Skessuhorn - 17.06.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015 15
Hópur íbúa í uppsveitum Borgarfjarð-
ar er afar óánægður með þá ákvörðun
sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá því
á fimmtudag að ætla að loka Hvann-
eyrardeild Grunnskóla Borgarfjarð-
ar og stefna jafnvel í framhaldinu að
lokun annað hvort grunnskóladeild-
arinnar á Varmalandi eða Kleppjárns-
reykjum. „Það hefur algjör trúnaðar-
brestur orðið milli okkar sem búum
í sveitinni og sveitarstjórnar sem að
stórum hluta er skipuð Borgnesing-
um. Okkur þykir sýnt að hagsmun-
ir sveitanna og þéttbýlisins í Borg-
arnesi fara ekki lengur saman,“ segir
Bjarni Benedikt Gunnarsson í Hlíð-
arkletti í Reykholtsdal í samtali við
Skessuhorn. Hann segir að hópur
fólks undirbúi nú stofnun nýs sveitar-
félags sem myndi kljúfa sig út úr nú-
verandi Borgarbyggð. „Það eru vissu-
lega engin fordæmi fyrir því í seinni
tíð að þetta hafi verið gert hér á landi,
en við ætlum okkur að láta á það
reyna. Við einfaldlega sættum okkur
ekki við hvernig farið er með málefni
okkar,“ segir Bjarni Benedikt.
Hann segir að þessi hópur hafi
haldið sig til hlés og vonast til að
sveitarstjórn Borgarbyggðar myndi
ekki ganga það skref að loka grunn-
skólum í dreifbýlinu. „Við héldum í
vonina og vildum ekki skaða sveit-
arfélagið með umræðu um þetta
fyrr en ljóst yrði hvort sveitarstjórn
stigi skrefið um lokun grunnskól-
anna okkar. Nú munum við með öll-
um tiltækum ráðum undirbúa stofn-
un nýs sveitarfélags. Það verður ekk-
ert endilega á grunni Borgarfjarðar-
sveitar, eins og hún var fyrir síðustu
sameiningu fyrir níu árum, heldur
munum við bjóða íbúum dreifbýlis-
ins norðan Hvítár að skoða þetta
með okkur, ásamt svæðinu sunnan
Hvítár og ef til vill Skorradalshreppi
ef áhugi er fyrir hendi.“
Bjarni segist sjálfur almennt hafa
fulla trú á hagkvæmni stærðarinn-
ar þegar umræðan um sveitarfélög
sé annars vegar, en það þurfi þá að
vera að því gefnu að fólk hafi sömu
markmið. „Það má líkja þessu við
hjónaband. Ef aðilar þess hafa sitt-
hvora sýn á áherslur og hvernig verja
á fjármunum, þá slitnar upp úr sam-
bandinu, það verður skilnaður. Við
höfum horft upp á að illa hefur verið
farið með peninga með ýmsum verk-
efnum í Borgarnesi, eytt álíka háum
upphæðum þar á einu ári í allskyns
gæluverkefni sem nú á að sækja til
okkar í sveitinni með að loka skól-
unum okkar. Þetta bara sættum við
okkur ekki við,“ segir Bjarni.
„Sveitarstjórnarfólk skilur ekki
þarfir sveitarinnar og þau lífsgæði
sem fólk hefur sóst í með að velja sér
þar búsetu. Unga fólkið á Hvann-
eyri hefur til dæmis verið að sækja
í þá kosti sem þéttbýli í sveit hefur.
Það er tilbúið að leggja á sig meiri
aksturskostnað og ýmislegt óhag-
ræði, en kostirnir eru skólarnir á
staðnum. Það eru börnin okkar sem
þetta snýst um. Þau sameina okkur
sem samfélag og um þau snýst allt
hjá ungu fólki. Nú vill sveitarstjórn
slíta frá okkur þessa kosti og breyta
um leið samfélagsgerðinni. Hún
samþykkir stefnumarkandi tillögu
án þess að ígrunda afleiðingarnar.
