Heimsmynd - 01.04.1990, Blaðsíða 79
Jakkinn á þessai
Valentino tekur e
eínkennisbúningi
Margar konur eru þeirrar
skoðunar að konur hafi þurft
að leggja áherslu á hefð-
bundnar dragtir sem ein-
kennisbúninga undanfarinn
áratug meðan þær voru að
koma sér fyrir í hefðbundn-
um karlastörfum. Nú séu
margar þeirra orðnar það
sjálfsöruggar að það skipti
ekki öllu máli hverju þær
klæðist. Aðalatriðið sé að
þeim sjálfum líði vel. Þess
vegna nota margar þeirra
peysur við pils og jakka,
skyrtur, boli eða lausar blúss-
ur og eru ófeimnari við að
vera í mjúkum, hlýjum litum
í stað hins svarta sem hefur
sett svip sinn á allt síðastliðin
tíu ár.
Blúnduefni eru enn ein
nýjungin og þá er verið að
tala um hversdagsklæðnað.
Blúndubuxur, boli og jafnvel
frakka. Litirnir eiga að vera
mjúkir, fílabeinslit blúnda
eða rjómalituð, en ekki svört
nema á kvöldin.
Hvítt virðist ráðandi litur
vorsins. Margir nota gylltan
lit með, bæði í bróderingum
og skartgripum. Gylltar tölur
virðast á öðrum hverjum
Dragt frá Yves
Saint Laurent
vorið
1990.
Buxur og blússa úr ullarjersey frá Soniu Rykiel.
SONIA RYKIEL
Fatnaður Soniu Rykiel, eins fremsta Parísarhönnuð-
arins, sem fæst í versluninni Stíl á Hverfisgötu 39 er
táknrænn fyrir þankagang tískunnar nú. Rykiel
leggur mikla áherslu á þægindi samfara glæsileikanum og
notar krepefni óspart í fatnað sinn, sem og ullarjersey og
velúr. Svart hefur alltaf verið grunnliturinn í fatnaðinum
frá Rykiel og hefur hún framleitt úr sömu gerð af krepefni
og ullarjersey í mörg ár. Fatnaðurinn er dýr en á móti
kemur að við jakkann frá því í fyrra má bæta við pilsi í ár,
peysu eða blússu. Fatnaðurinn á myndinni er táknrænn
fyrir lausu línuna sem er að ryðja sér til rúms í blússu og
buxum úr ullarjersey fyrir vorið og fæst í svörtu, hvítu og
beige.
jakka sem framleiddur er.
Gullkeðjur og armbönd eru
enn vinsæl og perlurnar eru
sígildari en nokkru sinni fyrr.
Aðrar vinsælar litasamsetn-
ingar vorsins eru rautt og
bleikt sem lengi var næstum
bannað, til dæmis rauður
jakki með gylltum tölum við
bleikt satínpils. Blátt og
dökkblátt, ananasgult, olívu-
grænt og bleikt eru einnig lit-
ir vorsins að ógleymdum föl-
um purpuralit. Dökkblátt er
sígilt og Ralph Lauren er
með jakka svipuðum þeim
sem hermenn klæddust í
þrælastríðinu forðum með
gylltum tölum og gylltum lín-
ingum í hálsinn.
í kjólum, pilsum og blúss-
um eru sniðin fljótandi eins
og fötin sveipist um líkam-
ann. Buxnasniðin eru víð og
þægileg með þröngu mitti og
breið belti eru áfram vinsæl.
Jakkar eru gjarnan síðir og
laussniðnir. I stað stuttra,
þröngra pilsa eru komnar
stuttbuxur. Bæði Armani og
Yves Saint Laurent eru með
pils sem eru tekin saman á
hlið þannig að það myndast
klauf fyrir miðju.
Hælabandaskór eru vinsæl-
ir f vorlínunni en annars lág-
botna mokkasínur og svo
strigaskórnir sígildu.
Asfsk áhrif hönnuoarins Zang Toi
koma fram f iitasamsetningu á
dragt með rauðum jakka og bleiku
pilsi.