Skessuhorn - 17.06.2015, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 201516
Elsa Lára Arnardóttir býr á
Akranesi, er kennari að mennt
en var kosin á þing 2013 fyrir
Framsóknarflokkinn. Hún
telur ekki að konur séu konum
verstar en álítur er kemur að
launum, að þær séu e.t.v. rag-
ari við að meta menntun sína
og reynslu en karlar, en það sé
þó afar mismunandi. Þrátt fyrir
að tímarnir hafi breyst og við
lifum á 21. öld, heyrir hún samt
þær raddir að hún sé ekki að
sinna börnum og heimili sem
skyldi. Rætt er við Elsu Láru um
líf þingkonu nútímans.
Við getum þetta saman
Elsa Lára Arnardóttir hafði svo
sem ekkert endilega hugsað sér að
gerast Alþingismaður eða að verða
virkari í pólitík en hún hafði ver-
ið. En er mál fóru að þróast í þá
átt var fyrirséð að eitt og annað
varð að breytast heima. „Maður-
inn minn hefur unnið í Noregi og
á Grænlandi í nokkur ár. Því hef
ég verið ein með börnin á meðan
hann er í vinnutörn úti og í raun
hefur heimilislífið verið skipulagt
í kringum fríin hans. Því var það
svo að þegar kom til álita að ég
færi á þing eða tæki sæti það of-
arlega á lista að slíkt gæti komið
til, var fundað með afa og ömmu,“
segir Elsa Lára Arnardóttir bros-
andi í upphafi spjalls. „Það eru
sem sagt langafi og langamma
barnanna minna sem ég er að tala
um því foreldar mínir búa ekki hér
á Akranesi. Ég hef gjarnan litið á
afa og ömmu sem foreldra mína og
á gríðarlega gefandi og gott sam-
band við þau. Raunar verð ég helst
að heyra í þeim daglega og amma
er ein af mínum bestu vinkonum.
Það er hið sanna ríkidæmi að fá að
njóta samvista við bæði ömmu og
afa. En allt um það. Þegar ákveð-
ið var að fara í kosningabaráttu var
sem sagt sest niður með ömmu og
afa. „Við getum gert þetta saman,“
sögðu þau, svo þetta var meðvituð
ákvörðun. Þannig að afi og amma
hafa svolítið séð um heimilið á
meðan ég hef verið í vinnunni og
fyrir það er ég afar þakklát. Reynd-
ar fékk maðurinn minn núna fyr-
ir skömmu vinnu hér heima og er
kominn í um það bil 8 til 5 vinnu,
svo nú finnst mér ég geta allt,“
segir hún brosandi.
Í fjárhagslegu basli
eins og margir
Þegar umræðan beinist að efna-
hagsmálum segir Elsa Lára að þau
hjónin hafi alveg átt í fjárhagslegu
basli eins og svo margir Íslending-
ar. Þau hafi nýlega verið búin að
byggja sér hús þegar hrunið dundi
yfir og margoft farið í gegnum þá
umræðu hvort ætti að selja eða eiga.
Laun eiginmannsins erlendis hafi
sannarlega skipt máli og launin séu
mun betri í þinginu heldur en hjá
kennurum. „Ég er hins vegar hugsi
yfir því að ýmsu leyti,“ segir hún al-
vörugefin og heldur áfram. „Kenn-
arar eru að leggja grunn að fram-
tíðinni með menntun barnanna
okkar. Þeir þurfa því að hafa laun
við hæfi. Ég velti fyrir mér hvort
við konur séum almennt ragari við
að meta okkur sjálfar til launa held-
ur en karlar, þó það geti verið afar
mismunandi. Of oft heyrir maður
konur segja þegar þær eru spurð-
ar um hvar þær vinni; „ég er BARA
heima.“ Þær eiga að hætta að segja
„bara“ og vera stoltar af því sem
þær eru að gera. Íslenskar konur
eru frábærar og geta allt sem þær
ætla sér. Sem dæmi er ég sjálf sem
hélt að ég færi aldrei út í pólitík. Ég
þorði ekki og hélt ég hefði það ekki
í mér að stíga þau skref sem þurfti,
til að hella mér út í þetta starf. En
ég ákvað að taka áskoruninni og sé
ekki eftir neinu. Við þetta hef ég
lent í ýmsu en þægindahringurinn
stækkar og eftir því sem áskorunum
fjölgar, stækkar hann enn meira,
segir hún og brosir við.
