Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Síða 15
Gengismál og samkeppnisstaða
Gengisstefnan setti rammann um þróun gengisins á árinu 1994. Stefnan byggist á því að
halda genginu sem stöðugustu. í nánari atriðum er hún skilgreind þannig að genginu
skuli halda innan markanna 2-2,25% í hvora átt firá miðgengi. Gengi krónunnar var
nokkru lægra í lok ársins en í byrjun þess eða tæplega 1,3% undir miðgengi borið
saman við nánast sama gengi og miðgengi í byrjun ársins. Gengi einstakra gjaldmiðla
breyttist hins vegar töluvert á árinu, meðal annars lækkaði gengi Bandaríkjadollars
gagnvart krónunni um rúmlega 6% en gengi marks og jens hækkaði hins vegar um
ríflega 5%.
Raungengi krónunnar 1980-1995
Vísitölur 1980=100
1980 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95
Raungengi krónunnar, sem er mikilvægur mælikvarði á samkeppnisstöðu íslenskra
atvinnuvega, lækkaði nokkuð innan ársins 1994. Þetta stafaði af því að innlendur
kostnaður hækkaði minna en í helstu samkeppnislöndum. Raungengið hefur lækkað
verulega undanfarin ár og var í fyrra hagstæðara innlendri atvinnustarfsemi en um langt
skeið. Þannig var raungengið á mælikvarða verðlags um 10% lægra í fyrra en að
meðaltali á árunum 1980-1993 og um 17% lægra á mælikvarða launa. Samkeppnisstaða
íslensks atvinnulífs gagnvart erlendum fyrirtækjum var því tiltölulega góð á síðasta ári.
Samkeppnisstaðan hefur jafnframt styrkst á undanfömum árum vegna lækkunar á
sköttum. Einnig var vaxtaþróun hagstæð innlendum fyrirtækjum á síðasta ári, þótt
lánskjör þeirra séu enn óhagstæðari en víða annars staðar. Opnun fjármagnsmarkaðar
gagnvart útlöndum eyðir þessu óhagræði að nokkru. Þessi atriði hafa því einnig gengið í
þá átt að treysta samkeppnisstöðu innlendra atvinnuvega, enda jókst útflutningur
verulega í fyrra eins og lýst er hér á undan.
Hagur atvinnuveganna
Ajkoma sjávarútvegs. Rekstrarskilyrði sjávarútvegs í heild eru talin hafa batnað lítillega
á árinu 1994 miðað við árið 1993, en talið er að hagnaður hafí verið af rekstri sjávar-
13