Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Side 28
J ó n Yn g v i J ó h a n n s s o n
28 TMM 2018 · 1
eru þrír, eins og í ævintýrunum og eins og þrenningin, faðir sonur og heilagur
andi. En táknræn merking þeirra er margbrotnari en svo, rósin er átta blaða
rós, Rosa Candida. Auður gerir þetta heiti einmitt að umræðuefni í viðtali
um verk sín á heimasíðu Miðstöðvar íslenskra bókmennta, í franskri þýðingu
heitir bókin Rosa Candida „sem er líka heiti sem var notað um Maríu guðs-
móður í gömlum bókum.“10 Talan átta tengist líka óendanleikanum, tákn
hans í stærðfræði er ∞, átta á hlið. Rósaafleggjararnir þrír, hver með átta
blöð, mynda þannig töluna 888 sem er sú tala sem fæst þegar stöfunum í
grísku formi nafnsins Jesús er gefið talnagildi og þeir lagðir saman.11
Rósirnar eru tákn eilífðarinnar og Jesú Krists. Þessar rósir hafa sérstök
tengsl við dóttur Arnljóts, Flóru Sól, hún er afleggjari hans og móður hans,
rétt eins og rósirnar. Dagsetningar í sögunni styðja þetta, Flóra Sól fæðist á
afmælisdegi móður hans, sem einnig er dánardagur hennar, þannig tryggir
fæðing barnsins ódauðleika móðurinnar.
Hér gæti einhverjum þótt túlkandinn kominn út á nokkuð langsóttar
brautir en þegar rýnt er í fleiri tákn í sögunni kemur í ljós að þessar tengingar
við óendanleikann og Jesú Krist eru engar tilviljanir.
Rós er rós er rós, eða hvað?
Afleggjarinn fjallar að stórum hluta um gróður, ekki síst um rósir. Arnljótur
er ástríðufullur garðyrkjumaður, þeirri ástríðu deildi hann með móður sinni
og þegar hann leggur af stað í sitt ferðalag hefur hann með sér þrjá afleggjara
af sérstöku afbrigði áttablaðarósarinnar sem móðir hans hefur ræktað. Hér
má raunar gera lítinn útúrdúr um titla bókanna tveggja. Þeir eru báðir marg-
ræðir, afleggjarinn vísar auðvitað til rósaafleggjaranna en titillinn er í eintölu
og því freistandi að líta svo á að barnið sem Arnljótur eignast í sögunni, Flóra
Sól, sé sá afleggjari sem hann vísar til. Í þriðja lagi er Afleggjarinn ferðasaga
og gömul líking um lífið sem ferðalag gefur tilefni til þriðju túlkunarinnar;
við getum litið svo á að afleggjarinn vísi til vegar eða leiðar sem Arnljótur
hefur valið að fara út af aðalbrautinni eða þeim vegi sem algengastur er. Báðar
þessar túlkanir má svo tengja við trúarlegar vísanir, „Ég er vegurinn, sann-
leikurinn og lífið,“ segir Jesús við lærisveinana í Jóhannesarguðspjalli (14.6).
Ör er við fyrstu sýn auðtúlkaðri titill, þótt það sé ekki alveg ljóst hvort
hann sé í eintölu eða fleirtölu. Í fyrsta kafla sögunnar fer Jónas á húðflúrs-
stofu þar sem honum er sagt að margir viðskiptavinir komi til að fela ör.
Sjálfur er hann með „samtals sjö ör á líkamanum, fjögur fyrir ofan nafla,
upphafsreitinn, og þrjú fyrir neðan nafla.“ Húðflúrið sem hann velur sér
er einfalt, hvít vatnalilja. Samtalið milli hans og húðflúrarans er áhugavert:
– Vatnalilja, segi ég hiklaust.
– Og bara einn litur?