Skessuhorn - 17.06.2015, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 201514
Eftir að íbúar á Hvanneyri, foreldrar
og aðstandendur barna við Hvann-
eyrardeild Grunnskóla Borgar-
fjarðar, höfðu gengið af fundi sveit-
arstjórnar eftir atkvæðagreiðsluna
á fimmtudag um að leggja skól-
ann niður, þá safnaðist fólk saman á
kaffihúsinu Skemmunni á Hvann-
eyri. Þar réð fólk ráðum sínum.
Blaðamaður Skessuhorns hitti full-
trúa Íbúasamtaka Hvanneyrar þar
til að fræðast betur um sjónarmið
þeirra í málinu. Þetta voru þau Álf-
heiður Sverrisdóttir, Hallgrím-
ur Sveinsson, Bryndís Geirsdótt-
ir, Borgar Páll Bragason, Helga
Svavarsdóttir, Sólrún Halla Bjarna-
dóttir, Sigurður Guðmundsson og
Birgitta Sigþórsdóttir. Af samtali
við þau má ráða að Íbúasamtök-
in ætla ekki að sætta sig við það að
Hvanneyri standi án grunnskóla í
framtíðinni. Jafnvel er til skoðunar
að stofna þar einkaskóla fyrir börn
á Hvanneyri og í nágrenni.
Skilja ekki ákvörðun
Sigurður Guðmundsson átti fyrstur
orðið. „Okkur finnst að með því að
loka grunnskólanum hér á Hvann-
eyri að þá sé verið að loka á frekari
uppbyggingu hér á staðnum. Við
horfum á allt það fólk sem hefur
verið að flytja hingað. Það að skóli
sé til staðar fyrir börnin ræður mjög
miklu um að það tekur þá ákvörð-
un að flytja af höfuðborgarsvæðinu
í lítið samfélag með minni skóla
en þar er boðið upp á. Fólk er að
sækjast eftir einmitt þessu. Manni
finnst svolítið sérstakt að sveitar-
félagið sjái ekki einmitt tækifæri
í því að hlúa að þessum litlu ein-
ingum hér í Borgarbyggð einmitt
til að laða að fleira fólk. ,,Grunn-
skólinn á Hvanneyri er að koma af-
skaplega vel út í könnunum, bæði
hvað varðar ánægju nemenda og
foreldra. Sem dæmi má nefna að
100% foreldra barna í Hvanneyr-
ardeild Grunnskóla Borgarfjarðar
telja börnin sín ánægð í skólanum
samkvæmt niðurstöðum úr Skóla-
púlsinum. Þrátt fyrir þessa miklu
ánægju með skólann og þrátt fyrir
það sterka og góða starf sem þar er
unnið á að loka.”“
Bryndís Geirsdóttir bætti við að
það hefði slegið þau að í skýrslu
starfshóps Borgarbyggðar um
framtíð skólamála sé eins og að það
virðist ekki vera gert neitt ráð fyr-
ir frekari uppbyggingu í sveitarfé-
laginu. „Við skiljum ekki þær for-
sendur. Mörg okkar eru fólk sem
sest að í sveitarfélaginu vegna þess
að við sjáum framtíðarmöguleika
hér.“
Helga Svavarsdóttir benti hér á
að Hvanneyri sé sá staður sem sé í
einna mestum vexti í sveitarfélaginu
en samt eigi að loka þar. Hópurinn
útskýrði að unga fólkið á Hvann-
eyri sé af ýmsum toga. Þar er bæði
fólk sem ílengist þar eftir að hafa
stundað nám á staðnum, fólk sem
hafi búið þar í æsku og sótt sér nám
og komið aftur, eða fólk sem flyt-
ur á staðinn án þess að hafa átt nein
sérstök tengsl þar áður. „Það er svo
að þegar fólk er búið í námi og er
ígrunda hvað gera eigi næst og hvar
eigi að velja búsetu, þá skoðar fólk
einna fyrst hvernig skólaumhverf-
ið er. Það sýnir sig að fasteignaverð
stendur hvað sterkast á þeim stöð-
um þar sem fjölbreytt framboð er
af góðum kostum varðandi skóla.
