Heimsmynd - 01.03.1986, Page 97

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 97
mínum vídeóspólu, gamla upptöku af Karen þegar hún kom í heimsókn til Bandaríkjanna einhvern tíma á sjötta áratugnum, þá gömul kona. Þetta er sjónvarpsupptaka og hún er að segja sög- ur frá Afríku. Hún situr þarna í ein- hverju bókasafni umkringd stífum menningarvitum sem klappa fyrir sögun- um hennar og hún virkar rosalega gömul, hún var að vísu ekki háöldruð þegar hún dó en hún var svo illa farin af sjúkdóm- um — og það var svolítið erfitt fyrir mig að gera mér í hugarlund hvernig hún hafði litið út yngri. Andlit eldra fólks er oft eins og ýkt útgáfa af andlitsdráttum þess þegar það var yngra. Svo talaði ég við fólk, sem hafði hitt hana í lifanda lífi. Margir höfðu orð á því hvað hún hafi haft einkennilegan talanda, svolítið til- gerðarlegan, svona eins og mér er sagt að yfirstéttin í Kaupmannahöfn hafi talað í gamla daga.“ Og allt í einu fer Meryl að tala gormælt og hlær; „ég reyndi alla vega að herma eftir henni, þó ég drægi smám saman úr því en hún var frábær, ein af þessum gömlu dömum, hún vildi vera barónessa og hún vildi vera öðruvísi og hún talaði þannig, dróóó seieiminn.., og þegar ég fór að gera það varð Sidney (innsk. Sidney Pollack leikstjórinn) brjálaður og sagði: „Hættu þessu Meryl!" -Heldurðu að þú gætir lært íslensku? „Þú sást Sophie’s Choisce - fyrir þá mynd lærði ég að tala pólsku. Mér hefur einnig reynst auðveit að beita breskum hreim eða suðurríkjahreim. Mér hefur reynst auðvelt að læra tungumál." -Eru kannski fá hlutverk, sem draga úr þér kjarkinn? „Jú, það er erfiðara að taka að sér hlutverk sannsögulegrar persónu, eins og Karen Blixen, sem svo margir þekktu eða Karen Silkwood. Kannski er maður að gera viðkomandi, sem í báðum þess- um tilvikum er látinn, rangt til. í báðum hlutverkum fannst mér fyrst að ég gæti ekki gert þetta - svo kemur sú stund að ég segi bara fuck itl Þó svo ég sé allan tímann meðvituð um að þetta er ábyrgð. Það er mun auðveldara að leika tilbúna persónu - maður þarf ekki að undirbúa slíkt með lestri og tilheyrandi. En að ég hafi verið hrædd við þessi hlutverk, það held ég ekki...“ -Sum hlutverkin hafa því verið mun auðveldari en önnur? „Öll reynast þau einhvern tíma mjög erfið - síðan kemur sú stund að allt verður auðvelt.“ Meryl Streep sagði í samtalinu við HEIMSMYND að hún hefði nýlokið að Elskendurnir Karen (Meryl Streep) og Denys (Robert Redford). „Ég hitti hann fyrst á hótelherbergi í New York um hánótt. Hann kom allt of seint. En hann er ofsalega sjarmerandi. Hann hefur einn kost, sem enginn annar leikari sem ég þekki hefur . . .“ leika þriðju sannsögulegu persónuna, í myndinni Heartburn, byggð á bók Noru Ephron, sem er tískurithöfundur í New York um þessar mundir og meðal annars þekkt fyrir að hafa verið gift Carli Bern- stein, rannsóknarblaðamanninum fræga úr Watergate málinu. Myndin verður frumsýnd í sumar. Og mótleikari Streep í þeirri mynd er ekki af Iakara taginu að vanda, sjálfur Jack Nicholson. „Það hlutverk tók ég að mér því mynd- in er svo ofsalega fyndin, léttgeggjuð en dásamleg. Og eins og ég sagði þér áðan þá er ég orðin hundleið á taugaveikluð- um konum...“ Meryl Streep er næstum óþekkjanleg í Out of Africa með brúnt Iitað hár í stað ljósa síða hársins. Og hún segir að fólk, karlmenn, komi öðruvísi fram við hana með dökkt hár. Það er eins og fólki sé síður ögrað af dökkhærðum konum...“ -Nei, er það nú, segium við á HEIMS- MYND. HEIMSMYND 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.