Skessuhorn - 17.06.2015, Side 23
Norð ur áls mót ið 2015
Norðurálsmótið á Akranesi er knattspyrnu-
mót fyrir tápmikla stráka í 7. flokki, sem
koma til að skemmta sér í leik og keppni.
Allir þjálfarar, fararstjórar, foreldrar, systk-
ini og aðrir ættingjar eru boðnir velkomn-
ir á Skagann með strákunum. Mikil undir-
búningsvinna liggur að baki mótinu og hafa
skipuleggjendur hjá Íþróttabandalagi Akra-
ness það að leiðarljósi að taka sem best á
móti öllum og að mótið gangi vel fyrir sig.
Um 800 einstaklingar á Akranesi koma að
þeirri vinnu og þeim störfum sem þarf að
sinna meðan á móti stendur, meðal annars
800 vöktum.
Norðurálsmótið kallaðist í fyrstu Skaga-
mótið en hefur síðan haft mörg nöfn eftir
því hvaða fyrirtæki styrkja það hverju sinni,
nú síðast Norðurál. Að þessu sinni er það
haldið 19. - 21. júní. Í ár hafa 176 lið skráð
sig til leik frá alls 30 félögum. Reiknað er
með að yfir 6.000 manns verði gestkom-
andi á Akranesi vegna mótsins og því ligg-
ur nærri að íbúafjöldi bæjarins tvöfaldist þá
daga sem mótið stendur en íbúar á Akra-
nesi eru nú um 6.730 talsins.
Með Skessuhorni í dag fylgir lítið sérblað
um mótið og sitthvað sem tengist knatt-
spyrnu á Akranesi. Það er von útgefanda að
blað þetta nýtist vel gestum og upplýsi fólk
um ýmis atriði sem Norðurálsmóti tengj-
ast. Blaðið er fært gestunum ásamt viku-
legu fréttablaði. Á meðfylgjandi mynd eru
hressir ÍA strákar að veifa til áhorfenda fyr-
ir leik á Norðurálsmótinu í fyrra.
mm/ Ljósm. G Bjarki Halldórsson.
Föstudagur 19. júní
08:30 - 11:00 Mæting á gististaði
10:30 - 11:00 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð
11:00 Mæting í skrúðgöngu hjá bæjarskrif-
stofunum (á móti Krónunni).
11:15 - 11:45 Skrúðganga að Akraneshöll
12:00 - 12:30 Mótssetning í Akraneshöll
13:00 - 19:00 Keppni 1. mótsdags.
13:00 - 19:00 Liðsmyndataka (tímasetning breytileg)
17:00 - 20:00 Kvöldverður (tímasetning breytileg)
22:30 - 23:00 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð
Laugardagur 20. júní
07:45 - 09:30 Morgunverður
09:00 - 12:00 Keppni 2. mótsdags - fyrri hluti
11:30 - 14:00 Hádegismatur (tímasetning breytileg)
13:30 - 16:30 Keppni 2. mótsdags - seinni hluti
10:00 - 18:00 Leikjaland Alltaf Gaman opið,
sjárvarmegin við Akraneshöll
16:45 - 19:30 Kvöldverður (tímasetning breytileg)
19:30 - 20:30 Kvöldskemmtun í Akraneshöll og
viðurkenningar
21:30 - 22:00 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð
21:30 - 23:00 Foreldrakaffi (í boði foreldra KFÍA) í
matsal Íþróttamiðstöðvar og myndasala
Sunnudagur 21. júní
07:45 - 09:30 Morgunverður
09:00 - 12:00 Tæma skólastofur
09:00 - 13:00 Keppni 3. mótsdagsins
10:54 - 13:30 Pylsugrill við Norðurálsvöllinn
Móti lokið
DAGSKRÁ NORÐURÁLSMÓTSINS 2015