Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 53
532. febrúar 2018
Sterkur á svellinu
Blaðamenn DV, þau Margrét H. Gústavsdóttir og Björn Þorfinnsson, prófa nýja Citroën C3 Aircross jepplinginn.
MARGRÉT:
Í hugum margra Íslendinga
hefur Citroën lengi verið einhvers
konar listamannabíll. Bíllinn sem
viðkvæma ljóðskáldið myndi velja
sér, týpan sem myndi frekar draga
rauðvínsbelju upp úr skottinu og
detta í það en að reyna að skipta
um dekk. Skrifa svo atómljóð um
reynsluna. Semsagt, ekki mjög
karlmannlegur bíll. Sjálf hef ég
alveg gerst sek um smá fordóma
líka. Ég hef ímyndað mér að
Frakkar væru mikið betri í að
mixa ilmvötn og gera fallega kjóla
en að hanna góða bíla sem henta
íslenskum aðstæðum. Mögulega
hafði ég rétt fyrir mér í einhver ár
en nú er þessi staða gerbreytt.
Citroën hefur hækkað
gæðastandardinn svo svakalega hjá
sér að bílarnir frá þeim eru komnir
á lista yfir bestu bíla ársins, bæði
nú og á síðasta ári. Þeir fljúga í
gegnum hvert gæðaprófið á fætur
öðru enda mikið í þessa bíla lagt.
Citroën C3 Aircross er trompið
þeirra í ár. Eins konar „multi-
purpose jepplingur“ sem maður
ímyndar sér að sé hannaður fyrir
praktísku týpuna sem vill eiga
möguleikann á því að leggja niður
sætin og fylla skottið af einhverju
sem tengist áhugamálunum, taka
þau svo upp aftur og smella krökk-
unum inn. Farangursrými bílsins
er það stærsta í þessum flokki
bíla, eða 410 lítrar, og að auki eru
aftursætin á sleða svo auðvelt er að
stækka farangursrýmið í 510 lítra.
Hægt að velja á milli flippstiga í útliti
Framleiðendur Citroën hafa
alltaf verið duglegir að ráða til sín
flippaða hönnuði. Allt frá gamla
bragganum til Cactus hafa Frakk-
arnir ekki hikað við að fara aðeins
út fyrir rammann. C3 Aircross er
engin undantekning þótt hann
skeri sig ekki jafn mikið úr og
áðurnefndir bílar. Ég myndi ekki
segja að mér þætti hann sérstak-
lega töff en hann er skemmtilega
snaggaralegur um leið og hann er
frekar látlaus, sérstaklega að innan
enda mikið lagt upp úr því að hafa
bílinn rúmgóðan og því ekkert
óþarfa pláss tekið í pjattið. Ef þú
ert týpan sem tekur smá sénsa með
flippið þá velurðu eflaust tvílita
útgáfu en bíllinn kemur einnig
látlausari, t.d. hvítur með svörtu
þaki eða alveg svartur.
Svakalega töff innkaupakerra
Þessi bíll er þokkalega lipur í
akstri. Stýrið er óvanalega létt og
bremsurnar lesa nánast hugsanir
sem fólki gæti eflaust þótt bæði
kostur og galli. Hann er fljótur að
taka af stað og þægilega hljóðlát-
ur en það besta við hann er hið
svokallaða ESP stöðugleikakerfi
með spólvörn. Vægast sagt algjör
snilld. Við prófuðum að keyra
inn á bílaplan sem var bókstaflega
jafn pikkfrosið og skautasvellið á
Ingólfstorgi en það var ekki eins og
maður fyndi fyrir því. Ég prófaði
bæði að snarhemla og taka hratt
af stað en það var eins og bíllinn
skellti bara mannbroddum á dekk-
in um leið og hann nam hálkuna.
Yfirnáttúrulegir taktar. Við þetta
varð ég samstundis mikið skotnari
í þessum jepplingi, sem ég hafði
örfáum sekúndum áður líkt við
innkaupakerru. Hann varð að
minnsta kosti alveg svakalega töff
innkaupakerra, eða jafnvel úlfur í
sauðargæru, eins og þeir hjá Top
Gear kalla hann.
Niðurstaða:
Ef ég væri með þriggja til fimm
manna fjölskyldu, færi reglulega
út á land, legði mikið upp úr góðu
skotti eða þyrfti að aka miklar
vegalengdir á hverjum degi þá
myndi þessi bíll henta mér frábær-
lega. Yfirnáttúrulega stöðugleika-
kerfið með spólvörninni gerir
hann líka sérlega öruggan í akstri
við þær erfiðu aðstæður sem oft
myndast hér á landi og vissulega
höfðar það til fjölskyldufólks
að setja öryggið á oddinn, enda
dýrmætur farmur um borð. En
þar sem ég er miðaldra kona sem
elskar sjónvarpsþættina Broen og
dreymir um að vera eins og Saga
Noren; í svörtum leðurbuxum,
brunandi um á grænum Porche
meðan hún leysir glæpamál, þá er
þessi snaggaralegi fjölskyldubíll
kannski ekki alveg mín týpa þótt
góður sé. Allt hefur sinn tíma.
Vó! Þetta Var magnað! Bíllinn átti
snilldartakta á ísilögðu bílaplani sem skilaði
sér í mikilli hrifningu ökumannanna.
nóg pláss í skottinu Skottið er hægt að stækka með einu handtaki og sætin er auðvelt að leggja niður eða færa framar.
snoturt Mælaborðið er snoturt en á snertiskjánum er bæði hægt að stilla inn götukort, akstursmyndavél og margt fleira. Þá
er einnig snertilaus hleðsla fyrir iPhone í bílnum og þráðlaust net.