Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 37
ÓFEIGUR
37
í sveit. I staðinn fyrir ættaaróðal einnar fjölskyldu
kom ættargarður margra samerfingja með aðskildum en
sjálfstæðum heimilum og óháðri atvinnu hverrar fjöl-
skyldu.
Þegar hér var komið sögu, var Baldur bóndi búinn
að missa allt þol til líkamlegrar vinnu, en hélt andleg-
og kröftum í bezta lagi. Hann, sem hafði glaðzt yfir
að mega vinna mikið bæði vetur og sumar, gat nú
varla lyft hrífuskafti. Sennilega var hér að einhverju
eða öllu leyti um ofþreytu að ræða. Baldur bjó mest-
an sinn búskap á þeim tíma, þegar hið hreyfanlega
vinnuafl sveitanna var að hverfa að sjávarsíðunni, en
vinnusparandi verkvélar ekki komnar í staðinn. Hann
bjó lengi áður en siáttuvélar komu í staðin fyrir orfið.
Vinnubrögð einyrkjanna á þessu tímabili, bæði karla
og kvenna, eru líkust ævintýri. Afköst þessarar kyn-
slóðar munu lengi verða talin viðburður í atvinnusögu
landsins.
Börnin þrjú á Lundarbrekku, sem áttu að erfa jörð-
ina, voru ekki í vandræðum með land til að nema.
Amerísku verkvélarnar voru nú komnar til sögunnar.
Afinn og faðirinn höfðu skilað góðu og vel ræktuðu
túni. En nú voru að myndast þrjú bú og þrjú heimili.
Allir bændurnir þurftu að lifa af véltæku ræktarlandi.
Það féll alt í ljúfa löð. Hraðvinnandi vélar eru á góð-
um vegi með að þrefalda túnið sem Baldur Jónsson
skilaði í hendur barna sinna. Ræktarlandið við gamla
túnið leyfir enn meiri býlafjölgun á Lundarbrekku.
Hitt er vafasamt, hvort beitilandið ber meiri búsmala
en þann, sem hentar þrem heimilum.
Yngsti sonurinn á Lundarbrekku hét Jónas, eftir afa
sínum. Um hann hefur myndazt ofurlítil soga, bæði
glæsileg og sorgarleikur. Hjá þessu yngsta barni
ætluðu Baldur og Guðrún kona hans að dvelja síð-
ustu ár æfinnar. Jónas var að sumu leyti líkur föður
sínum og afa. Hann var eins og þeir hrifinn af jörð-
inni sinni, og gat ekki hugsað til að eiga heima til
langdvalar nema á Lundarbrekku. Hann vildi búa á
óðali sínu, eins og þeir. En samhliða heimahyggjunni
var hann haldinn af útþrá og löngun til að taka þátt
í félagsmálum án þess að vanrækja heimilið. Hann
tók snemma þátt í samtökum æskumanna í Bárðar-
dal og Þingeyjarsýslu, gerðist æfður ræðumaður og