Vissulega sparar þessi aðgerð sveit-
arstjórnar, að loka dreifbýlisskólun-
um, peninga ef ekkert annað gerist.
En um leið er verið að tapa burtu
tækifærum sem felast í styrkleikum
Borgarfjarðar. Þetta snýst einnig um
trú sveitarstjórnarfólks á samfélagið
sem það á að veita forystu. Það er
allt í lagi að halda uppi óhagstæðum
skólaeiningum ef þú raunverulega
trúir því að samfélagið muni vaxa
og að þar muni fjölga íbúum og þar
með börnum. Það eru meira að segja
vísbendingar um tugi nýrra starfa á
næstu árum og einhvers staðar verða
börn þeirra starfsmanna að vera í
skóla,“ segir Bjarni.
Aðspurður um næstu skref segir
Bjarni Benedikt að hópur íbúa muni
nú bera saman bækur sínar og leitað
verði m.a. lögfræðilegrar aðstoðar
því lagalega er hægt að skapa ýmsan
þrýsting í svona máli. „Ég ætla hins
vegar ekki að fara nánar út í það á
þessari stundu. Málið er einfald-
lega svo skammt á veg komið. Þá
munum við skoða skulda- og eigna-
stöðu Borgarfjarðarsveitar fyrir síð-
ustu sameiningu og fara í ýmsa aðra
undirbúningsvinnu. Við erum með-
vituð um að engin fordæmi eru fyrir
því hér á landi að farið hafi verið til
baka út úr sameiningu sveitarfélaga.
Því verður á brattan að sækja. Það er
hins vegar allt í lagi, við erum tilbú-
in í þann dans sem sveitarstjórnar-
fólkið í Borgarnesi bauð til,“ sagði
Bjarni Benedikt Gunnarsson að
endingu.
mm
Hópur íbúa vill stofna nýtt sveitarfélag og
kljúfa út úr Borgarbyggð
Bjarni Benedikt Gunnarsson.
Á Hvanneyri búa 260 manns allt
árið um kring, þar af rúmlega 60
börn á grunnskólaaldri og um 40
á leikskólaaldri, en íbúum fjölg-
ar yfir skólaárið vegna nemenda
Landbúnaðarháskóla Íslands. Á
Hvanneyri er nú rekinn grunnskóli
fyrir 1.-4. bekk en sá skóli er einn
af þremur deildum Grunnskóla
Borgarfjarðar (GBF). Sá skóli var
stofnaður fyrir fimm árum þeg-
ar að Grunnskóli Borgarfjarðar,
sem varð til árið 2005 við samein-
ingu Andakílsskóla á Hvanneyri og
Kleppjárnsreykjaskóla, var sam-
einaður Varmalandsskóla. Skólinn
starfar nú á þessum þremur stöð-
um. Eftir útskrift úr Hvanneyr-
ardeild Grunnskóla Borgarfjarð-
ar halda börnin frá Hvanneyri til
náms á Kleppjárnsreykjum.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
ákvað á fundi sínum þann 11. júní
síðastliðinn að hætta grunnskóla-
haldi á Hvanneyri eftir skólaslit
vorið 2016. Íbúasamtök Hvann-
eyrar og nágrennis harma það að
sveitarstjórn hafi ekki trú á upp-
byggingu á Hvanneyri eða í sveit-
um sveitarfélagsins. Þessi ákvörð-
un þeirra er ekkert annað en yf-
irlýsing þess efnis. Á sama tíma
og við hörmum þessa niðurstöðu
fögnum við því að sveitarstjórn
ætli sér að ræða við foreldra barna
við Varmalandsdeild Grunnskóla
Borgarfjarðar og kanna þeirra hug
varðandi sameiningu starfstöðva
áður en ráðist verður í niðurskurð
þar. Þetta samtal fengu íbúar og
