Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 64
64 menning Helgarblað 2. febrúar 2018
Timothy Morton er einn áhrifamesti heimspekingur heims um þessar mundir
Á
föstudag heldur Bretinn
Timothy Morton, prófess-
or við Rice-háskóla, fyrir-
lestur í Safnahúsinu. Hann
er einhver eftirtektarverðasti hug-
suður heims um þessar mundir og
var nýlega valinn einn af 50 áhrifa-
mestu heimspekingum heims
af háskólamatssíðunni The Best
Schools.
Þó að bakgrunnur hans sé í
enskum rómantískum ljóðum
hefur hann smám saman fært
sig í átt að heimspeki og hugsun
um vistfræðileg málefni. Nálgun
hans er oft og tíðum óvænt, hann
sækir innblástur jafnt í popp-
kúltúr sem hugmyndir annarra
menningarheima, og er óhrædd-
ur við að búa til ný hugtök til að
skýra veruleikann: „ofurhlutir“ (e.
hyperobjects), „myrk vistfræði“ (e.
dark ecology), „raunhyggjutöfrar“
(e. realist magic) og „möskvinn“
(e. the mesh) eru meðal hugtaka
sem hann hefur kynnt í verkum
sínum og dreifast nú óðfluga um
heim hugvísinda og lista.
Það eru ekki síst – og kannski
fyrst og fremst – listamenn sem
hafa gripið hugmyndir hans á
lofti og hefur hann meðal annars
unnið með Björk, Ólafi Elíassyni
og hinum virta sýningarstjóra
Hans Ulrich Obrist. Fyrirlestur-
inn í Safnahúsinu ber yfirskrift-
ina „Þú ert ekki ennþá farinn að
gera vistfræðilega list“ og virðist af
stuttum kynningartexta fjalla um
listsköpun á tímum vistfræðilegr-
ar meðvitundar.
Blaðamaður DV fræddist um
Timothy Morton hjá Sigrúnu Ingu
Hrólfsdóttur, myndlistarkonu og
deildarforseta myndlistardeildar
Listaháskóla Íslands, en hún mun
stýra pallborðsumræðum eftir að
fyrirlestri Mortons lýkur.
Gegn stigveldi hlutanna
Timothy Morton er í dag hvað
þekktastur fyrir að velta fyrir sér
þeim vandamálum sem steðja
að lífríki jarðar nú á mannöld (e.
anthropocene), þeim tíma í jarð-
sögunni þegar mannskepnan er
farin að hafa afgerandi áhrif á
jörðina og vistkerfi hennar, með
loftslagsbreytingum, kjarnorkuúr-
gangi og fjöldaútrýmingu annarra
lífvera. TIl að takast á við þetta
vinnur hann á mörkum fræði-
greina, snýr hugmyndum okkar
um heiminn á hvolf. Nálgun hans
á vistfræði er því nokkkuð óvenju-
leg, að sögn Sigrúnar.
„Hann er ekki í liðinu með
þeim sem eru stöðugt að skamma
fólk og segja því að allt fari til
helvítis ef það endurvinni ekki
umbúðir. Rosalega mikið af um-
hverfisumræðunni felst
í þessu, þannig að fólk
er komið með gríðarlegt
samviskubit þó að það
eitt beri ekki ábyrgð á
þessu,“ segir Sigrún.
„Morton gengst auð-
vitað við því að við verð-
um að bregðast við, taka
ábyrgð og reyna að finna
nýjar leiðir. En umfram
allt þurfum við kannski
að breyta hugsun okkar,
til að geta tekið á móti
þessari framtíð sem er
að koma. Honum finnst
dómsdagsstemningin
ekkert sérstaklega gagnleg.“
Í stað þess að skammast sín
hver í sínu horni þurfa manneskj-
ur að finna nýjar leiðir til að hugsa
um tengsl sín við umhverfið og
alheiminn, og það er slík hugs-
un sem Morton reynir að þróa í
verkum sínum. Hann færir með-
al annars rök fyrir því að allt í ver-
öldinni sé tengt svo óendanlega
mörgum flóknum böndum að
ómögulegt sé að skipta heiminum
upp í mann og náttúru eða aðrar
slíkar andstæður – veruleikinn sé
einn stór samanflæktur möskvi.
