Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 29
H v e n æ r e r e i t t H va ð ó g n v e k J a n d i ? 29 sér viðbrögð hennar og fyrirspurnir og þótt hún reyni að ganga á hann hefur hann litlu við að bæta öðru en: „Þetta er það sem gerist á bóndabæ. Það er ekki alltaf gaman“ (91). Á þessum tímapunkti magnast sú tilfinning sem fylgt hefur frásögn ungu konunnar frá byrjun: að orðið sé of seint fyrir hana að breyta um stefnu eða hafa áhrif á atburðarásina. Í seinni hluta bókarinnar hverfur hún sífellt lengra inn í kima óhugnaðar, fantasíu og súrrealisma. Í Ég er að spá í að slútta þessu nýtir Reid sér þemu og hefðir hrollvekjunnar á álíka máta og hann beitir fyrir sig vísindaskáldsöguforminu í Foe. Þann­ ig gerist lokahluti bókarinnar á kunnuglegum hryllingsmyndavettvangi: í læstum og yfirgefnum menntaskóla þar sem er að finna óvætt sem aðalsögu­ hetjan þarf að fela sig fyrir. Það er því ekki að ástæðulausu að Ég er að spá í að slútta þessu hefur verið líkt við bækur Stephens King.5 Nærtækara væri þó að segja að Reid beiti arfleið hans og annarra hrollvekjuhöfunda til að skapa vettvang fyrir hugmyndir ættaðar frá öðrum, módernískari áhrifavöldum sem persónurnar ræða jafnvel sín á milli. Má þar nefna Jean Cocteau (39) og Carl Jung (53) en einnig er sérstaklega minnst á skáldsöguna Hinn mis- heppnaði (þ. „Der Untergeher“, 1983) eftir þýska rithöfundinn Tomas Bern­ hardt, en Jake gefur kærustu sinni eintak af bók Bernhardts með áletruninni „Enn ein sorgarsagan“ á innanverðri kápunni (168). Þessi samsuða af áhrifum úr heimspekitextum, módernískum skáldsögum, kvikmyndum og annarri dægurmenningu hefur leitt til þess að útgefandi Ég er að spá í að slútta þessu vestanhafs hefur markaðssett bókina sem „heim­ spekilegan reyfara“ (e. philosophical thriller). Lesturinn er drifinn áfram með ýmsum taktíkum úr heimi spennusagna; lesendur vinna sig í gegnum ráðgátuna út frá þeim upplýsingum sem þeim eru skammtaðar en þar spila innskotin á milli kaflanna stórt hlutverk – ásamt því að vara við þeirri yfir­ vofandi hættu sem steðjar að persónunum. Þessi kunnuglega, fastmótaða uppbygging gerir það að verkum að hægt er að njóta bókarinnar án þess að búa að djúpstæðri þekkingu á þeim módernísku heimspekihugmyndum sem Reid snertir á í textanum – þótt slík þekking hafi efalaust áhrif á blæbrigði lestursins fyrir suma. Að sama skapi býður endirinn upp á ákveðna úrlausn sem setur það sem á undan hefur komið í nýtt og skýrara samhengi. Óhjá­ kvæmilega eru þó atriði í framvindunni sem falla utan þessa hefðbundna strúktúrs og gætu virst endasleppt fyrir lesendur sem vonuðust eftir að finna í bókinni hefðbundinn reyfara. Það er alltaf fengur að því þegar farið er með gamalkunnar bókmennta­ greinar á ókunnugar slóðir og styrkleikar þeirra notaðir til að skapa eitthvað nýtt og öðruvísi fyrir lesendur. Í skáldsögum sínum nýtir Iain Reid sér þann trausta grunn sem slík efnistök veita honum til að opna frásögnina fyrir framlagi lesenda. Þannig gerir hann lesendum kleift að taka virkan þrátt í heimssköpun bóka sinna án þess að svíkja þá um línulega framvindu og úrlausn. Að þessu leyti mætti líkja skáldsögum Reids við töfraspegla: þær falla ekki að einu tilteknu formi heldur varpa til baka þeim væntingum og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.