Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 94
k a r i ó S k g r é t U d ó t t i r e g e 94 gera myndbandsverk út frá heimspekilegum vandamálum, lýsa huglægu rofi sem skúlptúr úr þurrkuðum ávöxtum eða framkvæma óefnisbundna aðgerð. Það sem Berger lýsir er einhvers konar meta sjónarhorn á framkvæmd þar sem hin undirskilda þekking liggur í aðgerðinni, í þessu tilviki teikningu. Sú þekking sem Berger lýsir er einhvers konar skilningur á heiminum og jafn­ framt ákveðinn sjálfsskilningur. Ég held ekki það sé nauðsynlegt að tölusetja prentið. Það er allt þarna í dýptinni og fyllingunni á prentinu og þú skilur það þegar þú sérð það. Bróðir minn var vanur að ofsalta allan mat því hann hélt að ástæðan fyrir því að matur er kryddaður með salti væri til að gefa saltbragð en ekki draga fram bragðið af matnum. Ég á í erfiðleikum með liti og mér finnst best að nota hreina liti og í litlu magni. Ef ég reyni að blanda saman of mörgum litum eyðileggst allt. Í mörgum verkunum blanda ég lit út í svarta litinn, til dæmis nota ég oft grænan út í svoleiðis að svartur virðist ekki endilega vera svartur. Þegar ég var í námi þá var ég málari og reyndi að búa til liti sem litu út eins og moldardrulla. Mér þótti áhugavert að reyna að komast mjög nálægt því að láta litina verða eins og drulla en að þeir héldu samt áfram að hafa virkni lita. (Nauman, Bruce 2005:346) Hér lýsir myndlistarmaðurinn Bruce Nauman hugmyndum sínum um lita­ notkun sem einkennast af persónulegri reynslu, skynjun og huglægu mati. Textinn miðlar praktískum skilningi á því að vera í heiminum fremur en fjarlægum fræðilegum skilningi. Samt sem áður hvílir þekking hans á ein­ hvers konar hefð, en það er ekki þar með sagt að hefðin þurfi að vera klassísk málaralist eða litafræði. Hún getur alveg eins verið listasagan og almenn orð­ ræða í listaskólum í dag. Hin undirskilda þekking verður í þessu tilviki til í sambandi listamannsins við efnið. Þessi þekking er ekki eingöngu praktísk heldur er hún líka hugmyndaleg og fagurfræðileg. Nauman lýsir því hvernig þekking sprettur úr snertingu við heiminn. Þegar listamaðurinn Louise Bourgeois sagði að hún hefði áhuga á því hvernig ólík efni brotna má skilja það á sálfræðilegan, efnislegan, heim­ spekilegan og jafnvel samfélagslegan hátt. Hún vann alla tíð með persónu­ lega reynslu í myndlistinni og sagði að ef þú getur ekki sæst við fortíðina þá gerist þú myndhöggvari. En það að gefa áfalli form og móta það síðan í vax eða höggva það út í marmara hefur óljósari en þó kannski víðari snertiflöt en listform sem bundið er við frásagnarformgerð. út úr þokunni Listasaga og listfræði eru fræðigreinar sem setja listina í samhengi með öðru móti en listamaðurinn gerir og getur komið auga á tengingar sem eru óháðar ásetningi hans. Greiningaraðferðir listfræðinnar eru tæki eða sjónarhorn til að sjá, skilja og túlka listir. Listfræðin þróast í takt við inntak listarinnar og tekur líka mið af nýjum hugmyndum innan ólíkra fræðasviða, sem eiga sér hvert um sig sitt íðorðasafn og orðræðu sem birtist okkur í skrifum um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.