Skessuhorn - 17.06.2015, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 201530
Sendum íslenskum konum baráttukveðjur í tilefni aldarafmælis kosningaréttar
„Ég er búin að vera hérna í
tæpar þrjár vikur, í sauðburði
hérna hjá mömmu og pabba,“
sagði Elín Margrét Böðvars-
dóttir þegar blaðamaður
Skessuhorns leit við á Hrúts-
stöðum í Dölum laust fyrir
mánaðamótin síðustu. „Ég fer
svo líklega suður til Reykja-
víkur í lok vikunnar og byrja
að vinna á hjá Íslandsdeild
Amnesty International. Ég var
að vinna þar í vetur við út-
hringingar og verð í fullu starfi
í sumar.“ Aðspurð um hvað fel-
ist í starfinu segir Elín það vera
götukynningar til að kynna
starfsemi samtakanna, söfnun
undirskrifta og síðast en ekki
síst fjáraflanir. „Amnesty eru
stærstu mannréttindasamtök í
heimi og standa fyrir vitundar-
vakningu um allt sem varðar
mannréttindi. Samtökin veita
fé í rannsóknir, safna undir-
skriftum og beita þrýstingi.
Umfram allt er aldrei gefist
upp, það er enn verið að safna
undirskriftum og þrýsta á mál-
efni mörgum árum eftir að þau
komust kannski í fréttirnar,“
segir Elín.
Undirskriftum safna samtökin ekki
síst gegnum netið og með svoköll-
uðu SMS-átaki. Bæði eru aðgerð-
arátök þar sem áhugasamir skrá
sig í gagnagrunn og gefa leyfi fyr-
ir því að haft sé samband við þá við
söfnun undirskrifta. Þeir sem eru
hluti af SMS-átakinu geta svarað
með smáskilaboðum. „Við erum
til dæmis að safna núna, gegnum
SMS-in, vegna bloggara í Sádí-Ar-
abíu sem var dæmdur í tíu ára fang-
elsi og til þúsund svipuhögga fyrir
skoðanir sínar,“ segir Elín.
Í Ungmennaráð
UN Women
Elín var ein þeirra sem kom að
stofnun Ungmennaráðs UN Wo-
men árið 2012, sat í fyrstu stjórn-
inni og hefur verið varaformað-
ur ráðsins síðan í haust. „Starf-
semi UN Women er í raun tvíþætt.
Í fyrsta lagi að uppræta ofbeldi
gegn konum alls staðar í heimin-
um. Í öðru lagi fjárhagsleg og póli-
tísk valdefling kvenna í vanþróuð-
um ríkjum. Það er gert með því að
styrkja grasrótarhópa í vanþróuð-
um löndum,“ segir Elín og bætir
því við að Styrktarsjóður UN Wo-
men til afnáms ofbeldis gegn kon-
um sé sá sjóður Sameinuðu Þjóð-
anna sem fær flestar styrkumsóknir
en er hvað mest fjárþurfi.
Ungmennaráðið UN Women
stendur fyrir fjölda viðburða á ári
til að vekja athygli á málefnun-
um og afla fjár. Liður í því starfi
eru skólakynningar ráðsins í fram-
haldsskólum og efri bekkjum
grunnskólanna. „Skólakynningun-
um er alls staðar mjög vel tekið og
fleiri og fleiri skólar sem taka þátt
með hverju árinu sem líður. Þegar
við fórum af stað með þetta höfð-
um við sjálf samband við skólana en
núna eru þeir farnir að leita til okk-
ar af fyrra bragði. Við vorum með
um það bil 30 skólakynningar í vet-
ur og þurftum að neita nokkrum
því við önnuðum ekki eftirspurn,
því miður,“ segir hún.
Starf að félagsmálum
bæði gefandi og
skemmtilegt
Aðspurð segist Elín ekki vita hve-
nær hún fór að velta málefnum
samfélagsins fyrir sér, það hafi ver-
ið mjög snemma. „Ég held ég hafi
alltaf verið samfélagslega þenkj-
andi. Þegar ég var lítil vildi ég alltaf
hlusta á fullorðna fólkið tala saman
frekar en að fara út að leika mér,“
segir hún og hlær við.
Þegar komið var fram á mennta-
skólaárin hóf Elín virka þátttöku í
samfélagsmálunum. Hún hóf nám
við Verzlunarskóla Íslands þar sem
hún sat í hagsmunaráði í tvö ár, var
formaður ráðsins seinna árið, sat í
kjörstjórn, var bekkjarfulltrúi síns
bekkjar og áfram mætti telja. Árið
2012 stofnaði hún og sat í ung-
mennaráð Dalabyggðar ásamt ungu
fólki í heimasveitarfélaginu. Síð-
asta haust hóf hún svo nám í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands og
þá tók stúdentapólitíkin við. „Ég
kom inn í fjármála- og atvinnulífs-
nefnd Stúdentaráðs síðasta haust
sem óháður aðili. Var svo ekki leng-
ur óháð þegar fór að líða að kosn-
ingum í vor, þá var ég aldeilis Vök-
umegin í lífinu,“ segir hún og hlær.
Úr varð að hún bauð sig fram fyrir
Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta, í síðustu stúdentaráðskosn-
ingum og er núna varamaður á
félagsvísindasviði. Einnig situr hún
í stjórn félagsins.
Aðspurð segist Elín ekki sjá fram
á að hætta nokkurn tímann afskipt-
um sínum af málefnum samfélags-
ins. „Ég er „réttindapervert,“ ef
hægt er að nota það orð. Þetta er
eiginlega áhugamál og ég er í þessu
öllu af því ég fæ mikið út úr því.
Bæði líkar mér félagsskapurinn og
að geta haft áhrif. Allt þetta starf er
bæði gefandi og skemmtilegt,“ seg-
ir hún en nefnir að hún beri sérstak-
ar taugar til starfsemi Ungmenn-
aráðs UN Women. „Það er helsta
stoltið og á alltaf stað í hjarta mínu.
Er náttúrlega búin að vera þar frá
upphafi og einn af stofnmeðlimum.
Án þess að gera lítið úr hinum er
það svona það sem mér þykir vænst
um,“ segir hún og brosir.
Varðandi framtíðina nefnir Elín
að hún hafi verið kjörin hagsmuna-
fulltrúi Politica, félags stjórnmála-
fræðinema, fyrir komandi skólaár.
„En ég þarf líklega að segja mig úr
því embætti vegna þess að ég er að
flytja til Frakklands í haust og verð
í skiptinámi við Sciences Po í París
næsta vetur. Ég er virkilega spennt
fyrir því,“ segir Elín að lokum, glöð
í bragði.
kgk
Elín Margrét Böðvarsdóttir:
„Ég er „réttindapervert,“ ef hægt er að nota það orð“
Elín Margrét Böðvarsdóttir, sjálftitlaður „réttindapervert“ frá Hrútsstöðum í Dölum.
UPPLÝSINGATÆKNIFÉLAGIÐ
Soffía Sóley Magnúsdóttir
löggiltur fasteigna- og skipasali / löggiltur leigumiðlari
Ragnheiður Rún Gísladóttir
löggiltur fasteigna og skipasali