foreldrar á Hvanneyri ekki. All-
ir þeir fundir sem við höfum set-
ið með sveitarstjórn um málið
voru boðaðir af íbúum en aldrei að
frumkvæði sveitarstjórnar. Iðulega
var sveitarstjórn mætt til að hlusta
en ekki til að svara fyrirspurnum
eða ræða málin. Í skýrslu hagræð-
ingarnefndar um fræðslumál eru
margar grafalvarlegar rangfærslur
sem m.a. Íbúasamtökin og skóla-
ráð GBF hafa bent á en þær hafa
ekki verið leiðréttar. Þar má til
dæmis nefna upplýsingar/áætlun
um nemendafjölda í Hvanneyrar-
deild GBF næstu sjö árin. Þess ber
einnig að geta að allar upplýsing-
ar um væntanlegan nemendafjölda
í skýrslunni byggja á því að engin
íbúafjölgun verði í sveitarfélaginu
á næstu árum. Að auki er skýrslan
greinilega skrifuð út frá þeim út-
gangspunkti að Hvanneyrardeild
GBF skuli lögð niður sama hvað
og eru heimildir valdar út og túlk-
aðar eins og þær henta málstaðn-
um. Svona vinnubrögð eru torskil-
in og siðlaus. Á sama tíma og íbúa-
fundur er haldinn á vegum Borg-
arbyggðar um skotsvæði í landi
Hamars og um endurnýjun lagna
og gangstétta í einni götu í Borg-
arnesi boðar sveitarstjórn ekki til
íbúafundar um lokun grunnskóla
á Hvanneyri. Einnig hafa um 550
kosningabærir íbúar á starfsvæði
Grunnskóla Borgarfjarðar undir-
ritað yfirlýsingu starfstöðvunum
til stuðnings en sveitarstjórn kýs
að hunsa vilja þess fólks. Um 98%
þeirra sem náð var tali af skrifuðu
undir yfirlýsinguna. Á fundi sem
íbúar boðuðu til í Logalandi þann
25. maí síðastliðinn komu skoð-
anir íbúa afdráttarlaust fram. Far-
ið var fram á að sveitarstjórn héldi
í heiðri sáttmálann sem gerður var
og er grundvöllur þess að samein-
aða sveitarfélagið Borgarbyggð er
til. Sveitarstjórnarmeðlimum og
sveitarstjóra var boðið að leggja
orð í belg og svara fyrirspurnum í
lok fundar en forseti sveitarstjórnar
var sá eini sem steig í pontu. Hann
lýsti því yfir að sveitarstjórn hefði
bæði hlustað á og heyrt málflutn-
ing fólksins og hann ítrekaði það
að engin ákvörðun hefði verið tek-
in í málinu. Íbúasamtökin telja það
þó skýrt og greinilegt að ákvörðun
í þessu máli hefur legið fyrir lengi,
það sést glögglega ef horft er til
vinnubragða sveitarstjórnar.
Íbúasamtök Hvanneyrar og ná-
grennis skilja vel kröfuna um sparn-
að og margar tillögur sem sett-
ar eru fram í skýrslu hagræðingar-
nefndar fræðslumála eru að okkar
mati mjög góðar. En í stað þess að
fara leiðir sem að kæmu jafnt niður
á öllu sveitarfélaginu og væri meiri
sátt um velur sveitarstjórn að fara
þá leið sem er hvað mest íþyngj-
andi fyrir íbúana. Íbúasamtökun-
um þykir það óskiljanlegt, sér í lagi
vegna þess að sumar mildari leið-
ir sem hagræðingarnefnd fræðslu-
mála setur fram í sinni skýrslu
myndu ná fram jafn mikilli ef ekki
meiri hagræðingu en hlýst af því að
leggja af grunnskólahald á Hvann-
eyri, ef marka má útreikninga við-
komandi nefndar.
