Ófeigur - 15.07.1947, Side 37

Ófeigur - 15.07.1947, Side 37
OFEIGUR 37 móti hafa kommúnistar þokað sínu ,,plani“ vel áleiðis en um leið gert borgfélagið veikara og sett blett á þing- stjórnarskipulagið. Sumum kann að finnast hér vera að baki allmikil klókindi og jafnvel djúpsæi, en svo er ekki. Þegar ekki er hugsað um, hvað er rétt eða rangt, einskis svifist, við að rífa niður og leika á menn með því að eggja þá til samkeppni um vegtyllur og hégóm- legt tildur, þá er lítill vandi að leika hinn illfúsa bragða- ref. Nú hafa verið leidd rök að þvi, hve óafsakanlegt það var, af borgaraflokkunum, að verða handbendi kommún- ista, þó hins vegar að götudrengjabrögð þeirra séu ekki sprottin af skarpskyggni, heldur ákveðinni skemmdar- fýsn. Eftir þennan leik er ríkið á heljarþröm, sökum eyðsluáhrifa kommúnista. En flokkarnir, sem hafa tekið þátt í þessum leið, eru lítt starfhæfir. Enginn flokkur heldur almenna fundi um alvarleg þjóðmál. Þegar flokkarnir halda samkomur nota þeir eftirhermur, trúð- leiki og dans til að ná til fólksins. Menn finna að ekki er um neinn skoðanamun að ræða milli flokkanna nema hina hörðu valdastreitu leiðtoganna, þar sem kommúnistar halda á uppboðshamrinum. Við kosningar eru menn enn dregnir í dilka eftir gömlum vinsemdar- og óvinsemdarsoramörkum. En hvergi vottar fyrir trú á málefni nokkurs flokks. Flest ungt fólk er áhugalaust og trúlaust á flokkana eins og von er til, þar sem bak- tjaldaverzlun er eini fáninn, sem á að vísa æskunni leið. Sérstaklega er deyfðin og mannleysið áberandi kringum Hermann og Eystein. Vitað er um einn ungan mann, sem kom á þeirra veg, til forustu. Hann hafði staðið fyrir slarksamkomu, þar sem átti að berja tvo landskunna ræðumenn Framsóknar af því að fundar- gestir voru ölóðir, en höfðu þó greitt piltinum inngangs- eyri svo að hann gat verið ánægður og var það. Þessir verðleikar voru nógir til þess að Hermann valdi þennan pilt til að vera boðbera sinn til æskunnar í landinu. Sennilega er hann líka nógu góður til að bera út um landið það nesti, sem honum er fengið af sínum hús- bændum. Hver er hugur kommúnista til sjómanna? Ógrynni f jár hefur verið varið til síldveiðanna. Skagaströnd átti að vera borg með 14 þús. menn, skip til síldveiða, verk- smiðjur, visindi og flug til aðstoðar. Falleg loforð.

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.