Ófeigur - 15.08.1951, Side 50

Ófeigur - 15.08.1951, Side 50
50 ÓFEIGUR sem gerir hverja samkomu af þessu tagi að vansæm- andi mannfagnaði. Eitt úrræði, og ekki nema eitt, er til björgunar þessum ófarnaði. Forgöngumenn hverrar samkomu, þar sem búast má við að drukknir menn sýni ófrið eða skemmdarhug, þurfa að hafa tilbúna nokkra heimamenn með handhægar ljósmyndavélar, til að mynda á augnabliki hvern fundargest, sem sýnilega er undir áhrifum áfengis. Aðrir heimamenn verða að standa vörð um ljósmyndarann, meðan hann gerir skrílinn ódauðlegan á ljósmyndaplötunni. Litlar kvikmyndavélar eru enn betri, og þær eru nú í eigu fjölda manna um allt land. Þegar þessi Ijósmyndatækni er fullundirbúin, á að auglýsa í útvarpinu eða með öðr- um hætti, að ölvaðir fundarmenn verði ljósmyndaðir á samkomunni, þeim að kostnaðarlausu. Eftir að þetta lag hefur komizt á í einhverri sveit, munu heimsóknir drukkinna manna hverfa af skemmtisamkomum al- mennings. Myndirnar á að nota hóflega, en láta allan almenning vita, að þær séu til og vandlega geymdar hjá forráðamönnum sveitarinnar eða þorpsins. Samt mundi vera rétt að sýna opinberlega og oftar en einu sinni fnyndir af drukknum mönnum, sem reyndu að hleypa upp samkomum, eftir að byrjað er að beita þessari sjálfsvörn. Kostur þessarar aðferðar er, að hún er mild, ódýr og kemur hvergi við þá réttarvernd sem þjóðfélagið vill veita ölóðum mönnum. Ef templ- urum er áhugamál að vinna að hagnýtri baráttu við drykkjumennskuna, ættu þeir að nota þetta úrræði. Sama er að segja um áhugasamar konur. Kynsystur þeirra hafa orðið fyrir búsifjum frá hálfu drukkinna manna. Ef þær sjá ekki ástæðu til að þurrka drykkju- slark burtu af samkomum almennings, þá bregðast þær manndómsskyldu sinni og réttmætri sjálfbjargarþrá. Kvikmyndasýningar í sveitum og þorpum. Vöntun kvikmynda í strjálbýli er talin ein aðalástæð- an til burtflutnings úr sveitum til stærri kaupstaða. Mun þetta rétt athugað. Kvikmyndir eru meginskemmt- un almennings í flestum menningarlöndum. Kvik- myndasýningar eru nokkuð öruggur gróðavegur í borg- um og þéttbýli, en ekki í sveitum og smáþorpum. Þar

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.