Skessuhorn - 17.06.2015, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015 43
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (at-
hugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstu-
degi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum
og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
62 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Álitlegur“. Vinningshafi er: Þóra
S Einarsdóttir, Hamravík 6, 310 Borgarnesi.
mm
Fyrir-
lestur
Hrakför
Nefnd
þegar
Röð
Ætt
Mór
Spyrja
Angan
Tónn
Mynni
Eðli
Upphr.
Þar til
Reyr
Tölur
Stöng
Hitar
Síðan
Fag
Kunn-
ingi
4 Smábiti
Glögg-
ur
Tekur
Villt
1
Fákur
Tóm
Kvakar
Ílát
Merki
150
Blóm
Öflug
Enni
Laðaði
Næði
Vilji
Skran
Vætu
Spilið
Mergur
1001
2 Duft
Kusk
Hellti
Klípa
Kvaka
Vægð
Kropp
Rölt
Vendi
Strax
Rasa
Ásókn
Frelsi
Ljá
Svarar
6
Drjóla
Depill
Óregla
Hrekkir
Áma
8 Dæld
Kl. 15
Elfum
Reipi
Vafstur
Til
Jurta-
seyði
Tónn
Sefar
Korn
Fjöldi
Stafur
Etur
Óregla
Áhald
Hlaupa
Tæp
Tvíhlj.
51
Kám
Hópur
Skinn
Planta
Vangi
Hress
Ver
Refsing
9
Fruma
5 Blundur
Sýl
Harð-
fisk
Titill
Hrópar
Löt
Gruna
3
Slæmir
Dreifa
Ókunn
Reykur
7
1 2 3 4 5 6 7 8 9
Fjölmennt var á Langasandi í síð-
ustu viku þegar Bláfáninn var dreg-
inn að húni þriðja árið. Bláfáninn
er alþjóðlegt umhverfismerki og
tákn um markvissa og skilgreinda
umhverfisstjórnun. Það var Katrín
Magnúsdóttir frá Landvernd sem
afhenti Regínu Ásvaldsdóttur bæj-
arstjóra fánann.
Til að fá Bláfánann þarf bað-
ströndin á Langasandi að uppfylla
32 skilyrði sem lúta að vatnsgæð-
um, umhverfisstjórnun, upplýs-
ingagjöf og öryggi. Það eru ein-
ungis tvær aðrar baðstrendur sem
hafa fengið fánann hér á landi; Bláa
Lónið og Nauthólsvík en sérstaða
Langasands er að um náttúrulega
strönd er að ræða. Akraneskaup-
staður tekur sýni úr sjónum reglu-
lega og hafa þau komið mjög vel
út. Þá er einnig fjölmörg fræðslu-
verkefni unnin með börnum á öll-
um aldri á Akranesi í tengslum við
umhverfið og Langasand.
mm/ akranes.is
Bláfáninn kominn á
loft við Langasand
Börn frá þremur leikskólum á Akranesi voru viðstödd fánahyllinguna og sungu
m.a. lagið „Ein á báti“ eftir Valgerði Jónsdóttur.
Þeir duttu heldur betur í lukkupott-
inn ferðamennirnir sem voru að
spóka sig við Kaffi Emil í Grund-
arfirði nýverið. Þá kom akandi
hákarlakóngurinn Hildibrandur
Bjarnason í Bjarnarhöfn. Í kerru
aftan í jeppa sínum var Hildibrand-
ur með vænan hákarl. Hákarlinn
var hann nýbúinn að sækja af tog-
veiðiskipinu Hring SH sem var að
landa um morguninn. Voru ferða-
mennirnir mjög áhugasamir um
skepnuna og skoðuðu hana í bak
og fyrir. Ekki spillti svo fyrir að fá
fróðleik frá Hildibrandi sjálfum í
kaupbæti. tfk
Ferðamenn fengu
óvænta hákarlasýningu
Föstudagskvöldið 19. júní býður
Frystiklefinn í Rifi upp á einstakann
listviðburð þegar alþjóðlegur hópur
sirkuslistamanna mætir í klefann og
setur upp verkið Melodic Objects.
