Skessuhorn - 17.06.2015, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 201528
Sendum íslenskum konum baráttukveðjur í tilefni aldarafmælis kosningaréttar
Undanfarið hefur Facebook
hópurinn Beauty Tips vakið
mikla athygli. Sannkölluð
bylting hefur átt sér stað innan
hópsins þar sem persónu-
legar frásagnir af kynferðis-
legu ofbeldi hafa hrúgast inn á
síðuna undir myllumerkjunum
#þöggun og #konurtala. Kon-
urnar hafa sagt sögu sína hver á
fætur annarri og ekkert dregið
undan. Í hópnum eru rúmlega
28 þúsund konur á öllum aldri
og sífellt bætist í hópinn. Ás-
laug María Agnarsdóttir, tvítug
kona í Borgarnesi, er konan á
bak við þennan stóra hóp.
Það var í febrúar 2014 sem Áslaug
stofnaði Facebook hópinn Beauty
Tips. „Mér fannst vanta hóp þar
sem stelpur gætu spjallað saman um
förðun og annað útlitstengt. Síð-
an var opin öllum til að byrja með
og það bættist fljótt í fjöldann og
ég lokaði hópnum,“ segir Áslaug.
„Í byrjun voru þetta mest stelpur en
svo fóru að bætast við margir strák-
ar. Ég lét svo kjósa um hvort stelp-
urnar vildu hafa strákana þarna inni
líka. Stelpunum fannst óþægilegt
að hafa strákana með enda eru þær
að ræða allt á milli himins og jarðar
þarna inni,“ bætir hún við. Hún seg-
ir þónokkra stráka hafa fengið und-
anþágu og því séu nokkrir karlmenn
meðlimir í hópnum. Líkt og Áslaug
segir er ýmislegt rætt innan hóps-
ins. Stelpurnar leita ráða varðandi
ýmis mál hjá hver annarri og deila
reynslusögum.
Sökuð um þöggun
Að sögn Áslaugar hófst byltingin
í kjölfar umræðu sem birtist á vef-
síðunni. Þar var þjóðþekktur maður
nafngreindur og óskað eftir reynslu-
sögum frá stúlkum sem „lent höfðu
í honum“. Áslaug segist hafa eytt
þeim umræðuþræði út af síðunni á
endanum. „Athugasemdirnar voru
orðnar mjög ljótar og það var allt
komið í rifrildi. Þá fannst mér kom-
inn tími til að eyða þessu út. Ég lét
stelpurnar tvær, sem umræðan snerti
mest, vita og þær voru alveg sáttar
við að þessu yrði eytt út,“ útskýrir
Áslaug. En ekki voru allir sáttir við
að umræðunni hefði verið eytt. Ein-
hverjar konur á síðunni sökuðu Ás-
laugu um þöggun. „Ég var ekki að
þagga neitt niður, síður en svo. Þessi
tiltekna umræða var bara komin út í
rugl og langt út fyrir velsæmismörk.
En það voru einhverjar stelpur sem
töldu mig vera að þagga niður í
þessum málum.“ Eftir að færslan var
tekin út spruttu reynslusögur fram,
hver á fætur annarri. Umræðurn-
ar voru merktar með myllumerkinu
#þöggun og #konurtala. „Það kom
bara algjör sprengja. Ég var reynd-
ar í vinnunni þegar þetta fór af stað,
svo fékk ég bara sms og ég var spurð
hvort ég væri búin að sjá það sem
væri í gangi inni á síðunni,“ segir
Áslaug sem ekki hefur tölu á hversu
margar konur eru búnar að segja frá,
þær skipti hundruðum.
Talaði við lögmann
Áslaug segir að frásagnirnar hafi
haft mikil áhrif á sig. „Fyrst tók ég
þessu mjög persónulega. Ég komst
ekki yfir að útskýra hvers vegna ég
hafði eytt hinum þræðinum.“ En
Áslaug segir að eftir það sé greini-
leg þörf fyrir umræðuna, miðað við
fjölda þeirra kvenna sem hafa stig-
ið fram og húna hafi eftir að bylt-
ingin fór af stað fengið mikið hrós.
„Ég var samt hrædd við þessa um-
ræðu fyrst. Ég var mest hrædd við að
lenda í einhverju meiðyrðamáli eftir
að Sveinn Andri Sveinsson lögmað-
ur kærði DV vegna umfjöllunar sem
birtist um hann í því blaði. En ég
talaði við lögmann og komst að því
að ég lendi ekki í neinum vandræð-
um þó einhver annar skrifi eitthvað
á síðunni.“ Áslaug leggur áherslu á
að hver og einn beri ábyrgð á sínum
ummælum og að ekki borgi sig að
nafngreina fólk í umræðum. „Fólk
þarf að muna að í hópnum skrifa all-
ir undir sínu eigin nafni. Ég hef eytt
einni eða tveimur umræðum þar
sem aðilar hafa verið nafngreindir
en það voru engir eftirmálar af því.
