Skessuhorn - 17.06.2015, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 201512
fræðslumála í Borgarbyggð sem
skilað var í maí síðastliðnum.
Hér er mesta hitamálið að hætta
á rekstri Grunnskóla Borgarfjarðar
á Hvanneyri þar sem kennsla hefur
verið fyrir börn í 1. - 4. bekk. Þetta
skal gerast eftir lok næsta skólaárs
2015-2016. Kanna á vilja foreldra
barna á Hvanneyri og nágrenni til
þess hvort nemendur sæki skóla að
Kleppjárnsreykjum eða í Borgar-
nes. Einnig á að skoða hvort vilji sé
til þess að starfræktir verði 1. og 2.
bekkur á Hvanneyri í samstarfi við
leikskólann Andabæ. Faglegir kost-
ir þess verða metnir. Leita á sam-
starfs við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands varðandi fækkun skólamötu-
neyta á Hvanneyri frá og með
haustinu 2015.
Einnig skal unnið að því að sam-
eina starfsstöð Grunnskóla Borg-
arfjarðar á Varmalandi í eldra
skólahúsnæði á Varmalandi. Stefnt
verði að því að allir nemendur
verði komnir undir eitt og sama
þak haustið 2015. Einnig skal skoð-
að að sameina Grunnskóla Borg-
arfjarðar á Varmalandi og Klepp-
járnsreykjum í eina starfsstöð.
Miklar breytingar
á skólahaldi
Hagræða á í stjórnun og starfs-
mannahaldi í grunnskólum sveit-
arfélagsins. Sérfræðiþjónusta við
skólana skal efld með áherslu
á gæði skólastarfs og samvinnu
skólastofnana og endurskoðun fer
fram á starfsemi sérdeildarinnar
Kletts í Grunnskólanum í Borgar-
nesi. Lagt er til að ferðum skóla-
bíls í Borgarnesi verði fækkað frá
og með haustinu 2015.
Auk þessa á að skoða hagkvæmni
þess að leikskólinn Hnoðraból
verði staðsettur í eða við húsnæði
grunnskólans á Kleppjárnsreykj-
um. Dagforeldrum verði boðið
húsnæði til leigu í Reykholtsdal til
að mæta þörf fyrir dagvistun. Inn-
tökualdur í leikskólum Borgar-
byggðar verði 18 mánuðir frá júní
2015. Athugað verði að inntaka í
leikskóla verði tvisvar á ári.
Samningur um skólavist barna
í Laugargerðisskóla verði fram-
lengdur til næstu þriggja skólaára
með þeim hætti að greitt verði fast
gjald á nemenda.
Fundin verði aðstaða fyrir Tón-
listarskóla Borgarfjarðar tíma-
bundið í samráði t.d. við Grunn-
skólann í Borgarnesi og Mennta-
skóla Borgarfjarðar þangað til að
skólinn flytur í nýtt húsnæði. Nú-
verandi húsnæði verði selt. Í fram-
tíðinni verði gert ráð fyrir aðstöðu
fyrir Tónlistarskólann inn í hús-
næði Grunnskólans í Borgarnesi
í samræmi við fyrirliggjandi hug-
myndir byggingarnefndar.
Efla skal stjórnsýslu á sviði
fræðslumála og mannauðsstjórn-
unar. Markmiðið er aukinn fag-
legur stuðningur við skólastarf og
eftirfylgni með skólastefnu Borg-
arbyggðar til framtíðar. Ljúka á
gerð skólastefnu fyrir sveitarfé-
lagið fyrrihluta árs 2016. Framtíð-
arsýn í skólamálum verði unnin í
tengslum við mótun skólastefnu
þar sem áhersla verði lögð á árang-
ur í námi og kennslu. Ráða á verk-
efnisstjóra í hlutastarf í sex mán-
uði til að sinna þessum verkefnum
í samstarfi við hagsmunaaðila.
Víðtæk sala fasteigna
Þegar þessar tillögur höfðu verið af-
greiddar með samþykki meirihluta
og hjásetu minnihluta var borin
upp tillaga um sölu eigna. Skóla-
húsnæði Grunnskóla Borgarfjarð-
ar á Hvanneyri skal selt með fyrir-
vara um að afhendingartími verði
sumarið 2016. Selja skal húsnæði
sem áður hýsti Húsmæðraskólann
á Varmalandi með fyrirvari um af-
hendingartíma er taki mið af því
þegar allir nemendur verði komn-
ir með aðstöðu inn í skólahúsnæði
grunnskólans á Varmalandi. Fjórar
íbúðir í fjölbýlishúsi á Varmalandi
verða settar á sölu. Salur á efstu
hæð fjölbýlishúss Borgarbraut 65a
í Borgarnesi verði seldur undir
íbúðir fyrir eldri borgara. Borgar-
braut 23 þar sem nú er Tónlistar-
skóli Borgarfjarðar verði seld. Fyr-
irvari er gerður um að fundin verði
aðstaða fyrir skólann í samráði t.d.
