Heimsmynd - 01.04.1990, Síða 18

Heimsmynd - 01.04.1990, Síða 18
boð og sölu hlutabréfa sinna með þeim skilyrðum að fylgja reglum Seðlabank- ans um gerð útboðsgagna og eftir að þau væru lögð fram væru þau opinber gögn og ættu að vera öllum aðgengileg. Starfs- menn verðbréfafyrirtækja sögðu að það fyrsta sem menn yrðu að gera sér grein fyrir við stofnun almenningshlutafélaga væri að með því væri verið að opna fyrir- tækin upp á gátt, reikningar og aðrar upplýsingar yrðu að liggja frammi og menn yrðu að taka því að um þau væri fjallað opinberlega. Þetta sagði blaða- maður Magnúsi Hreggviðssyni og stóð þá ekki lengur á því að hann fengi út- boðslýsinguna og raunar í nýrri útgáfu eins og hún liggur nú fyrir leiðrétt eftir ársuppgjöri ásamt árituðum rekstrar- reikningum áranna 1987, 1988 og 1989, þó með sama fyrirvara og áður fyrir rekstrarreikning 1987. Það hlýtur svo aftur að teljast álitamál hvort efnahags- og ársreikningur gefi svo glögga mynd af hag fyrirtækisins að menn geti með athugun á þeim myndað sér skoðun um hversu vænlegur fjárfest- ingarkostur kaup á hlutabréfum í fyrir- tækinu séu. Starfsmaður verðbréfafyrir- tækis sagðist fyrir sitt leyti telja þá full- nægjandi sem slíkan grundvöll. Hann hefði ekki þurft að líta á þá nema laus- lega til að ákveða að kaupa ekki hluta- bréf og hefði hann þó enga sérþekkingu á þeirri starfsemi sem fyrirtækið ræki. Það vekur hins vegar strax athygli þeirra, sem til reksturs íslenskra tímarita þekkja, að bæði í skýringum með stofn- efnahagsreikningi og margendurtekið í kynningarbæklingi, er staðhæft að útgáfa Frjáls framtaks nái yfir 70 prósent af ís- lenska tímaritamarkaðnum. Engin til- raun er gerð til að skilgreina við hvað er átt. Magnús Hreggviðsson hefur verið ófáanlegur til að taka þátt í upplagseftir- liti á vegum Verslunarráðs, sagði Her- bert Guðmundsson sem þar hefur haft með upplagseftirlit og lesendakannanir að gera. Hann hefur reiknað út mark- aðsútbreiðslu sinna tímarita eftir les- endakönnunum og notað til þess eigin formúlu sem tæplega mundi standast al- mennar kröfur um gerð slíkra útreikn- inga. Sjálfur segist Magnús fara eftir til- finningu sinni fyrir þessu með því að skoða tuttugu og fimm tímarit, það er að segja tíu til viðbótar sínum fimmtán. Þessi staðhæfing verður því að teljast af- ar hæpin að ekki sé meira sagt. Meðal annars ber að hafa í huga að Frjálst framtak hefur séð um útgáfu á tveimur tímaritum samkvæmt skammtímasamn- ingum, annars vegar Sjónvarpsvísi fyrir Stöð 2, hins vegar Við sem fljúgum fyrir Flugleiðir. Hvort tveggja er gefið upp í stórum upplögum til ókeypis dreifingar meðal viðskiptamanna þessara fyrir- tækja. Það er því villandi að telja upplag þeirra með í markaðshlutdeild, og sér- staklega þegar þess er gætt að í báðum tilfellum hefur hvað eftir annað komið til tals að fyrirtækin tækju þessa útgáfu í sínar hendur sjálf. Um önnur atriði þess- arar fullyrðingar verður ekki staðhæft. en það segir sína sögu að ekki er reynt að sanna hana með þátttöku í upplags- eftirliti. Ymsir aðrir liðir í reikningunum hljóta að orka tvímælis, þótt bókhaldslega sé sjálfsagt ekkert við þá að athuga. Af veltufjármunum undir eignalið má nefna eftirfarandi: Þannig er lager gamalla tímarita metinn á 3 milljónir og skal mönnum eftirlátið að gera sér í hugar- lund hvernig ná mætti þeirri upphæð við sölu þeirra. Filmulager er í áætluðum stofnefnahagsreikningi metinn á 19 millj- ónir en færður niður í 9 milljónir í nýju útgáfunni. Kunnugur maður í þessum rekstri, sagðist efast um að slíkur lager yrði metinn til nokkurs verðs þar sem bæði mynda- og auglýsingafilmur úreld- ast fljótt. Bókabirgðir á 10,5 milljónir eru sagðar metnar til 16,8 prósenta smá- söluverðs. Það hefur einmitt vakið at- hygli við yfirtökur alþjóðlegra stórfyrir- tækja á stærstu