Skessuhorn - 17.06.2015, Side 41
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015 41
vann myndina ásamt Hjálmtý. „Ég
var leiðsögumaður með breska ferð-
menn hér á Snæfellsnesi. Í hópnum
var gamall breskur hermaður sem
sagði mér að vinur hans hefði verið
í flugsveit á Íslandi og að þeir hefðu
misst eina vél þegar þeir voru stað-
settir hér. Í framhaldi af þessu fór ég
að grúska í þessari sögu og skrifaði
loks grein um þetta flugslys,“ sagði
Karl Smári. Greinin sem hann vitnar
til er frá 2006 í sjöunda bindi bóka-
flokksins „Fólkið, fjöllin, fjörðurinn“
sem gefinn er út af Eyrbyggjum –
Hollvinasamtökum Grundarfjarðar.
Kvikmyndin sem er tæplega
klukkutíma löng verður sýnd í sjón-
varpi RUV, væntanlega á vetri kom-
anda.
mþh
„Þetta hefur heldur betur undið upp
á sig og það er mikið gleðiefni að
þessi mynd skuli klárast á meðan enn
er á lífi fólk sem tók þátt í þessum
atburðum að einhverju leyti og vissu
hvernig þeir lögðust í þessa sveit, það
er Eyrarsveitina. Við Grundfirðing-
ar megum vera afskaplega þakklát-
ir þeim Karli Smára Hreinssyni og
Hjálmtý Heiðdal fyrir að hafa tek-
ið þessa sögu svona vel fyrir og gert
henni svona góð skil í kvikmynd.
Við megum líka vera þakklát öðrum
þeim sem lögðu hér hönd á plóg,“
sagði Ingi Hans Jónsson sagnaþul-
ur í Grundarfirði þegar heimilda-
kvikmyndin Svartihnjúkur – stríðs-
saga úr Eyrarsveit var frumsýnd á
dögunum í Bæringsstofu í Sögumið-
stöðinni í Grundarfirði. Kvikmynd-
in greinir frá sviplegu flugslysi sem
varð þegar bresk herflugvél með sex
manna áhöfn flaug á Svartahnúk fyr-
ir botni Kolgrafafjarðar í nóvem-
ber 1941. Allir fórust og lík tveggja
manna hafa aldrei fundist.
Áhrifamikill atburður
Sýning myndarinnar mæltist vel fyr-
ir hjá íbúum Grundarfjarðar sem
fjölmenntu í Bæringsstofu til að sjá
hana. Í þeim hópi voru íbúar úr Eyr-
arsveit sem upplifðu flugslysið sem
börn. Bjarni Alexandersson og Ásta
Bjarnadóttir frá Stakkhamri og Arn-
ór Kristjánsson og Auður Jónasdótt-
ir frá Eiði voru öll á einu máli um að
kvikmyndin væri vel heppnuð. „Mér
fannst hún bara alltof stutt. Það var
of mikið klippt út af efni sem hefði
mátt geta betri skil,“ sagði Arnór
Kristjánsson í spjalli við blaðamann
Skessuhorns eftir frumsýninguna.
„Já, en við verðum að gera okkur
grein fyrir því að ekki var hægt að
koma öllu fyrir í svona stuttri kvik-
mynd,“ sagði Bjarni Alexanders-
son. Ásta Bjarnadóttir bætti því við
að ýmislegt hafi gerst í tengslum
við þennan voveiflega atburð með-
al heimafólksins í Eyrarsveit sem er
frásagnar virði. „Eins og til dæmis á
bænum Kolgröfum. Þar komu allt
í einu inn í hús um 30 manns, allt
hermenn sem voru að leita að flak-
inu. Bæjarhúsin voru mjög lítil. Það
var ekkert áhlaupaverk að koma öll-
um þessum mönnum fyrir, hvað þá
heldur fatnaði þeirra og búnaði. Það
vantaði mat handa öllum þessum
mönnum. Ingvar Agnarsson bóndi
fór niður í fjöru og sótti síld úr flæð-
armálinu í Kolgrafafirði og gaf þeim.
Þá var síld í firðinum eins og gerð-
ist nú síðustu árin. Fólkið í Kolg-
rafafirði gerði allt sem það gat til lið-
veislu,“ benti Ásta á.