Þessi ákvörðun núna gæti leitt til
þess að fasteignaverð á Hvanneyri
lækki,“ sagði Bryndís. Við þessi orð
bætti Hallgrímur Sveinsson inn
dæmi sem hann sagðist hafa sem
vísbendingu um mikilvægi skóla
fyrir þéttbýlismyndun. „Marg-
ir halda því fram að Melahverf-
ið í Hvalfjarðarsveit hafi ekki vax-
ið eins og menn hafa vænst, einmitt
vegna þess að þar er ekki skóli,“
sagði hann.
Telja vinnubrögð
ekki til fyrirmyndar
Hópurinn var einróma um að þau
hefðu sjálf átt frumkvæði að allri
samræðu sem Íbúasamtökin hafa
átt við sveitarfélagið um málefni
grunnskólans á Hvanneyri. Aldrei
hafi verið komið að fyrra bragði úr
ráðhúsinu í Borgarnesi til að eiga
samræðu við þau.
„Ráðamenn þar hafa bara kom-
ið til að hlusta. Þau hafa aldrei get-
að tekið neina rökræðu um sína af-
stöðu í þessum málum. Eina sem
gert var er að það var haldinn íbúa-
fundur í Hjálmakletti í Borgar-
nesi í apríl síðastliðnum. Hann var
boðaður með fjögurra daga fyrir-
vara um páska. Fundurinn var sett-
ur upp í þjóðfundarstíl þar voru
borðstjórar sem áttu að draga sam-
an niðurstöðurnar og skila þeim
af sér til sveitarfélagsins. Eðlileg-
ast hefði verið að þessi hópstjór-
ablöð væru notuð til að vinna sam-
antektarskýrsluna sem að ráðhús-
ið birti þar sem að fólk ræddi sam-
an um sínar hugmyndir og skiluðu
einhverri heildarniðurstöðu sem
ákveðin sátt var um. Samantektar-
skýrslan eftir fundinn byggir hins
vegar eingöngu á gulum miðum
sem fólk skrifaði á sínar hugmyndir
um sparnað, hver í sínu horni. Okk-
ur þykir fundurinn missa algjörlega
marks þegar svona er unnið úr nið-
urstöðum hans,“ sagði Hallgrím-
ur Sveinsson og bætti við: „Fyrir
hönd Íbúasamtaka Hvanneyris og
nágrennis óskuðum við eftir að fá
að sjá hópstjórablöðin en fengum
svar þar sem okkur var bara vísað
í skýrsluna. Okkur er kunnugt um
að á öllum nema einu borði kom
fram á hópstjórablöðum að það
eigi að standa vörð um grunnstoðir
og hlífa skólunum. Þessum blöðum
höfum við kallað eftir en fáum þau
ekki. Þetta er dæmi sem ég nefni
því það er lýsandi fyrir vinnuferlið.
Þau ætluðu sér aldrei að ræða við
íbúa um þessi mál. Við vitum ósköp
vel að fjárhagsstaðan er ekki góð en
vinnubrögðin sem hafa verið í boði
af hálfu sveitarstjórnar í þessum
málum eru ekki til eftirbreytni.“
Slæmur fjárhagur
fékkst ekki ræddur
Hallgrímur Sveinsson sagði það
gagnrýnivert hvernig stafshóp-
ar um hagræðingu og niðurskurð
væru settir saman. „Þetta eru Borg-
nesingar að spara í sveitunum. Við
sjáum ekki margar tillögur um að
spara í Borgarnesi. Ákveðnir aðil-
ar tala eins og þetta sé ekkert mál
og fólk verði búið að gleyma þessu
á morgun. Þessi niðurskurður var
ekki kosningamál í fyrra. Þá gengu
menn um og töluðu um að það yrði
að standa vörð um skólana. Það var
talað eins og fjárhagsstaða Borgar-
byggðar væri fín. Stefnuskrár allra
flokkanna eru til og það er hægt að
fletta þessu öllu upp.“
Bryndís Geirsdóttir rifjaði nú
upp að fyrir síðustu kosningar í
fyrra hefði aðeins einn maður tjáð
sig um það opinberlega að fjárhag-
ur Borgarbyggðar væri mjög slæm-
ur. „Þetta var Magnús Magnússon
ritstjóri á Skessuhorni. Þegar þetta
var borið undir frambjóðendur á
framboðfundum þá vildi enginn
kannast við neitt. Það var hlegið að
Vinstri grænum á kosningafundi í
Logalandi í fyrravor þegar þau töl-
uðu um að þau vildu standa vörð
um grunnskólana í sveitarfélaginu.