Konur styðja hver aðra
Elsa Lára segir að konur styðji
hver aðra og það verði hún vör
við í þinginu, hvar hún á afskap-
lega góðar vinkonur. Þær séu dug-
legar að leita til hverrar annarrar
þegar höndla þarf ýmsar aðstæð-
ur. „Við ræðum málin, tökum ef til
vill göngutúr í kringum tjörnina til
að spjalla. Það er alveg nauðsyn-
legt. Ég held því að tímarnir hafi
breyst þannig að konur séu ekki
konum verstar. En ég hef sannar-
lega heyrt utan af mér raddir sem
gagnrýna mig og segja, ef hún sé
ekki í vinnunni þá er hún úti að
hlaupa. Velta því fyrir sér hvernig
ég hafi tíma í þetta og hver sjái eig-
inlega um börnin mín og heimilið.
Mér brá rosalega mikið þegar ég
heyrði fyrst þessar gagnrýnisradd-
ir en þetta venst eins og allt ann-
að. Ef að fólki líður betur að tala
svona, þá er það bara gott. En það
er meðvituð ákvörðun að reyna að
láta slíkt ekki hafa áhrif á sig, enda
veit ég betur,“ segir hún og leggur
áherslu á orð sín.
Kannski þarf konu í
áberandi ábyrgðar-
stöðu að nýju
„Fæðingarorlof feðra er afar já-
kvætt í okkar góða samfélagi. Í því
samhengi er nauðsynlegt að hækka
launaþak á fæðingarorlof, þannig
að það verði í takt við meðallaun
í landinu. Það hefur sýnt sig að
feður taka síður fæðingarorlof nú
vegna þess hversu launaþakið er
lágt. Margir hafa kannski ekki efni
á að lækka mikið í launum. Þessu
þarf að breyta svo þeim körlum
sem taka fæðingarorlof, fjölgi á ný,
segir Elsa Lára ákveðin og heldur
áfram. „Við þurfum að skoða hvað
við getum gert til að börnin hafi
raunverulega möguleika á að hafa
pabba sinn heima, eins og mömm-
urnar. Að það sé jafn sjálfsagt að
pabbinn sé heima og mamman.
Kannski þurfum við aftur konur í
forystu landsins eða einhverjar afar
áberandi stöður, svo að eftir sé tek-
ið. Það er hins vegar af og frá að ég
sé upptekin af því að kona eigi að
vera einhversstaðar, bara af því að
hún er kona. En því miður sjáum
við, í mörgum tilvikum, að konur
komast ekki nógu ofarlega á lista.
Kannski er eina leiðin að vera með
ákveðnar reglur um uppstillingu
á framboðslista flokka, þó ég hafi
farið marga hringi með það mál
og sveiflist svolítið með þá skoð-
un mína. En ég fæ sem dæmi mörg
símtöl um að koma skilaboðum til
karlanna í vinnunni. Ég held að
færri hringi í þá og láti þá koma
skilaboðum til mín. Enn í dag eig-
um við konurnar að halda utan um
kaffihlaðborð fyrir kosningar á
meðan við sjáum karlana ekki sinna
þeim verkum. Mér finnst sem það
vanti meiri virðingu fyrir konum
sem eru að sinna þessu starfi og því
er skoðun mín sú nú að setja verði
þessar reglur. Kannski snýst þetta
eingöngu um mann sjálfan og það
er alltaf mikilvægt að horfa í eig-
in barm. En allavega er öllum holt
að hafa það í huga, að það á ekki
að viðgangast að gera mismunandi
kröfur til fólks í sömu vinnu, eftir
kynjum.“
Virðing fyrir fólki
og skoðunum er
nauðsynleg
„Það er mjög mikilvægt að radd-
ir beggja kynja heyrist og þótt við
séum ekki alltaf sammála þá er
mikilvægt að við virðum skoðan-
ir hvers annars, óháð öllu. Okkur
er það öllum hollt að hlusta á aðra
og bera virðingu fyrir náunganum,
en því miður vantar oft dálítið upp
á það. Við þurfum svo mikið að
hætta að rakka hvert annað niður í
stað þess að segja bara hver skoðun
manns er, án þess að rakka aðrar
niður. Ég hef líka miklar áhyggj-
ur af þróun mála í bankakerf-
inu, þar sem þjónustugjöld þeirra
hækka stöðugt og sá hópur sem
verður mest fyrir barðinu á því,
er gamla fólkið okkar. Það hef-
ur nefnilega sýnt sig að það nýt-
ir sér tæknina minna en þjónustu
bankanna meira. Þetta er löglegt
en mér finnst það siðlaust. Einn-
ig finnst mér það, sem hér gerð-
ist, það er efnahagshrunið, megi
rekja til nokkurra siðlausra ákvarð-
ana, örugglega líka ólöglegra. Það
er þáttur sem mér finnst enn eiga
eftir að gera upp og mikilvægt að
verði gert því fyrr verður ekki sátt í
okkar góða samfélagi. Þetta er mín
skoðun og örugglega eru aðrir á
allt annarri skoðun. Ég hef hins
vegar verið dugleg að vekja athygli
á þessum málum í þinginu og mun
halda því áfram.“
Allir þurfa heimili
„Eins og ég sagði þá hef ég talað
talsvert fyrir þessum málum, af því
að ég hef áhyggjur. Það er ákveð-
inn hópur, bæði konur og karlar,
sem tala um þetta í þinginu. Marg-
ir hafa áhyggjur af fjölskyldum
sem hafa brotnað við hrunið. Það
hefur haft gríðarleg áhrif á börn,
ef við tökum það sem dæmi. En
mikilvægt er að halda í vonina og
viðhalda henni. Til að gera vel við
fjölskyldur þá er m.a. nauðsynlegt
að koma hér upp raunverulegu
vali á húsnæðismarkaði. Hérlend-
is hefur ríkt mikil séreignastefna
en það er svo að það geta ekki allir
keypt húsnæði og sumir vilja það
ekki, en allir þurfa að eiga heimili.