Verkið er samspil listamanna og
tónlistarmanns sem flytjur lifandi
tónlist í verkinu. Hópurinn hefur
ferðast um víða veröld til sýninga
og í honum eru þrír af fremstu djög-
glerum (ens. Jugglers) í heiminum
í dag. Hópurinn hafði frétt af upp-
gangi Frystiklefans og hafði því sjálf-
ur frumkvæðið að því að heimsækja
Vesturland. „Þetta er mikill hvalreki
fyrir menningarlífið á svæðinu og
mikið gleðiefni að hópur af þessum
mælikvarða sækist eftir því að koma
hingað vestur,“ segir Kári Viðars-
son frystiklefastjóri. Sýningin hefst
klukkan 20:00 og eins og tíðkast í
Frystiklefanum eru það áhorfendur
sjálfir sem ráða því hvað þeir borga
fyrir aðganginn. mm
Sirkus Melodic Objects í
Frystiklefanum
Laugardaginn 19. júní verður
margt um að vera á Hvanneyri. Þá
munu tvær listsýningar verða opn-
aðar á staðnum. Klukkan 14:00
verður opnuð sýning í kaffihús-
inu í Skemmunni. Þar sýnir Elísa-
bet Haraldsdóttir m.a. nýja kaffi-
bolla. Þar verða kaffibarþjón-
ar og sérfræðingar í mjólkurlist
(e. Latte Art) frá Reykjavík Roas-
ters og gefst gestum tækifæri til
að fá sér kaffisopa úr sýningarboll-
unum. Klukkan 15:30 opnar síð-
an Ólöf Erla Bjarnadóttir sýningu
á mjólkurkönnum í Landbúnaðar-
safninu í Halldórsfjósi. Könnurn-
ar brenndi hún í gas/viðarofni að
Nýp á Skarðsströnd. Bjarni Guð-
mundsson forstöðumaður safns-
ins mun opna sýninguna og segja
nokkur orð um mjólkurskólana á
Hvanneyri og Hvítárbakka. Mjólk
og kleinur verða í boði kvenfélags-
ins 19. júní. Kvenfélagið á einmitt
77 ára afmæli þennan dag og bjóða
kvenfélagskonur upp á skemmti-
legan fróðleik um konur, fyrirlestur
sem Danfríður Skarphéðinsdótt-
ir heldur á Skemmuloftinu. Á und-
an leikur Soffía Björg nokkur lög.
Heimafólk hvetur gesti til að koma
í heimsókn á Hvanneyri.
Mjólkurkönnur Ólafar Erlu
Elísabetu Haraldsdóttur, leirlist-
arkonu og menningarfrömuð á
Hvanneyri, þekkja margir. En hver
er Ólöf Erla Bjarnadóttir? Hún
starfar nú sem deildarstjóri í Mynd-
listarskólanum í Reykjavík en hef-
ur stundað leirmunagerð frá árinu
1982. Árið 2012 hlaut hún styrk
frá Menningarráði Vesturlands til
að vinna verkefnið „Mjólkurkönn-
ur fyrir Vesturland – Baula.“ Ólöf
Erla bjó lengi á Hvanneyri og lang-
aði hana að búa til eitthvað sem
tengdist bæði bændum og Vestur-
landi og kviknaði þá hugmyndin af
mjólkurkönnunum.
„Hugmyndin var að búa til mjólk-
urkönnur úr leir sem mætti nota við
borðhald, hvunndags og spari, allt
frá rjómalögg út í kaffið til þess að
hella mjólk út á grautinn,“ sagði
Ólöf Erla í samtali við Skessuhorn.
Ári síðar var hún búin að þróa hug-
mynd sína og þá var lagt af stað að
Nýp á Skarðsströnd, þar sem könn-
urnar eru brenndar. Könnurnar eru
glerjaðar með glerungum sem inni-
halda íslensk jarðefni og brenndar í
sérstökum hlöðnum ofni sem á, að
sögn Ólafar Erlu, sér engan líkan
hér á landi. Ofninn, sem gengur fyr-
ir gasi og viði, gefur allt öðruvísi lit
á leirinn heldur en hefðbundinn raf-
magnsofn.
Nú þegar tvö ár eru liðin frá því
Ólöf Erla hófst handa við að búa
til könnurnar mun hún halda sýn-
ingu á þeim í Landbúnaðarsafninu
á Hvanneyri. Sýningin mun verða
opin til 12. júlí.
„Mér fannst við hæfi að sýna þær á
þessum afmælisdegi íslenskra kvenna
en auk þess á kvenfélagið í Andakíl
77 ára afmæli þennan dag,“ bætir
Ólöf Erla við. Þetta er í fyrsta skipti
sem Ólöf Erla sýnir allar könnurnar
sínar saman en hún mun einnig sýna
könnur sem brenndar hafa verið í
rafmagnsofni svo hægt verði að bera
þær saman við könnurnar úr ofnin-
um frá Nýp. Hægt verður að kaupa
könnurnar hjá Ólöfu Erlu á sýning-
unni og vonast hún til þess að könn-
urnar fari í sölu á Vesturlandi í fram-
haldinu.
arg
Leirlist og kvenfélagshátíð á Hvanneyri
Könnur í brennslu í ofninum góða að Nýp.