Það þótti ekki við hæfi að tala um
slíkt því menn væru nýkomnir úr
slagnum í kjölfar efnahagshruns-
ins og meira yrði ekki skorið niður
í þessum málaflokki.“
Skortur á umræðu
Fulltrúar Íbúasamtakanna ásaka
sveitarstjórn Borgarbyggðar um
skort á samráði og upplýsingum.
„Haldinn var fundur í Logalandi
en hann var að frumkvæði íbúa,
ekki sveitarstjórnar. Þar mættu
kjörnir fulltrúar að eigin sögn til að
hlusta en þau hlusta ekki með eyr-
unum. Það er fullreynt að svo sé.
Þetta er rosalega sérstakt og ólíkt
því sem gert er til dæmis í Fjarða-
byggð. Þar er tekinn langur tími í
að ígrunda svona mál. Svo er farið
í öll byggðalögin þar sem umræða
og kynning fer fram. Hér í Borg-
arbyggð er hins vegar eins og lítill
pólitískur hópur taki ákvarðanir og
það er ekki einu sinni reynt að ná
tali af íbúunum. Við erum ósátt við
að það er ekkert samtal við okkur
sem búum hér,“ sagði Hallgrímur.
Sólrún Halla sagði það merki-
legt að á sveitarstjórnarfundi eins
og þeim sem haldinn var á fimmtu-
dag þar sem stórar ákvarðanir voru
teknar, að þar skyldi ekki fara fram
nein umræða á sjálfum fundinum.
„Það var bara búið að ákveða hlut-
ina áður en fulltrúar gengu inn
hvernig þetta ætti að vera. Eina
manneskjan sem stóð upp og lagði
fram bókun gegn þessu sat síð-
an hjá við atkvæðagreiðsluna. Hún
kom með þá bókun tilbúna á fund-
inn en hvar var búið að ræða þetta,“
spurði hún.
Hafa ekki trú á íbúunum
Þau hjá Íbúasamtökunum voru á
einu máli um lokun Hvanneyr-
ardeildar Grunnskóla Borgar-
fjarðar væri mjög til þess fallið að
skapa óöryggi og óvissu. „Það eru
allavega tvær fjölskyldur sem eru að
hætta við að kaupa hús á þessu litla
svæði. Önnur fjölskyldan er hætt
við að koma hingað og hin er að
fara,“ sagði Birgitta Sigþórsdóttir.
„Lokun skólans er mjög baga-
leg því það var allt að vinna með
Hvanneyri. Þetta lýsir því bara að
sveitarstjórn hefur enga trú á íbúum
hér. Enda er það svo að þau virðast
ekki hafa verið í sambandi við fólk-
ið sitt né gera þau sér grein fyrir
því hvað er að gerast. Hér á ég fyrst
og fremst við fulltrúa meirihlut-
ans. Það er þó líka því miður svo
að of margir af íbúum sveitarfélags-
ins hafa ekki haft næga hugmynd
um hvað hefur verið að gerast hér
á Hvanneyri. Ótrúlega margir virð-
ast halda að Hvanneyri sé bara stór
sveitabær,“ sagði Borgar Páll.
Hallgrímur tók undir þetta.