Ég bind miklar vonir við að þeir
sem vilja leigja, geti búið við ör-
yggi í húsnæðismálum og það er
mikilvægt að það gerist í náinni
framtíð. Það er ekki hægt að horfa
upp á fjölskyldur flytjast stöðugt til
vegna þessa ástands sem nú ríkir á
leigumarkaði. Þess vegna er afar
ánægjulegt að sjá þær aðgerðir sem
ríkisstjórnin leggur til í kjarasamn-
ingum, en það er að byggja 2.300
íbúðir fyrir tekjulágar fjölskyldur á
næstu fjórum árum. Einnig er ver-
ið að stórauka fjármuni í húsnæð-
isbætur sem mun koma sér ein-
staklega vel fyrir heimili með lág-
ar tekjur og meðal tekjur. Annað
sem verður að gera er að afnema
verðtrygginguna, það er nauð-
synlegt til að sagan endurtaki sig
ekki. Verðbólga má ekki hafa þau
áhrif að það komi niður á lánum
heimilanna. Það hefur sýnt sig að
verðtryggð lánasöfn bankanna eru
gríðarlega há og þegar verðbólgan
hækkar, þá verða lánasöfn bank-
anna verðmeiri og eignatilfærsla
verður frá heimilum landsins til
fjármálastofnanna. Það verður að
stöðva. Einnig þarf að hjálpa þeim
einstaklingum sem eru með verð-
tryggð lán, að skuldbreyta yfir í
óverðtryggð lán með litlum til-
kostnaði. Þá er mikilvægt að koma
með mótvægisaðgerðir fyrstu
ár lánstímans, því afborganir af
óverðtryggðum lánum eru hærri
en af verðtryggðum. Ég finn mig
vel í þessu hlutverki inni á þingi
þó það geti líka tekið á. Ég vil vera
röddin sem talar fyrir þessum mál-
um. Ég er ekki alltaf sú þægasta í
hópnum enda er það ekki hlutverk
okkar þingmanna, heldur að fylgja
sannfæringu okkar. Ég hefur verið
órög við að benda á það sem mér
finnst ekki í lagi. Þetta er sú rödd
sem ég vil standa fyrir.“
Hlaupin bjarga
geðheilsunni
Elsa Lára er mikill hlaupari. Árið
2008 byrjaði hún að hlaupa. Það
gerði hún einkum til að bjarga geð-
heilsunni, að eigin sögn. Til að
byrja með hljóp hún milli tveggja
ljósastaura en labbaði síðan milli
næstu, þrekið var ekki meira. Í dag
hleypur hún Ultra maraþon svo
þetta er greinilega hægt. „Það er
gríðarlega gott að fara út að hlaupa
ekki síst á morgnanna fyrir vinnu.
Þá set ég fókusinn fyrir daginn. Á
hlaupunum verða margar ræður til
og hugmyndir fæðast en oft er þetta
mín leið til að komast út í náttúr-
una, fá ró og aftengja sig frá amstr-
inu. Á sumrin förum við mæðgurn-
ar, ég og 12 ára dóttir, mín í sjó-
sund. Þegar vöðvarnir eru algjör-
lega búnir á því, þurfa þeir kælingu
og þá er þetta dásamleg aðferð.
Fyrir nú utan það að sjósundið gef-
ur okkur mæðgum dýrmætar sam-
verustundir,“ segir Elsa Lára Arn-
ardóttir að endingu. bgk
Gríðarlega mikilvægt að raddir beggja kynja heyrist
Rætt við Elsu Láru Arnardóttur alþingismann í Norðvesturkjördæmi
Elsa Lára Arnardóttir þingmaður í Norðvesturkjördæmi.
Elsa Lára í hlaupagallanum í miðri á, á Snæfellsnesi þegar hún skokkaði
Flatnaveg frá Rauðmelsölkeldu að Skógarströnd.