Það er frábært ef konur geta notað
síðuna til að létta á sér og fá stuðn-
ing eða ráð en ekki nota hana til að
sverta mannorð annarra.“ Hún seg-
ir vera nokkuð um það að blaða-
menn sæki sér efni á síðunni. „Fyrst
hugsaði ég með mér að ekkert mætti
leka út en ég held að ég geti ekkert
gert í því ef það gerist. Ég reyndi að
stoppa þetta af á einum fjölmiðli þar
sem var birt skjáskot með nöfnum,
en ég fékk ekki einu sinni svör. Þess
vegna má maður heldur ekki gleyma
að maður er þarna inni undir nafni,“
útskýrir hún.
Dramatískar umræður
Í stórum hópi sem þessum þurfa
engu að síður að gilda reglur. Áslaug
hefur sett reglurnar eftir þörfum og
segir að yfirleitt gangi allt vel í hópn-
um. „Ég kemst samt ekki yfir að lesa
allt á síðunni. En stelpur geta sent
mér tilkynningu um þræði ef þeim
líst ekki á þá. Ég get þá skoðað þá
og eytt þeim. Það eru líka tvær aðrar
sem hafa verið að hjálpa mér aðeins
með þetta. Til að byrja með voru
þær að hjálpa mér að henda út strák-
unum,“ segir Áslaug og brosir. Hún
segist hafa gaman af síðunni, þó að
umræðan í hópnum geti stundum
orðið mjög dramatísk. „Ég var rosa-
lega hörð á því fyrst að stelpurnar
væru ekki leiðinlegar við hvora aðra
en hópurinn er orðinn svo stór núna
að það er ekki hægt að fylgjast með
því. Það eru svo margir þarna inni
og fólk er svo misjafnt. Ég er ekkert
að skipta mér af því þó þetta fari út
í eitthvað drama, ég eyði umræðun-
um bara ef þær verða mjög ljótar.“
Konur á öllum aldri eru meðlimir í
hópnum, þær yngstu unglingar og
þær elstu komnar yfir fertugt. Fleiri
Beauty Tips hópar hafa skotið upp
kollinum í kjölfarið, þar sem meiri
aldursskipting er. Áslaug segist vita
um fjóra aðra hópa sem eru með
aldurstakmörk og svo sé einn hópur
sem er fyrir bæði stráka og stelpur.
Ætlar í sálfræði
Áslaug er upprunalega frá Reykja-
vík en hefur búið í Borgarnesi í
rúm tíu ár. Hún lauk stúdentsprófi
frá Menntaskóla Borgarfjarðar vor-
ið 2014 og starfar nú á leikskólan-
um Hraunborg á Bifröst. „Ég vildi
aðeins ná að kúpla mig frá skól-
anum. En ég stefni á að fara í sál-
fræðinám í haust.“ Hún segir bylt-
inguna í hópnum hafa hjálpað henni
við að ákveða hvað hún vildi læra.
„Ég var alveg búin að velta því fyr-
ir mér en var ekki ákveðin. En eftir
þessa umræðu gat ég tekið ákvörð-
un. Mér finnst svona hlutir áhuga-
verðir,“ segir hún. Áslaug ætlar því
að flytja til Reykjavíkur í lok sum-
ars. Þar ætlar hún að búa með yngri
bróður sínum, sem stundar nú nám
við Menntaskólann í Reykjavík.
Þegar hún flýgur úr hreiðrinu verða
foreldrar hennar einir eftir í kotinu.
„Ég á sex systkini og er næst yngst.
Það eru allir fluttir að heiman nema
ég, þannig að mamma og pabbi eru
að spá í að flytja líka.“ Þrátt fyrir að
hafa búið í Borgarnesi rúmlega hálfa
ævi sína þá segist hún ekki vita hvar
ræturnar liggi. „Mér líður mjög vel
hérna en ég sæki samt mjög mik-
ið í bæinn. Ég hef alltaf sótt mikið
þangað og er eiginlega allar helgar
þar hjá systur minni.“
Konur standa saman
Hún segir næstu skref með hópinn
Beauty Tips vera óljós. Hún ætli
samt ekki að hætta að stýra síðunni
í bráð. „Ég held alltaf að þetta fjari
út en svo gerist það ekki. Ég ætla að
leyfa þessu að rúlla, ég held að ég
tími ekki að hætta. Mér finnst þetta
svo merkilegt, ég hef unnið mik-
ið fyrir þessu og þetta hefur tekið á.
Það er greinilega þörf fyrir hóp sem
þennan, þar sem konur hvar sem er
á landinu geta staðið saman og skil-
að skömminni þangað sem hún á
heima.“ grþ
Áslaug María Agnarsdóttir:
Konur mótmæla þöggun um kynferðislegt ofbeldi
Áslaug María Agnarsdóttir stjórnar grúppunni Beauty Tips á Facebook.
Garðaþjónustan
Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu Snæfellsbær