Skessuhorn


Skessuhorn - 17.06.2015, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 17.06.2015, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015 19 Sendum íslenskum konum baráttukveðjur í tilefni aldarafmælis kosningaréttar Sigrún Símonardóttir segist svolítið hugsandi yfir framtíð heimsins. Hún hafi alltaf verið fréttasjúk manneskja og þótt gaman að fylgjast með því sem er að gerast í heiminum, almennt. Það sem setji að henni óhug í dag er tæknin og hvað illa meinandi aðilar geta gert með hana. „Ég er hugsi yfir því hvað gerist ef einhver óprúttinn aðili kemst til valda og einnig yfir því að áhyggjur manna í heiminum snúist um að styggja ekki þennan eða hinn, hagsmunatengslin eru svo óheilbrigð víða. Það vekur mér ugg.“ Sigrún hefur kynnst tölvuvæðing- unni frá upphafi, allt frá því að nota ritvél sem ekki var tengd við raf- magn upp í flókin forrit keyrð í tölvum. „Eftir að ég hætti að vinna komu þessi samskiptaforrit á vefn- um og ég er nýlega farin að nýta mér þau eitthvað. Sumt af því sem ég sé þar hræðir mig, aðallega hvað hægt er að gera með tækninni. Að mínu áliti verður að koma einhverjum böndum á þetta. Það er auðvelt að eyðileggja mannorð jafnvel heillar þjóðar með einni færslu á netinu ef einhver vill gera það. Slíkt verð- ur að koma í veg fyrir á einhvern hátt. Og þegar ég hugsa um börnin og barnabörnin mín er ákveðin ugg- ur í brjósti mér vegna þessarar gríð- arlegu tækni. Ef einhver vill fylgj- ast með þér, getur viðkomandi það. Nú þegar er hægt að fylgjast með þér, hvar þú verslar, hverja þú hittir eða spjallar við, hvar þú ferð í banka og hvert þú ferðast. Í huga gamall- ar konur er þetta áhyggjuefni. Hvað verður næst? Eins hvað fjármagnið og þeir sem yfir því ráða, er farið að skipta svo miklu máli að maður hef- ur á tilfinningunni að það sé farið að ráða meiru á þessari jörð en fólkið sem til þess er valið.“ Að verja sig og sína Er kemur að samskiptum milli þjóða er Sigrún ekki eins hrædd um að stóru þjóðirnar beiti ger- eyðingarvopnum, frekar minni þjóðir. „Ég hef á tilfinningunni að smáþjóðirnar sérstaklega muni reyna að standa á rétti sínum til að verja sig með orðum, alla vega vona ég það. Það er hins veg- ar spurning hvort það sé rétt hjá mér því þessi vopnavæðing þjóða skelfir mig. Við horfum á menn kýta, sem hafa yfir að ráða vopn- um sem geta eytt heimsbyggðinni í einu skoti liggur við. Hvað ger- ir fólk í stundarbræði? Því þarf að efla bræðralagið og íslenska þjóð- félagið þarf að verða nánara. Okk- ur kemur náunginn við. Við eigum ekki bara að hugsa um að koma okkur sjálfum á framfæri. Ég vona að almennt breytum við þessu. Við verðum að vinna með aðra hugsun. Við byggjum sem dæmi ýmislegt of smátt. Leik- og grunnskólahús- næðið okkar er almennt of þröngt og þetta kraðak er ekki bjóðandi. Við byggjum stórar íþróttahallir og ýmislegt annað stórt og mikið, af hverju má ekki líka meira rými fyrir grunnþjónustuna? Íslandsbyggðir og almenningur Sigrún er ekki viss um að öll svæði landsins sem eru í byggð í dag verði það eftir hundrað ár. „Ég vil vona að stærri byggðakjarnar eflist en er ekki viss um afskekktari hlut- ar landsins verði í byggð, nema kannski sem sumarbyggð með ým- iss konar þjónustu. Vonandi verð- ur minn gamli bær kominn á fulla ferð, en þar sem víðar þarf meira samstarf og mikla vinnu til þess að það gerist. Ég velti líka fyrir mér hvernig þessum byggðum, sem hafa verið sameinaðar hefði reitt af einum og sér. Það hefði verið og er hægt að bjarga ýmsu ef meiri gaumur og vinna væri lögð í sam- starf. Okkur kemur öllum við okk- ar nærumhverfi og næsta nágrenni. Þá geta allir haft áhrif ef almenn- ingur hugsar í þá veru. Þessi hugs- un er reyndar svolítið að vakna núna og ég vona bara að hún þró- ist í rétta átt almennt og almenn- ingur láti meira að sér kveða, nái áttum, taki þátt og finni að hann geti haft áhrif til góðs. Almenn- ingur þarf líka að skilja hvað er í gangi, kynna sér mál almennilega, áður en farið er að dæma. Fólk tel- ur líka oft að eitt og annað sé í lagi og bregður síðan illa þegar sann- leikurinn kemur í ljós. Miðstýr- ing valds er því ekki góð að mínu mati. Það þarf líka að stytta vinnu- tíma og breyta honum þannig að fólk geti sinnt áhugamálum og fjölskyldu sinni án þess að allt sé að springa. Þegar ég var að alast upp voru mömmur heima og gátu það tekjulega. Við krakkarnir átt- um víst athvarf. Ef mamma var ekki heima þá gat maður farið til næstu mömmu. Þetta var mjög mikið öryggi fyrir börnin og eins að þau þekktu umhverfi sitt og ná- granna sem einnig þarf að stuðla að í dag.“ Persónuleg samskipti verði betri „Ég vona fyrir framtíðina að pers- ónuleg samskipti verði betri. Ég trúi ekki að fólk endist í að hanga í tölvunni eða farsímanum eins og í dag heldur fari að rækta sambönd sín og m.a. kynnist nágranna sín- um, ég held að sé nokkuð unnið með því. Það er gott að nota tölvur við ákveðin verkefni og afla upp- lýsinga en tölvur eiga ekki að ráða. Hér hafa skólar hlutverk ásamt heimilum og því þarf að efla enn frekar samband foreldra og skóla. Það er hins vegar ekki eðlilegt hvað ráðamenn hinna stóru þjóða eru að ráðskast með líf almenn- ings og á ekki að líðast. Upplýsing- ar um slíkt eru hins vegar of oft af skornum skammti og bara glans- myndin sem er sýnd. Á minni ævi hafa alltaf geisað stríð í heimin- um, með skelfilegum afleiðingum og svo er enn í dag. Minn draumur er sá að allt fólk geti átt samskipti, að heimurinn opnist og allir sem vilja geti kynnst nýju fólki, nýjum siðum og sýnt hvort öðru virðingu. Jafnrétti kynja, kynflokka og trú- arbragða verði virt. Og sannarlega vonast ég til þess að friður komist á í heiminum fyrr en eftir hundrað ár,“ segir Sigrún Símonardóttir að lokum. bgk Vill að heimurinn opnist og fólk geti talað saman Sigrún Símonardóttir frá Borgarnesi spáir í framtíðina Sigrún Símonardóttir frá Borgarnesi. Ljósmynd tkþ. Spá fyrir um stöðu jafnréttismála eftir næstu hundrað ár Eyja- og Miklaholtshreppur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.