Skessuhorn - 17.06.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 20156
Menningar- og
markaðsfulltrúi
hættir
GRUNDARFJ: Alda Hlín
Karlsdóttir, menningar- og
markaðsfulltrúi Grundarfjarð-
arbæjar, hefur sagt starfi sínu
lausu. „Það breyttust aðstæð-
ur hjá fjölskyldunni. Við ætl-
um því að flytja suður þar sem
maðurinn minn sækir vinnu.
Ég er að taka við spennandi
störfum hjá Icelandic Gro-
up. Þannig flyt ég mig um set
yfir í sjávarútveginn. Mér hef-
ur alltaf þótt sú grein mjög
heillandi, er uppalinn í sjáv-
arplássi, hef verið á sjó, unn-
ið í fiski og er með punga-
prófið,“ segir Alda Hlín létt í
bragði. „En ég kveð starf mitt
hér í Grundarfirði með tölu-
verðum trega. Þetta er búið
að vera góður tími fyrir okkur
fjölskylduna. Grundarfjörður
er æðislegur bær, hér er frá-
bært fólk og gott að búa. Ég
hef sömuleiðis átt gott sam-
starf við fjölda fólks hér víða
á Snæfellsnesi og hér er góð-
ur kraftur,“ segir Alda Hlín.
Staða hennar hefur verið aug-
lýst til umsóknar hjá Grundar-
fjarðarbæ. –mþh
Styðja
strandveiðar
STYKKISH: „Bæjarráð
Stykkishólms tekur undir með
Landssambandi smábátaeig-
enda að auka eigi aflaviðmið-
un strandveiða og telur einn-
ig að heppilegt væri að auka
sveigjanleikann í kerfinu til
að gera sjómönnum kleift að
stunda veiðarnar við sem best-
ar veðurfarslegar aðstæður og
draga þannig úr óþarfa áhættu
og auka arðsemi veiðanna.“
Þannig hljómar bókun sem
bæjarráð Stykkishólms gerði
samhljóða á fundi sínum í síð-
ustu viku. Stykkishólmur bæt-
ist þannig í stöðugt vaxandi
hóp sveitarfélaga víða með
ströndinni umhverfis land-
ið þar sem sveitarstjórnir gefa
svipaðar yfirlýsingar varðandi
strandveiðarnar.
-mþh
Grænt ljós á
niðurrif olíutanka
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar hefur sam-
þykkt heimild til olíufélagsins
N1 um að fjarlægja fjóra olíu-
geyma við fyrrum söluskálann
Þyril á Miðsandi í Hvalfirði.
Sækja þarf um tímabundið
starfsleyfi vegna framkvæmd-
arinnar til Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands.
-mþh
Gengið um
sveitina
REYKHÓLAR: Gönguhelg-
in Gengið um sveit verður
haldin á Reykhólum um næstu
helgi, dagana 19. til 21. júní.
Hún hefst á föstudag á því
að hestar verða teymdir und-
ir börnum. Síðan eru þrjár
mislangar gönguferðir um
helgina með leiðsögn auk þess
sem hægt verður að fara í sund
sér til hressingar. Nánari upp-
lýsingar má finna á Reykhóla-
vefnum.
-mþh
Planta 297
birkitrjám
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti
einróma eftirfarandi tillögu
oddvita á fundi sínum í síðustu
viku. „Í tilefni 100 ára afmælis
kosningaréttar kvenna og þess
að í ár eru 35 ár eru liðin frá
kjöri Vigdísar Finnbogadóttur
í embætti forseta Íslands sam-
þykkir sveitarstjórn að kaupa
297 birkiplöntur til gróðursetn-
ingar. Birkiplönturnar eru jafn-
margar kvenkyns íbúum sveit-
arfélagsins og er stefnt að því að
þær verði gróðursettar þann 27.
júní nk. í samvinnu við Skóg-
ræktarfélag Skilmannahrepps.
Samþykktin rúmast innan gild-
andi fjárhagsáætlunar.“ –mþh
Credo kórinn í
Reykholti
REYKHOLT: Credo kórinn,
samkirkjulegur kór frá Dallas í
Bandaríkjunum, er á ferðalagi
um Ísland um þessar mundir
og heldur tónleika í Reykholts-
kirkju fimmtudaginn 18. júní
kl. 20.30. Stjórnandi kórsins er
Dr. Jonathan Palant og á efnis-
skránni er kirkjuleg tónlist frá
ýmsum tímum. Aðgangseyrir
er kr. 1.000 og rennur til upp-
byggingar í Reykholti.
–fréttatilk.
Jónsmessu-
tónleikar
Bjartmars
DALIR: Laugardaginn 20. júní
heldur Bjartmar Guðlaugsson
tónleika í Leifsbúð í Búðar-
dal. Á tónleikunum fer hann í
léttu spori yfir tónlistarferilinn
og flytur sín þekktustu lög og
kannski eitthvað nýtt. Milli laga
rifjar hann upp ýmsar skemmti-
sögur sem tengjast textunum.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. og
hefjast tónleikarnir kl. 22:00 og
standa í tvær klst. með 15 mín-
útna hléi.
–fréttatilk.
Ronaldo nærföt og sokkar á Norðurálsmótinu
Tilboð dagana 18. - 20. júní
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Opnunartími:
Mán-fös kl. 10-18
Lau kl. 10-15
Þú skorar...
í CR7!
20% afsláttur af Cristiano Ronaldo eða CR7 nærfata- og
sokkalínunni fyrir herra og drengi á aldrinum 4-15 ára
Ingimar Garðarsson bakari á Akra-
nesi hefur auglýst bakarí sitt Brauð-
val til sölu. „Ég hef verið í þessu í
37 ár og finnst komið gott. Ferill-
inn byrjaði einmitt hér í þessu hús-
næði sem ég er í núna við Skóla-
brautina á Akranesi þegar ég byrj-
aði að vinna hérna hjá Herði Páls-
syni bakarameistara árið 1977,“
segir Ingimar í samtali við Skessu-
horn. Á þessum áratugum hefur
hann stundað bakstur bæði á Akra-
nesi og í Búðardal. Það var svo nú
í febrúar á þessu ári að Ingimar
opnaði Brauðval í húsnæðinu við
Skólabraut. Þar er bæði bakarí og
kaffihús, mitt í gamla miðbænum á
Akranesi.
mþh
Bakaríið Brauðval til sölu
Ingimar Garðarsson bakari við störf sín.