,,Hvanneyrarskólinn hefur feng-
ið að gjalda fyrir fjölgun íbúa á
Hvanneyri. Áður var hér skóli upp
í 7. bekk en þegar fjölgaði var ekki
pláss. Í stað þess að byggja upp þá
var hver árgangurinn af öðrum
fluttur í burtu. Og það er ástæðan
fyrir að einingin er lítil í dag. Það
er 60 barna samfélag á grunnskóla-
aldri á Hvanneyri í dag og af þeim
er rúmlega 30 ekið í burtu á hverj-
um morgni. Þetta gleymist í um-
ræðunni.“
Ákvörðun sem
riðlar samstöðu
Aftur kom hópurinn að því að þeirri
skoðun að nýjustu ákvarðanir sveit-
arstjórnar Borgarbyggðar í skóla-
málum myndu veikja samheldn-
ina í sveitarfélaginu. „Skaðinn er
þegar orðinn verulegur þegar sam-
bandið milli sveitanna í Borgarfirði
og Borgarness er annars vegar. Við
sjáum það skýrt þegar fólk er í alvöru
byrjað að tala um að kljúfa sveitarfé-
lagið í tvennt og búa til tvö úr einu.
Nú er uppbygging víða í Borgar-
byggð. Við gætum gert svo margt
með samtakamáttinn að vopni. En
svo kemur svona mál upp og sundr-
ar fólkinu.“
Sigurður Guðmundsson sagði að
þrátt fyrri þetta væri órofa samstaða
meðal íbúa Hvanneyrar. „Ég held
að utanaðkomandi fólk átti sig ekki
alveg á því hvað hún er sterk. Sam-
staðan nær þvert yfir kynslóðirn-
ar. Hvanneyri og fólkið sem bygg-
ir staðinn hefur alltaf þurft að berj-
ast fyrir sínum hlut í gegnum tíð-
ina. Eldra fólkið er mjög duglegt
að stappa stálinu í okkur sem erum
yngri.“
Borgar Páll sagði að þau hafi trú
á sveitarfélaginu en ekki á fólkinu
sem er að stjórna núna. „Við, sum
hver allavega, stöndum kannski
frammi fyrir því hvort við eigum
bara að gefast upp og flytja á brott
eða berjast áfram. Þau í sveitarstjór-
ninni hafa tekið ákvörðun. Við get-
um svarað því með að segja: „Gott
og vel, við ætlum bara að byggja upp
samt vegna þess að við höfum trú á
framtíð Hvanneyrar.“ Núna þurfum
við að sannfæra fólk um að fara ekki
því það felast mikil og góð tækifæri
í að búa hér.“
Athuga stofnun
einkaskóla
Í máli hópsins sem hér var rætt
við kom fram að nú væri í athug-
un að stofna sjálfstæðan einkarek-
inn grunnskóla á Hvanneyri. „Ef
við sem búum á Hvanneyri trú-
um á samfélagið og framtíðina hér
þá getum við hreinlega farið aðr-
ar leiðir. Í ljósi þess hversu illa er
staðið að þessari ákvörðun um að
loka Hvanneyrardeild Grunnskóla
Borgarfjarðar hljótum við að skoða
það að leita nýrra lausna,“ sagði
Borgar Páll Bragason.
„Hugmyndin um slíkan einka-
skóla sem yrði stofnaður af íbúum
hér á Hvanneyri liggur fyrir. Það er
raunhæfur möguleiki. Eðli málsins
samkvæmt viljum við undirbúa það
vel. Það er hópur að skoða þetta,“
sagði Helga Svavarsdóttir.
Mikil samræða á sér stað með-
al íbúa Borgarbyggðar um málefni
sveitarfélagsins á líðandi stundu og
í nánustu framtíð. Síðasta orðið er
fráleitt sagt í þeirri umræðu.
mþh
Þungt hljóð í fulltrúum Íbúasamtaka
Hvanneyrar og nágrennis
Fulltrúar Íbúasamtaka Hvanneyris og nágrennis sem ræddu við Skessuhorn. Helgu Svavarsdóttur vantar á myndina.