Mikil vinna að baki
Hjálmtýr Heiðdal er framleiðandi
og leikstjóri myndarinnar. „Ég hafði
gert eina mynd áður sem fjallaði
um atburði í stríðinu. Hún var um
steinda kirkjuglugga úr dómkirkj-
unni í Coventry í Englandi sem síð-
ar höfnuðu að hluta til í Akureyrar-
kirkju. Sú mynd kveikti áhugann á að
gera þessa. Við fórum margar ferðir
hingað vestur á Snæfellsnes í efnis-
öflun og líka nokkrar ferðir til Bret-
lands. Mikið var tekið upp af viðtals-
efni við fólk og þó að ekki hafi allt
ratað í myndina þá er það efni allt til
og verður varðveitt,“ sagði Hálmtýr.
Kvikmyndin á sér marga ára að-
draganda. Karl Smári Hreinsson
Kvikmyndin Svartihnjúkur frumsýnd í Grundarfirði
Þau Arnór Kristjánsson og Auður Jónasdóttir frá Eiði og Ásta Bjarnadóttir og
Bjarni Alexandersson á Stakkhamri voru öll ánægð með kvikmyndina.
Karl Smári Hreinsson og Hjálmtýr Heiðdal stóðu fyrir gerð myndarinnar um slysið
í Kolgrafafirði. Hér eru þeir í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og Hjálmtýr heldur á
líkani af samskonar vél og fórst. Ljósm. tfk.
Eyþór Garðarsson forseti bæjarstórnar í Grundarfirði óskaði kvikmyndagerða-
mönnum til hamingju með kvikmyndina. Grundarfjarðarbær var meðal aðila sem
styrktu gerð hennar. Ljósm. tfk.
Skaginn frá Skipaskaga
IS2009101044
Sköpulag: 8,76 (ein 9,5 og þrjár 9,0)
Kostir: 8,50 (sex 9,0)
Aðaleinkunn: 8,60
Skaginn tekur á móti hryssum í sumar að Litlu-Fellsöxl.
Verð kr. 100.000 + Vsk.
(75.000 tollurinn + 25.000 hagaganga
og ein sónarskoðun innifalin)
Gleipnir frá Skipaskaga, þriggja
vetra sonur Skagans.
Upplýsingar: Jón Árnason, sími 899-7440 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
5
Til leigu jarðirnar Mið-Garðar og Syðstu-Garðar, Borgarbyggð
Arion banki hf. auglýsir til leigu jarðirnar Mið-Garða (landnr. 136073) og Syðstu-Garða (landnr. 136082), Borgarbyggð.
Um er að ræða land, þ.m.t. ræktun, útihús og íbúðarhús. Jarðirnar leigjast saman.
Á Mið-Görðum eru helstu mannvirki íbúðarhús. Fjós byggt 1985 með 32 básum og stíum fyrir geldneyti og áföstu mjólkurhúsi. Mjaltabás með átta
tækjum og 2.500 lítra mjólkurtankur ásamt fylgibúnaði. Flatgrya, hlaða og hesthús.
Á Syðstu-Görðum eru helstu mannvirki íbúðarhús, hesthús, geymslur og atgrya sem er til helminga hlaða og hjarðós.
LIT ehf.
Ingi Tryggvason hrl.
löggiltur fasteignasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
sími: 437-1700
gsm: 860-2181
netfang: ingi@lit.is
veang: lit.is
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er land jarðanna talið vera samtals um 450 hektarar og þar af ræktun 67
hektarar en hún mun vera talsvert stærri.
Jarðirnar henta fyrst og fremst til kúabúskapar, þ.e. mjólkur- og nautakjötsframleiðslu.
Kröfur eru gerðar um menntun í búfræðum eða reynslu af búrekstri. Gerður verður tímabundinn leigusamningur en
að honum loknum kemur til greina að selja leigutaka jarðirnar ásamt öllu því sem þeim tilheyrir.
Umsóknir/tilboð um leigu sendist undirrituðum í síðasta lagi 10. júlí 2015. Í þeim komi fram upplýsingar
um menntun og reynslu umsækjanda af búrekstri ásamt hugmyndum um búrekstur á jörðunum og framtíðarsýn
hvað það varðar. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5