Eitt mikilvægasta verkefnið í
dag álítur hann vera að rífa niður
stigveldi milli mismunandi hluta
í þessum möskva, milli manns
og dýra, dauðra hluta og skáld-
aðra fyrirbæra, örvera og „ofur-
hluta“, það eru fyrirbæri sem eru
svo dreifð í tíma og rúmi og svo
abstrakt að ein manneskja getur
aldrei upplifað þá sem heild. Til
þess að geta þetta telur hann að
endurhugsa þurfi verufræði vest-
rænnar heimspeki – hugmyndir
um hvaða hlutir séu til og hvernig
þeir séu til – sem hann segir ávallt
hafa sett manninn í miðju al-
heimsins og aðra hluti skör neðar.
Maðurinn úr miðjunni
„Morton er einn af upphafsmönn-
um nýrrar hreyfingar í heimspeki
sem nefnist hlutmiðuð verufræði,
Object-oriented ontology,
skammstafað OOO. Þessir heim-
spekingar eiga það sameiginlegt
að þeir hafna því að heimspeki
þurfi alltaf að vera í tengslum við
mennska vitund og allt sé hugs-
að út frá manninum. Jörðin og al-
heimurinn var til löngu áður en
maðurinn varð til og það er svo
mikið sem maðurinn veit ekkert
um – við þurfum að geta talað um
það líka.
Þessir heimspekingar vilja
halda því fram að þessi mann-
miðjuhyggja sé orsökin af öll-
um þeim vandamálum sem við
erum að glíma við núna, lofts-
lagsbreytingar og hlýnun jarðar.
Sem hluti af þessu vilja þeir brjóta
niður tvíhyggju náttúru og menn-
ingar – hafna því að það sé yfir-
höfuð nokkur aðskilnaður milli
manna og náttúru. En þeir vilja
líka brjóta niður andstæðuna milli
hugveru og hlutveru. Samkvæmt
þeirra hugmyndum er allt bara
hlutur,“ segir Sigrún.
„Þeir hafa verið gagnrýndir fyr-
ir þetta og þetta hefur verið sögð
hlutgerving. En það má benda á
að það er ekki verið að segja að all-
ir hlutir hafi sömu eiginleika, ekki
verið að leggja alla hluti að jöfnu,
það er bara verið að segja að sum-
ir hlutir séu ekki meira til en aðrir.“
Þessi krafa um að maðurinn
hætti að hugsa um sjálfan sig sem
miðju alheimsins og gangist við
jafnræði hluta og fyrirbæra al-
heimsins, býður upp á nýstárlegan
lestur á ýmsums kenningum. Í síð-
ustu bók sinni, Humankind, skoð-
ar Morton til að mynda hvort hægt
sé að hugsa sér kenningar Karls
Marx í þessu ljósi, kommúnisma
sem nær ekki einungis til mann-
eskja heldur einnig „ómennsks
fólks“, eins og hann kallar hlutina.
Morton álítur eitt allra mikil-
vægasta tækið til að breyta hug-
myndum mannkyns um stöðu
sína í alheiminum vera listsköpun
og fagurfræði. „Við búum í sam-
félagi þar sem öllu er skipt upp
í deildir – læknir sérhæfir sig í
einu líffæri svo dæmi sé tekið. En
vandamálið er að engin ein deild
nær að takast á við heildina. Þó
að þar sé líka einhver skipting þá
eru listirnar frjálsari en til dæmis
vísindin, að fara um víðan völl og
geta í raun leyft sér það sem þeim
dettur í hug,“ segir Sigrún. n
Fyrirlestur Timothy Morton fer
fram í Safnahúsinu þann
2. febrúar kl. 13.30.
„Hann er ekki í liðinu með þeim sem eru stöð-
ugt að skamma fólk og segja því að allt fari til
helvítis ef það endurvinni ekki umbúðir.
Timothy Morton Einn áhrifamesti
hugmyndasmiður heims um þessar mundir
talar í Safnahúsinu á föstudag.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Traces Úr dansverki Rósu Ómarsdóttur, Traces,
sem er meðal annars innblásið af hugmyndum
Timothy Mortons.
Ofurhlutir,
töfrar og
vistfræði
án náttúru
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS