Skessuhorn - 17.06.2015, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015 39
„Ég er frá Akranesi og var búsett
þar þangað til eftir að ég útskrifaðist
úr Fjölbrautaskóla Vesturlands. Ég
ólst upp á Esjubrautinni með mó-
ann sem bakgarð. Það var paradís
fyrir ímyndunaraflið, fullt af hól-
um og skurðum. Eitt það skemmti-
legasta sem við gerðum, ég og
Sibba vinkona mín, var að þykjast
vera indjánar. Þá földum við okk-
ur í „indjánavirkjum“ og réðumst
á njólana sem voru óvinir okkar,“
segir Bjarney Hinriksdóttir, oftast
kölluð Baddý, grafískur hönnuð-
ur og nýútskrifaður jógakennari frá
Akranesi. Hún hefur eytt stórum
hluta ævi sinnar úti í heimi, komið
víða við og lengi haft mikinn áhuga
á ferðalögum. Þann áhuga telur
hún að megi rekja aftur í barnæsku
og máli sínu til stuðnings vísar hún
í ljóð sem hún samdi þegar hún var
barn. „Ég skrifaði ljóð þegar ég var
sex ára sem hljómar svona:
Akranes er lítill bær
ákaflega fagur
Þarna eru nokkrar ær
og hrútur sem er magur
Ef yfir hann er horft af sæ
sérðu fjöllin háu
Hopp og hí nú burt ég ræ
nú sé ég blómin bláu.
Þegar ég horfi til baka þá seg-
ir þetta mér að ævintýraþráin hafi
sennilega kviknað mjög snemma.
Ég fór svo sem skiptinemi til Brasi-
líu þegar ég var 18 ára og eft-
ir það varð ekki aftur snúið,“ seg-
ir Baddý.
Þessa dagana er hún stödd í bæn-
um Ubud á Balí í Indónesíu þar
sem hún var að klára jógakennara-
nám. „Ég fann hjá mér mikla þörf
fyrir að byrja að kenna jóga og valdi
þennan stað vegna námsins, sem
fór algerlega fram úr mínum björt-
ustu vonum. Þetta er mjög andlega
nærandi staður og alveg fullkom-
inn fyrir jóganám,“ segir hún. Þó
Baddý hafi komið víða við og heim-
sótt fjölmarga staði á ferðum sínum
eru sumir staðir henni eðlilega ofar
í huga en aðrir. „Ég fór til Grikk-
lands í fyrsta skipti í fyrra með kær-
astanum mínum og fann fyrir mik-
illi tengingu við þann stað. Fólkið,
fegurðin, ástríðan fyrir matargerð,
veðurfarið og sagan. Það eru ein-
hverjir töfrar í gangi þarna. Ég gæti
vel hugsað mér að búa þar hluta úr
ári,“ segir Baddý.
Elskar að hanna
Þrátt fyrir að hafa dvalið mikið er-
lendis hefur Baddý núna fasta bú-
setu í Reykjavík. Þar stundaði hún
nám við Listaháskóla Íslands á sín-
um tíma áður en hún hélt til Ítalíu
og nam grafíska hönnun við Istituto
Superiore di Comunicazione í Míl-
anó. Síðan lærði hún vörumerkja-
hönnun og ímyndarsköpun fyrir-
tækja við Elisava hönnunarskólann í
Barselóna á Spáni. „Það lá kannski
beinast við að ég lærði grafíska
hönnun þar sem ég eyddi mest öll-
um tíma mínum sem barn og ung-
lingur í að teikna og mála. Þegar ég
var í menntaskóla heillaðist ég svo af
auglýsingagerð og sálfræðinni á bak-
við hana sem varð til þess að ég valdi
mér þetta nám. Ég elska að hanna,
aðallega vegna sköpunarkraftsins
sem fylgir því,“ segir hún. „Þegar
ég vann á auglýsingastofunni Hvíta
húsinu elskaði ég að vinna verkefni
sem höfðu eitthvað með félagslega
vitund að gera. Sjónvarpsauglýsing-
in „Hægðu á þér,” sem var gerð fyr-
ir Umferðarstofu var þar í sérstöku
uppáhaldi,“ bætir hún við en nefnir
einnig að henni hafi þótt bæði afar
skemmtilegt og krefjandi að hanna
útlitið fyrir RIFF kvikmyndahátíð-
ina í fyrra. Þar teiknaði hún lund-
ann, sem er merki hátíðarinnar, í
hryllingsmyndastíl 7. áratugarins.
„Það er frábært að vinna verkefni
þar sem maður fær algert frelsi,“
segir Baddý.
„Við erum öll
gerð úr sama efni“
Vegna þess hve Baddý er víðförul
stenst blaðamaður ekki mátið að
biðja hana að bera saman stöðu
kvenna á Íslandi miðað við það sem
hún hefur kynnst á ferðum sínum
um heiminn. „Ég myndi segja að
hún væri mjög góð miðað við á flest-
um stöðum. En þar sem ég sé oftast
bara yfirborðið vil ég ekki lýsa neinu
yfir. Ég veit bara að íslenskar konur
eru miklar ofurkonur og ná þangað
sem þær vilja,“ segir Baddý og bætir
því við að auðvitað þyki henni launa-
munur fráleitur en ekki aðeins milli
karla og kvenna. Einnig þyki henni
fáránlegt hvernig störf eru metin og
hvernig þau eigi að vera launuð, það
sé eitthvað sem hún skilur ekki.
Annars vill hún setja jafnréttisbar-
áttuna í víðara samhengi. „Þegar við
gerum okkur grein fyrir því að við
erum öll gerð úr nákvæmlega sama
efni, að við erum í raun eitt með
náttúrunni og erum ekki kyn okkar,
menning, hörundslitur, trúarbrögð
eða kynhneigð, þá verður heimur-
inn betri,“ segir Baddý. „Þangað til
verður alltaf einhvers konar aðskiln-
aður. Það verða sterkir einstakling-
ar, menn og konur með góð gildi,
sem munu standa saman og breyta
heiminum. Það verða líklega ekki
pólitíkusar, að minnsta kosti ekki
eins og staðan er í dag,“ bætir hún
við að lokum.
kgk
Ævintýraþráin kviknaði sennilega mjög snemma
- spjallað við Bjarneyju Hinriksdóttur, grafískan hönnuð og jógakennara frá Akranesi
Bjarney Hinriksdóttir, grafískur hönnuður og jógakennari, bregður sér í jógastöðuna „Astavakrasana“ úti á Balí fyrir
skömmu.
Nadine E. Walter er sölu- og mark-
aðsstjóri Sæferða í Stykkishólmi.
Hún kemur frá Abenberg, sem er
um fimm þúsund manna þorp ná-
lægt Nürnberg í Bæjaralandi, en
fluttist fyrst til Íslands árið 1998.
„Ég kom upphaflega til Íslands út
af íslenska hestinum sem ég kynnt-
ist í Þýskalandi í gengum FEIF, sem
er alþjóðlegt samfélag um íslenska
hestinn. Ég var ákveðin í að vinna
við hesta.“ Þá var Nadine 15 ára
gömul. „Eftir menntaskólann vann
ég við hesta hér í Stykkishólmi tvo
vetur, 1998 og 1999,“ sagði Nad-
ine þegar blaðamaður Skessuhorns
sló á þráðinn til hennar á dögunum.
Að þessum tveimur vetrum loknum
fór hún aftur til Þýskalands og lauk
námi hjá Nürnberg Messe GmbH,
sem sérhæfir sig í að setja upp vöru-
sýningar. Árið 2001 flutti hún til Ís-
lands á nýjan leik og hóf störf hjá Sæ-
ferðum. „Þá byrjaði ég í sjoppunni
í Særúnu og var svo á Baldri sem
þerna í einn vetur, en alltaf á skrif-
stofunni á sumrin. Síðan var ég tvo
vetur sem háseti á Baldri. Ég hafði
aldrei farið út á sjó og var dálítið sjó-
veik fyrst um sinn þegar ég starfaði
sem þerna. Tók sjóveikistöflur heil-
an vetur. Karlarnir sögðu alltaf við
mig að sjóveikin myndi lagast eftir
þrjá daga en ég vildi ekki bíða eft-
ir því,“ segir Nadine og hlær. „En
þegar ég var orðin háseti þá þurfti ég
ekki sjóveikistöflur lengur, það mun-
aði öllu að geta verið uppi líka,“ bæt-
ir hún við.
Síðan 2004 hefur hún starfað í
landi á skrifstofu Sæferða og tók svo
við stöðu sölu- og markaðsstjóra í
mars 2010. Sem markaðsstjóri sér
hún meðal annars um auglýsinga-
mál fyrirtækisins, sýningaþátttöku,
heimasíðu fyrirtækisins, samninga-
gerð við ferðaskrifstofur, samfélags-
miðlana og fleira í þeim dúr. Einn-
ig sér hún um verslunina, Hafnar-
kaffið og matseðlana um borð í bát-
unum. „En það er mjög mikill kost-
ur að hafa verið um borð í öllum
bátunum. Ég fékk innsýn í allt og
það hjálpar mér mikið sem markaðs-
stjóra í dag, ég veit um hvað hlutirn-
ir snúast,“ segir hún og kveðst mjög
ánægð í starfi sínu hjá Sæferðum.
Hestamennskan
er lífsstíll
Nadine býr í Stykkishólmi ásamt
tveimur börnum sínum, þeim Sím-
oni Andra og Signýju Ósk Sævars-
börnum og lætur mjög vel af bæn-
um og bæjarbúum. „Ég vil varla vera
annars staðar. Okkur líður bara mjög
vel hérna og við erum ekkert á leið-
inni til Þýskalands eða neitt svoleið-
is. Mér finnst þetta mjög spennandi
og fjölbreytt starf og gaman að vinna
með ferðaþjónustunni. Vonandi get
ég verið áfram hjá Sæferðum og
haldið áfram að selja sem mest fyrir
fyrirtækið,“ segir hún og hlær við.
Aðspurð um áhugamál sín seg-
ist hún taka mikinn þátt í félags-
lífi bæjarins. „Ég er í Lionsklúbbn-
um Hörpu og er formaður hesta-
eigendafélagsins HEFST,“ seg-
ir hún en bætir því þó við að hest-
arnir séu áhugamál númer eitt, tvö
og þrjú. „Það vantar ekki, ég á átta
og hálft hross eins og er og ríð út á
nánast hverjum einasta degi,“ seg-
ir hún og telur víst að hún sé búin
að smita börnin af hestabakteríunni.
„Já, ég er búin að smita börnin, þau
eru með mér í þessu. Að sinna hross-
unum kostar auðvitað mikinn tíma á
hverjum degi, eftir vinnu og svoleið-
is. Þetta er bara lífsstíll,“ segir Nad-
ine að lokum. kgk
Markaðsstjóri Sæferða kom til Íslands vegna hrossanna
Nadine Walter, sölu- og markaðsstjóri
Sæferða í Stykkishólmi.
Á útreiðum í nágrenni við Stykkishólm. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.