við Grunnskólann í Borgarnesi og
Menntaskóla Borgarfjarðar þang-
að til að skólinn flytur í nýtt hús-
næði. Selja á íbúðarhúsnæðið sem
nú hýsir leikskólann Hnoðraból
í Reykholtsdal. Gerður er fyrir-
vari um afhendingu sem miðast
við að leikskólinn verði kominn í
annað húsnæði á Kleppjárnsreykj-
um. Selja á einbýlishús og útihús
á Kárastöðum. Gerður er fyrirvari
um að afmarka þarf lóð umhverf-
is húsin. Auk þessa á að selja hluti
Borgarbyggðar í Límtré Vírneti
og Vélabæ. Auk þessa skal skoðað
nánar með sölu annarra eigna og
eignarhluta á grundvelli fyrirliggj-
andi skýrslna um eignir og rekstur
og skipulag fræðslumála með þeim
fyrirvörum sem þar eru gerðir.
Í tillögum starfshóps um eign-
ir Borgarbyggðar var einnig lagt
til að eignarhlutur Borgarbyggðar
í Orkuveitu Reykjavíkur yrði seld-
ur en það var ekki rætt á þessum
fundi sveitarstjórnar né nein tillaga
um slíkt borin upp.
mþh
Fundarsalur sveitarstjórnar í ráð-
húsi Borgarbyggðar í Borgarnesi
var fullur út úr dyrum þegar 129.
fundur sveitarstjórnarinnar var
haldinn á fimmtudag. Það kom
ekki á óvart þar sem vitað var að til
afgreiðslu yrðu umdeild mál varð-
andi rekstur skóla og sölu eigna.
Flestir þeirra íbúa sem voru mætt til
að hlýða á fundinn áttu hagsmuna
að gæta varðandi skólanna og þá
einkum Hvanneyrardeild Grunn-
skóla Borgarbyggðar. Þarna voru
foreldrar, afar og ömmur. Sveitar-
stjórnin samþykkti á fundinum að
fara í gagngerar breytingar á skóla-
rekstri. Auk þess verður fjöldi fast-
eigna sveitarfélagsins boðinn til
sölu svo lækka megi skuldir. Þeg-
ar meirihluti sveitarstjórnar hafði
samþykkt niðurskurðartillögur, án
mótatkvæða minnihlutans sem sat
hjá, þá gengu íbúar sem sátu fund-
inn á dyr til að lýsa vanþóknun
sinni. Þar bar hæst ákvörðun um
að hætta rekstri grunnskóladeildar
á Hvanneyri.
Ætla að rétta
reksturinn af
Aðgerðirnar sveitarstjórnar eru
liður í því að bæta fjárhag Borgar-
byggðar og unnar í samstarfi við
ráðgjafasvið endurskoðunarfyrir-
tækisins KPMG. Þessi áætlun hef-
ur hlotið heitið „Brú til framtíðar.“
Markmiðið er að sveitarfélagið nái
fram 200 milljóna jákvæðum af-
gangi í rekstri sínum (framlegð) í
síðasta lagi árið 2017. Þannig verði
hægt að fjárfesta fyrir þá upphæð
árlega að meðaltali án þess að
skuldir sveitarfélagsins aukist.
Á fundinum bar meirihluti sveit-
arstjórnar, sem skipaður er fulltrú-
um Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks, upp tillögu um að
hér eftir skuli unnið að fjórþætt-
um markmiðum í starfsemi Borg-
arbyggðar sem allar lúta að hag-
ræðingu og bættum rekstri. Svo-
kölluð framlegð verði bætt um 200
milljónir króna fyrir 2017. Rekstur
þess sem kallað er B hulti starfsemi
sveitarfélagsins á að verða sjálf-
bær. Undir þann hluta falla sorp-
hirða, félagslegar íbúðir, hjúkr-
unarheimilið Brákarhlíð, Hjálm-
aklettur, Menntaskóli Borgar-
fjarðar ehf., Nemendagarðar MB
ehf. og Fjallskilasjóðir. Jafnframt
þessu skulu skuldir Borgarbyggðar
í framtíðinni endurspegla samsetn-
ingu eigna og greiðslugetu sveit-
arfélagsins. Skuldir skulu lækkað-
ar með sölu eigna fyrir allt að 500
milljónir króna.
Grunnskóli lagður
niður á Hvanneyri
Eftir að þessi aðgerðaáætlun hafði
hlotið samþykki var haldið áfram
og samþykktar margþættar og
viðamiklar breytingar á skóla-
rekstri Borgarbyggðar. Þar var
komið að viðkvæmustu málunum
sem hafa vakið hvað mestar deil-
ur og umræðu í sveitarfélaginu.