Ítrekað hafa íbúar sveitarfélags-
ins óskað eftir upplýsingum um
hversu mikill heildarsparnaður
hlýst af því að leggja niður Hvann-
eyrardeild Grunnskóla Borgar-
fjarðar en sveitarstjórn virðist ekki
geta svarað þeirri spurningu. Að
sama skapi hefur hún ekki getað
svarað því hvaða þættir eru teknir
inn í þær sparnaðartölur sem birt-
ar eru í skýrslu hagræðinganefnd-
ar fræðslumála. Íbúasamtökin velta
því fyrir sér hvernig sveitarstjórn
getur leyft sér að taka svo íþyngj-
andi ákvörðun fyrir sveitarfélagið
án þess að hafa svona grunnstað-
reyndir um málið á hreinu eða rök-
ræða málið við þá sem það snertir
mest. Grunnskóli er kjarni hverr-
ar byggðar og oftar en ekki sú lög-
bundna þjónusta sem ræður þróun
byggðarinnar en íbúum á Hvann-
eyri hefur fjölgað gríðarlega á síð-
ustu árum. Í þessu samhengi má
nefna að fleiri bekkir grunnskóla
hafa verið reknir á Hvanneyri.
Þegar íbúum staðarins hefur fjölg-
að hefur sveitarstjórn iðulega leyst
málin með því að fækka bekkjar-
deildum grunnskólans í stað þess
að sjá hag í því að stækka skólann
og gera Hvanneyri þannig að enn
fýsilegri búsetukosti. Það er eitt-
hvað mikið bogið við slíka nálg-
un. Miðað við samkeyrð gögn frá
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu og Hagstofu Íslands er
enginn þéttbýliskjarni af stærðar-
gráðu Hvanneyrar án grunnskóla.
Þessi ákvörðun sveitarstjórnar,
að leggja niður grunnskólahald
á Hvanneyri, er því algjörlega úr
takti við þá grunnþjónustu sem í
boði er í öðrum þéttbýliskjörnum
landsins, sem og úr takti við alla
þá uppbyggingu sem á sér stað á
Hvanneyri og í uppsveitum Borg-
arbyggðar. Að auki er það eflaust
fordæmalaust að sveitarfélag hætti
grunnskólarekstri í þéttbýliskjarna
sem er í örum vexti.
Íbúasamtök Hvanneyrar og ná-
grennis hafa trú á sínu samfélagi
og sínu sveitarfélagi. Við höfum
fulla trú á þeirri uppbyggingu sem
á sér nú stað á Hvanneyri og í upp-
sveitum Borgarbyggðar og viljum
við horfa til framtíðar. Grunnskóli
á Hvanneyri er stærsta forsend-
an fyrir áframhaldandi íbúafjölgun
á staðnum, fyrir þeirri íbúafjölg-
un sem m.a. gildandi Aðalskipu-
lag Borgarbyggðar (2010-2022) og
nýlegar fjárfestingar sveitarstjórn-
ar í nýjum leikskóla á Hvanneyri,
í gatnagerð og í bættri aðkomu
að grunnskólanum gera ráð fyrir.
Við teljum ákvörðun sveitarstjórn-
ar um lokun Hvanneyrardeildar
Grunnskóla Borgarfjarðar byggða
á ótraustum gögnum og vinnuferl-
ið ekki standast kröfur um sann-
gjörn og eðlileg vinnubrögð, m.a.
vegna þess að allt samtal við íbúa
skortir. Þessi einhlíta ákvörðun er
tekin í fullkominni ósátt við íbúa
sveitarfélagsins. Sýnt er að sveit-
arstjórn reynir hér að spara aurinn
en kastar í stað þess krónunni í al-
gjörri skammsýni.
Virðingarfyllst,
Stjórn Íbúasamtaka Hvanneyrar
og nágrennis
Álfheiður Sverrisdóttir
Birgitta Sigþórsdóttir
Borgar Páll Bragason
Bryndís Geirsdóttir
Hallgrímur Sveinn Sveinsson
Sigurður Guðmundsson
Sólrún Halla Bjarnadóttir
Yfirlýsing frá Íbúasamtökum Hvanneyrar og nágrennis
- Varðandi áform sveitarstjórnar um að loka Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar