að sum- ir hlutir séu ekki meira til en aðrir.“ Þessi krafa um að maðurinn hætti að hugsa um sjálfan sig sem miðju alheimsins og gangist við jafnræði hluta og fyrirbæra al- heimsins, býður upp á nýstárlegan lestur á ýmsums kenningum. Í síð- ustu bók sinni, Humankind, skoð- ar Morton til að mynda hvort hægt sé að hugsa sér kenningar Karls Marx í þessu ljósi, kommúnisma sem nær ekki einungis til mann- eskja heldur einnig „ómennsks fólks“, eins og hann kallar hlutina. Morton álítur eitt allra mikil- vægasta tækið til að breyta hug- myndum mannkyns um stöðu sína í alheiminum vera listsköpun og fagurfræði. „Við búum í sam- félagi þar sem öllu er skipt upp í deildir – læknir sérhæfir sig í einu líffæri svo dæmi sé tekið. En vandamálið er að engin ein deild nær að takast á við heildina. Þó að þar sé líka einhver skipting þá eru listirnar frjálsari en til dæmis vísindin, að fara um víðan völl og geta í raun leyft sér það sem þeim dettur í hug,“ segir Sigrún. n Fyrirlestur Timothy Morton fer fram í Safnahúsinu þann 2. febrúar kl. 13.30. „Hann er ekki í liðinu með þeim sem eru stöð- ugt að skamma fólk og segja því að allt fari til helvítis ef það endurvinni ekki umbúðir. Timothy Morton Einn áhrifamesti hugmyndasmiður heims um þessar mundir talar í Safnahúsinu á föstudag. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Traces Úr dansverki Rósu Ómarsdóttur, Traces, sem er meðal annars innblásið af hugmyndum Timothy Mortons. Ofurhlutir, töfrar og vistfræði án náttúru → Inni- og útimerkingar → Sandblástursfilmur → Striga- og ljósmyndaprentun → Bílamerkingar → Gluggamerkingar → Prentun á símahulstur → Frágangur ... og margt fleira Skoðaðu þjónustu okkar á Xprent.is SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.