Þetta var gert á grundvelli skýrslu
vinnuhóps um rekstur og skipulag
Það vakti athygli viðstaddra á fundi
sveitarstjórnar Borgarbyggðar að
minnihluti hennar sat hjá í öllum at-
kvæðagreiðslum um tillögur meiri-
hlutans um uppstokkun skólamála
og sölu eigna. Aðeins tveir fulltrú-
ar minnihlutans báðu um orðið og
fluttu sitthvora ræðuna sem báð-
ar voru stuttar. Geirlaug Jóhanns-
dóttir fulltrúi Samfylkingar kvað
sér hljóðs um aðgerðaráætlunina
„Brú til framtíðar.“ Síðan bað Sig-
ríður Júlía Brynleifsdóttir varamað-
ur Vinstri grænna um orðið þegar
afgreidd var tillagan um uppstokk-
un á skólarekstri sveitarfélagsins.
Þetta var í fyrsta sinn sem hún tók
sæti í sveitarstjórn í fjarveru Ragn-
ars Frank Kristjánssonar aðalmanns
VG.
Fellst á þörf fyrir
hagræðingu
Sigríður var eini fulltrúi minnihlut-
ans sem lagði fram bókun á fundin-
um sem hjóðar svo: „Tillagan sem
hér er lögð fram um hagræðingu í
fræðslumálum þarfnast frekari skoð-
unar. Vinstri græn í Borgarbyggð
leggja á það áherslu að byrja á að
móta skólastefnu til framtíðar, setja
markmið og síðan aðgerðaráætlun
sem unnið er eftir. Hér í Borgar-
byggð byggjum við samfélag og síð-
an aðgerðaráætlun sem unnið er eft-
ir. Hér í Borgarbyggð byggjum við
samfélag á góðum grunni, sem hef-
ur alla burði til að móta sér sérstöðu
í skólamálum til framtíðar. Nauð-
synlegt er að hlusta á vilja kjósenda
sem hefur komið skýrt fram að und-
anförnu. Byggjum á þeirri sérstöðu
og þeim byggðarkjörnum sem hér
eru, löðum að okkur fólk, fælum það
ekki frá með fljótfærnislegum hag-
ræðingaraðgerðum.“
Í samtali við Skessuhorn að lokn-
um fundi sagði Sigríður að hún
væri sammála því að hagræða þurfi í
rekstri Borgarbyggðar. „Ég styð hins
vegar ekki allar þær aðgerðir sem á
að fara í. Ég hefði viljað hafa þetta
betur ígrundað. Ég er á móti því að
verið sé að leggja niður starfsstöðv-
ar skóla í samfélagi sem við erum að
reyna að byggja upp og laða fólk að
flytja til. Þess vegna sat ég hjá við af-
greiðslu tillagnanna,“ sagði hún.
Hjáseta ekki sama
og samþykki
Sigríður hafnar því að hjáseta sé
sama og þögn sem þýði samþykki.
„Nei, mér finnst það ekki. Ég lagði
fram bókun varðandi fræðslumál-
in þar sem afstaða mín kemur fram.
Hefði ég greitt atkvæði gegn tillög-
unum þá hefði ég jafnframt verið að
lýsa því yfir að allt væri í góðu lagi
með efnahag Borgarbyggðar. Að við
þyrftum ekkert að gera. Það fannst
mér ábyrgðarleysi.“ Hún segist að
mestu leyti geta fallist á ákvarðan-
ir um sölu eigna. „Þó er þarna ein
eign sem ég get ekki sætt mig við
að sé seld. Það er húsnæði Grunn-
skólans á Hvanneyri. Sú sala gerir þá
ákvörðun að loka skólanum svo gott
sem óafturkræfa. Salan á skólahús-
næði var ekki inni í tillögum starfs-
hópsins sem fjallaði um sölu eigna.
Meirihlutinn bætir henni inn að eig-
in frumkvæði. Það kom á óvart að
sjá hana á sölulista.“
mþh
Minnihlutinn sat hjá við
afgreiðslu tillagnanna
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir varafulltrúi VG þurfti að taka afstöðu til erfiðra mála á
sínum fyrsta sveitarstjórnarfundi.
Borgarbyggð fer í sölu eigna og uppstokkun skólamála
Sveitarstjórnarfulltrúar Borgarbyggðar afgreiddu tillögurnar án mikillar umræðu
á fundinum. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna sat hjá í atkvæðagreiðslu
en allir í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykktu.
Það var þéttsetinn fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar þar sem tillögurnar voru
bornar upp og samþykktar enda fjöldi fólks mættur til að fyljast með. Björn Bjarki
Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar í ræðustól.