forlögum austan hafs og vestan að eitt þeirra fyrsta verk er að taka gamla bókalagera og stinga þeim í pappírstætara. Þeirra sjónarmið er að bækur séu orðnar neysluvara sem aðeins standi við í sölu skamma stund. Eftir það hlaði þær aðeins á sig kostnaði við geymslu, umsjón og umstang. Sjálfsagt heimila bókhaldsreglur að færa birgðir af bókum og tímaritum til verðs. Markað- urinn segir hins vegar annað. Meðal fastafjármuna er tölvubúnaður verðlagður á 9 milljónir og hugbúnaður á 7 milljónir. Tölvubúnaðurinn er metinn til kaupverðs á 11 milljónir og síðan færð- ur niður um tvær. Kunnugur maður á þeim markaði sagði að það væri kalt mat manna að framfarir á þessu sviði væru svo örar að allgott væri að fá 10 til 20 prósent af núverandi kaupverði fyrir þó tiltölulega nýlegan vélbúnað. Enn örari væru framfarirnar á sviði hugbúnaðar. Meðal eigna, sem væntanlegir hluthaf- ar kaupa sér hlutdeild í, er Mitsubishi Pajero jeppabifreið, metin, á 2.270 þús- und, „sem notuð er af stjórnarfor- manni“, eins og segir í skýringu með stofnefnahagsreikningi. eðal eigna er líka talinn samningur um húsbygg- ingu, sem Frjálst framtak byggir yfir starfsemi Fróða í Smárahvammsl- andi í Kópavogi, samtals 1.465 fermetrar, og er tal- inn jafnvirði 47 milljóna króna. Samkvæmt auglýs- ingabæklingi á að afhenda húsnæði þetta haustið 1990 tilbúið undir tréverk og starfsemi fyrirtækisins að flytja í húsið í árslok. Skuldabréf vegna byggingarinnar eru með gjalddög- um 1992. Hins vegar mun ekki enn vera byrjað á byggingunni. Þetta mundi verða eitt fyrsta húsið í Smárahvammslandinu og menn geta ímyndað sér hversu næðis- samt muni verða að vinna þar að ritstörf- um næstu árin meðan hverfið er í upp- byggingu. Með þessu er auðvitað búið að binda hendur væntanlegra kaupenda hlutabréfa Fróða fyrirfram og beina fjár- festingum og þar með hlutafé sem inn kemur inn á ákveðna braut. Sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki séu í þessu ákveðnar hagsmunamótsetningar. Nú er yfirfljótandi framboð af atvinnuhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu, hvort sem er til leigu eða sölu. Er það þá vænlegur kost- ur fyrir útgáfufyrirtæki að kaupa nýbygg- ingu á þessum stað og stendur það undir nærri 50 milljón króna fjárfestingu í því skyni? Hins vegar er ótvíræður kostur fyrir Frjálst framtak að fá aðila til að ríða á vaðið í húsnæðiskaupum í Smára- hvammslandi. Er þessi samtvinnun fyrir- tækjanna Fróða og Frjáls framtaks svo heppileg sem Magnús Hreggviðsson vill vera láta? Meðal skulda eru einnig í áætluðum stofnefnahagsreikningi talin handhafa- skuldabréf vegna prentkostnaðar með gjalddögum 1991 til 1993. Sú skýring er hins vegar felld niður í stofnefnahags- reikningnum, eins og hann nú liggur fyr- ir, enda ekki beinlínis til þess fallin að vekja trú á þeirri miklu arðsemi sem for- ráðamenn fyrirtækisins annars guma af í auglýsingum sínum. Magnús taldi það þó varla tiltökumál þótt fyrirtæki þyrfti einu sinni á nokkurra ára ferli að skuldbreyta einhverjum rekstrargjöldum til lengri tíma. Þá er komið að lið sem heitir stofn- kostnaður tímarita. I skýringum með stofnefnahagsreikningi er þetta útskýrt þannig: „Hér er um að ræða viðskipta- vild og ýmsan stofnkostnað við að koma tímaritum á laggirnar og í arðbært ástand. Mjög er erfitt að feta sig á þeirri braut að meta verðmæti tímaritaútgáf- unnar. Hér er farinn sá vegur að taka samanlagt kaupverð viðskiptavildar/ stofnkostnaðar í þeim fimm fyrirtækjum í tímaritaútgáfu, sem steypt hefur verið í tímaritaútgáfu Frjáls framtaks á undan- förnum árum, og reikna hana upp til verðlags í september 1989. Nemur hún nálega 120 milljónum. Frá henni er dreg- in viðskiptavild/stofnkostnaður vegna Is- lenskra fyrirtækja, 19 milljónir, eign í 18 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.