Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 53

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 53
532. febrúar 2018 Sterkur á svellinu Blaðamenn DV, þau Margrét H. Gústavsdóttir og Björn Þorfinnsson, prófa nýja Citroën C3 Aircross jepplinginn. MARGRÉT: Í hugum margra Íslendinga hefur Citroën lengi verið einhvers konar listamannabíll. Bíllinn sem viðkvæma ljóðskáldið myndi velja sér, týpan sem myndi frekar draga rauðvínsbelju upp úr skottinu og detta í það en að reyna að skipta um dekk. Skrifa svo atómljóð um reynsluna. Semsagt, ekki mjög karlmannlegur bíll. Sjálf hef ég alveg gerst sek um smá fordóma líka. Ég hef ímyndað mér að Frakkar væru mikið betri í að mixa ilmvötn og gera fallega kjóla en að hanna góða bíla sem henta íslenskum aðstæðum. Mögulega hafði ég rétt fyrir mér í einhver ár en nú er þessi staða gerbreytt. Citroën hefur hækkað gæðastandardinn svo svakalega hjá sér að bílarnir frá þeim eru komnir á lista yfir bestu bíla ársins, bæði nú og á síðasta ári. Þeir fljúga í gegnum hvert gæðaprófið á fætur öðru enda mikið í þessa bíla lagt. Citroën C3 Aircross er trompið þeirra í ár. Eins konar „multi- purpose jepplingur“ sem maður ímyndar sér að sé hannaður fyrir praktísku týpuna sem vill eiga möguleikann á því að leggja niður sætin og fylla skottið af einhverju sem tengist áhugamálunum, taka þau svo upp aftur og smella krökk- unum inn. Farangursrými bílsins er það stærsta í þessum flokki bíla, eða 410 lítrar, og að auki eru aftursætin á sleða svo auðvelt er að stækka farangursrýmið í 510 lítra. Hægt að velja á milli flippstiga í útliti Framleiðendur Citroën hafa alltaf verið duglegir að ráða til sín flippaða hönnuði. Allt frá gamla bragganum til Cactus hafa Frakk- arnir ekki hikað við að fara aðeins út fyrir rammann. C3 Aircross er engin undantekning þótt hann skeri sig ekki jafn mikið úr og áðurnefndir bílar. Ég myndi ekki segja að mér þætti hann sérstak- lega töff en hann er skemmtilega snaggaralegur um leið og hann er frekar látlaus, sérstaklega að innan enda mikið lagt upp úr því að hafa bílinn rúmgóðan og því ekkert óþarfa pláss tekið í pjattið. Ef þú ert týpan sem tekur smá sénsa með flippið þá velurðu eflaust tvílita útgáfu en bíllinn kemur einnig látlausari, t.d. hvítur með svörtu þaki eða alveg svartur. Svakalega töff innkaupakerra Þessi bíll er þokkalega lipur í akstri. Stýrið er óvanalega létt og bremsurnar lesa nánast hugsanir sem fólki gæti eflaust þótt bæði kostur og galli. Hann er fljótur að taka af stað og þægilega hljóðlát- ur en það besta við hann er hið svokallaða ESP stöðugleikakerfi með spólvörn. Vægast sagt algjör snilld. Við prófuðum að keyra inn á bílaplan sem var bókstaflega jafn pikkfrosið og skautasvellið á Ingólfstorgi en það var ekki eins og maður fyndi fyrir því. Ég prófaði bæði að snarhemla og taka hratt af stað en það var eins og bíllinn skellti bara mannbroddum á dekk- in um leið og hann nam hálkuna. Yfirnáttúrulegir taktar. Við þetta varð ég samstundis mikið skotnari í þessum jepplingi, sem ég hafði örfáum sekúndum áður líkt við innkaupakerru. Hann varð að minnsta kosti alveg svakalega töff innkaupakerra, eða jafnvel úlfur í sauðargæru, eins og þeir hjá Top Gear kalla hann. Niðurstaða: Ef ég væri með þriggja til fimm manna fjölskyldu, færi reglulega út á land, legði mikið upp úr góðu skotti eða þyrfti að aka miklar vegalengdir á hverjum degi þá myndi þessi bíll henta mér frábær- lega. Yfirnáttúrulega stöðugleika- kerfið með spólvörninni gerir hann líka sérlega öruggan í akstri við þær erfiðu aðstæður sem oft myndast hér á landi og vissulega höfðar það til fjölskyldufólks að setja öryggið á oddinn, enda dýrmætur farmur um borð. En þar sem ég er miðaldra kona sem elskar sjónvarpsþættina Broen og dreymir um að vera eins og Saga Noren; í svörtum leðurbuxum, brunandi um á grænum Porche meðan hún leysir glæpamál, þá er þessi snaggaralegi fjölskyldubíll kannski ekki alveg mín týpa þótt góður sé. Allt hefur sinn tíma. Vó! Þetta Var magnað! Bíllinn átti snilldartakta á ísilögðu bílaplani sem skilaði sér í mikilli hrifningu ökumannanna. nóg pláss í skottinu Skottið er hægt að stækka með einu handtaki og sætin er auðvelt að leggja niður eða færa framar. snoturt Mælaborðið er snoturt en á snertiskjánum er bæði hægt að stilla inn götukort, akstursmyndavél og margt fleira. Þá er einnig snertilaus hleðsla fyrir iPhone í bílnum og þráðlaust net.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.